Fótbolti

Svona missti Aron markið sögu­lega

Sindri Sverrisson skrifar
Aron Sigurðarson og félagar í KR hafa þegar tryggt sér 2. sæti Bestu deildarinnar sem er besti árangur liðsins frá árinu 2019 þegar liðið varð síðast Íslandsmeistari.
Aron Sigurðarson og félagar í KR hafa þegar tryggt sér 2. sæti Bestu deildarinnar sem er besti árangur liðsins frá árinu 2019 þegar liðið varð síðast Íslandsmeistari. vísir/Guðmundur

Engin formleg markanefnd er til staðar hjá KSÍ heldur var það mótasvið sambandsins sem tók ákvörðunina um að lagfæra leikskýrslu þannig að Aron Sigurðarson, fyrirliði KR, missti sögulegt mark gegn Fram.

Þetta segir í svari Birkis Sveinssonar, sviðsstjóra mótasviðs KSÍ, við fyrirspurn Vísis vegna marks í leik Fram og KR á dögunum sem á endanum var, réttilega, skráð sem sjálfsmark Kennie Chopart. Sú niðurstaða kallaði á umræðu um hver hefði ráðið breytingunni en samkvæmt upphaflegri leikskýrslu dómara skoraði Aron markið.

„Mótasvið KSÍ fær reglulega athugasemdir við skráningu atburða á leikskýrslum. Athugasemdir geta komið meðal annars frá fjölmiðlum, einstaklingum, erlendum tölfræðifyrirtækjum og fleirum.

Mótasvið KSÍ fer yfir athugasemdirnar og lagfærir eftir atvikum. Ekki er starfrækt formleg markanefnd, heldur er þetta eitt af mörgum hlutverkum mótasviðs KSÍ,“ segir Birkir.

Skoraði síðast í ágúst og þarf að skora í lokaumferðinni

Eftir leiðréttingu mótasviðsins er ljóst að Aron hefur ekki skorað í síðustu sex leikjum í röð, eða síðan í ágúst.

Aron hefur nú aðeins einn leik til stefnu til að bæta markametið á einni leiktíð í efstu deild í fótbolta, eftir að hafa skorað 20 mörk á leiktíðinni til þessa. Markamet Benonýs Breka Andréssonar frá árinu 2024 er 21 mark svo Aron þarf eitt mark gegn Breiðabliki á laugardaginn til að jafna metið en tvö mörk til að eignast metið alveg sjálfur.

Ekki liggur neinn vafi á því að umrætt mark KR gegn Fram 10. október var í raun sjálfsmark Kennie Chopart en ekki mark Arons. Rökstuðningur mótasviðs KSÍ fyrir sinni ákvörðun byggði á reglum um skráningu marka og var á þessa leið:

„KSÍ hefur farið yfir skráningu á marki KR gegn Fram 10. okt (mark á 8. mínútu) sem dómari leiksins skráði á Aron Sigurðarson.

Við yfirferðina var sérstaklega horft til stefnu og ferils boltans áður en hann hafði viðkomu í leikmanni Fram. Við snertingu leikmanns Fram breytir boltinn um stefnu með þeim afleiðingum að hann fór í markið.

Í reglum um skráningu marka í Framkvæmd leikja - Handbók dómara 2026 kemur meðal annars fram að skrá ber mark sem sjálfsmark ef:

„2. Leikmaður varnarliðs, viljandi eða óviljandi snertir boltann sem stefndi fram hjá markinu, með þeim afleiðingum að boltinn fór í markið.“

Við skoðun kemur fram að boltinn stefndi fram hjá markinu áður en hann hafði viðkomu í leikmanni Fram og snertingin var því þess valdandi að boltinn fór í markið.

Á þeim grundvelli ber því að skrá umrætt mark sem sjálfsmark á leikmann Fram.

Leikskýrslan hefur verið uppfærð til samræmi við ofangreint.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×