Vilja hækka samræðisaldur Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 24. október 2026 09:38 Viktor Árnason, Ari Orrason formaður og Elvar Freyr Fossdal Sigfússon. Á mynd vantar Elísabetu Freyju Úlfarsdóttur. Aðsend Ung Vinstri græn fordæma harðlega ákvörðun um að sýkna mann af ákæru fyrir nauðgun. Þá hvetja þau Alþingi til þess að hækka samræðisaldur.
Ný stjórn Ungra Vinstri grænna fundaði í fyrsta skipti í gær en Ari Orrason var kjörinn formaður ungliðahreyfingarinnar um miðjan mánuð. Það vakti athygli þar sem að í þingkosningunum árið 2024 skipaði Ari 2. sæti á lista Sósíalistaflokksins í Norðausturkjördæmi. Í kjölfar fundarins var gefin út ályktun um nokkur málefni sem hafa verið til umfjöllunar undanfarnar vikur. Þar á meðal var ákvörðun Landsréttar um að sýkna mann sem hafði áður verið dæmdur í fimm ára fangelsi í héraðsdómi fyrir kynferðisbrot. Stjórnin „fordæmir harkalega“ ákvörðunina. „Jafnframt vill stjórnin taka undir með þeim sem hafa kallað eftir úttekt á meðferð kynferðisofbeldismála hjá dómskerfinu og að sérstök athygli verði beint að Landsrétti, þar sem hann hefur sýnt tilhneigingu til þess að sýkna þá sem hafa verið dæmdir fyrir nauðgun af héraðsdómi,“ segir í ályktuninni. Fleiri hafa fordæmt sýknudóminn, þar á meðal BDSM-samtökin og Stígamót. Líkamar og leg eigi að vera markaðsvara „Stjórn UVG hvetur Alþingi til að hækka samræðisaldur einstaklinga til 18 ára aldurs og til dómsvalds Íslands að taka tilfellum af misnotkun barna alvarlega,“ segir í ályktuninni. Að þeirra mati taki dómarastéttin slíku ofbeldi ekki nógu alvarlega. Dómar sem falla í slíkum málum teljist ekki við hæfi þegar alvarleiki brota sé tekinn til hliðsjónar. Það sé ólíðanlegt að löggjöf og dómsvald heimili kynferðisofbeldi gegn börnum af hálfu fullorðinna þar sem ekkert barn geti veitt samþykki. „Vert er að rekja uppruna slíkrar gjafmildi stéttarinnar.“ Einnig fordæmir UVG ályktun Stjórnar ungra sjálfstæðismanna en þeir síðarnefndu töluðu þar fyrir því að staðgöngumæðrun yrði gerð heimil á Íslandi. UVG leggst hins vegar alfarið gegn því. „Hvorki líkamar kvenna né leg skulu vera gerð að markaðsvöru. Sú hugmynd að heimilun staðgöngumæðrunar auki frelsi kvenna stenst ekki skoðun þegar tekið er tillit til áhrifa félagslegra og efnahagslegra þátta í ákvarðanatöku tilvonandi staðgöngumæðra.“
Vinstri græn Kynferðisofbeldi Ofbeldi gegn börnum Mest lesið Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vilja hækka samræðisaldur Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Lægðardrag á leiðinni Veður Fleiri fréttir „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Sjá meira