Miðbær Nashville kemur til Reykjavíkur og Akureyrar Jamboree Entertainment 23. október 2026 11:43 Meðal annars verða flutt lög eftir Dolly Parton, Johnny Cash, Willie Nelson og Patsy Cline. Ein vinsælasta kántrísýning Evrópu, A Country Night in Nashville, snýr aftur til Íslands á næsta ári. Sannkölluð veisla fyrir kántrí aðdáendur.
Hún kemur hingað beint úr sannkallaðri sigurgöngu eftir uppselda tónleika í Reykjavík árið 2025, frábærar sýningar í Þýskalandi og Royal Albert Hall, ásamt metsölu tónleikaferðalagi í Bretlandi. Í febrúar mætir hópurinn aftur í Hörpu og stígur auk þess í fyrsta sinn á svið í Hofi á Akureyri. Þetta er einstök upplifun sem enginn ætti að láta framhjá sér fara. Sýningin A Country Night in Nashville færir á svið orku og andrúmsloft sem einkennir víðfræga bari í höfuðborg kántrí tónlistarinnar í Bandaríkjunum. Sex manna hljómsveitin Dominic Halpin & The Hurricanes flytur stærstu smelli kántrítónlistarinnar eftir helstu stjörnur fortíðar og nútíðar. Sveitin hefur heillað áhorfendur með sönnum kántrí hljómi og framúrskarandi hljóðfæraleik. Aðdáendur kántrí tónlistar eiga því von á sannkallaðri veislu. Tónleikagestir eiga von á miklu tónlistar ferðalagi í gegnum nokkrar kynslóðir kántrítónlistar. Meðal annars verða flutt lög eftir Dolly Parton, Johnny Cash, Willie Nelson, Patsy Cline, Alan Jackson, Shania Twain, George Strait, Lady A og Ella Langley. Dominic Halpin er talinn einn eftirsóttasti listamaðurinn í sínum geira. Söngvarinn og gítarleikarinn hefur deilt sviði með alþjóðlegum stórstjörnum á borð við Sir Cliff Richard, Tony Bennett og Emeli Sandé, samið tónlist fyrir kvikmyndir og sjónvarp og meira að segja tekið upp plötu í Nashville ásamt fyrrum trommuleikara Elvis Presley. Með honum koma fram Donna Marie (söngur og hljómborð), Ben Wiltshire (bassi), James Walker (trommur) og Matt Wells (gítar og banjó). Nýjasti liðsmaður sýningarinnar er Paul Harding, sem spilar á fiðlu, gítar, harmonikku, mandólín og píanó ásamt því að syngja bakraddir. Saman munu Dominic Halpin og The Hurricanes færa Nashville stemninguna til Íslands. Fluttir verða tímalausir smellir á borð við 9 to 5, Ring of Fire, Crazy og The Gambler, í bland við nýrri kántrí smelli á borð við Man! I Feel Like a Woman, Need You Now, Trailblazer og Choosin’ Texas. Sýningin A Country Night in Nashville býður því upp á tónleika sem eru fullir af tilfinningu, orku og ógleymanlegum lögum.„Ég er virkilega spenntur fyrir því að koma aftur með A Country Night in Nashville í Hörpu, nú með nýjum lögum og nýjum tónlistarmönnum, og jafnframt að fá að kynna þessa líflegu sýningu fyrir áhorfendum á Akureyri. Vinsældir kántrítónlistar hafa rokið upp á heimsvísu á síðustu árum og sýningin okkar þróast sömuleiðis stöðugt. Við bætum við lögum með frábæru nýju tónlistarfólki á borð við Ella Langley, í bland við öll klassísku lögin sem við þekkjum og elskum. Þetta eru tveir tímar af stærstu kántrísmellunum, kröftugum söng og sjóðheitri hljómsveit í miklu stuði,” segir James Cundall, sem stýrir breska framleiðslufyrirtækinu Jamboree Entertainment. Tónleikarnir A Country Night in Nashville fara fram í Eldborg í Hörpu föstudaginn 12. febrúar 2027 kl. 20:00 og í Hofi á Akureyri laugardaginn 13. febrúar kl. 20:00. Miðaverð er frá 9.990 til 14.990 kr. á tónleikana í Hofi, og frá 6.990 til 16.990 kr. í Hörpu. Miðasala er þegar hafin á tix.is.Sýningin A Country Night in Nashville er framleidd af breska fyrirtækinu Jamboree Entertainment eins og áður segir. Meðal annarra sýninga á þeirra vegum árið 2026 má nefna The Legend of Springsteen, The Ultimate Eagles, The Definitive Rat Pack, Emilio Santoro as Elvis, Mania: The ABBA Tribute og Sir Bryn Terfel. Þann 20. nóvember næstkomandi kemur fyrirtækið með sýninguna Celebrating George Michael í Hof á Akureyri og daginn eftir, þann 21. nóvember, verður hún sett upp í Hörpu. Til að enda árið á skemmtilegum nótum munu tvö stórnöfn frá 8. og 9. áratugnum koma saman á stórfenglegum jólatónleikum í Hörpu þann 19. desember. Þar munu koma fram hin þekkta diskósveit Boney M., undir forystu upprunalega meðlimsins Liz Mitchell, ásamt Herberti Guðmundssyni sem á sér sérstakan stað í hjörtum Íslendinga. Auk þess er von á fjölda annarra spennandi alþjóðlegra listamanna á vegum fyrirtækisins árið 2027.
Menning Tónlist Tónleikar á Íslandi Mest lesið „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Menning Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Lífið Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Lífið Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar Bíó og sjónvarp Top Gun- og Alien-leikari látinn Lífið Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Bíó og sjónvarp Ótrúleg saga fólks sem valdi mildi og mannúð í stað reiði Menning Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Fleiri fréttir Miðbær Nashville kemur til Reykjavíkur og Akureyrar Prótein á að vera í forgangi Af hverju haldast ekki liðir & krullur í hárinu? Fjarstætt að hugsa til þess að þetta myndi enda svona Haribo-kastalar og hrekkjavökugleði í Bónus Ég er full af lífsþrótti og vil eiga fullt af árum í viðbót Ef ég hefði komið einu til tveimur árum seinna hefðum við ekki verið að eiga sama samtal Nýja Garmin Fenix 9 sameinar allt það besta í einu úri Ég vissi sjálf að það var ekki í lagi Ég upplifði mjög sterkt að ég væri að bregðast Ef þú finnur fyrir einkennum, hlustaðu á líkamann Árlega greinast 2.146 einstaklingar: Svona nýtist þinn stuðningur Útilegumaðurinn býður nú meira en ferðavagna og útivistarbúnað Boney M og Herbert Guðmundsson stíga saman á svið á öðruvísi jólatónleikum Svansvottaðar gæðaíbúðir þar sem hugsað er fyrir hverju smáatriði Er bíllinn klár fyrir veturinn? Kíktu á vetrartékklista Bílanausts Nathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Rafha fagnar 90 árum með pönnukökum, afmælistilboðum og fjöri Smáralind breytist í tímavél um helgina Tennis, tónlist og samfélag: Happdrætti Blindrafélagsins skiptir máli Siglingar, safarí og suðrænar strendur meðal spennandi sérferða Húsgagnadagar hafnir í JYSK með allt að 40% afslætti Svona getur lyfjaskammtarinn einfaldað daglegt líf Sprenging í sölu saltvatnspotta á Íslandi Kona fagnar tólf árum í nýjum og glæsilegum Firði Mæðgurnar á bak við Kalkliti mæta í Skútuvog Húðin breytist með aldrinum: Hagkaup leggur aukna áherslu á fræðslu „Það er sannarlega óþarfi að mygla inni“ Nýsköpun frá Icewear fyrir íslenskt veðurfar Sjá meira