Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 24. október 2026 20:06 Húsið er í rúst eftir brunann. Getty Lögregla segir sterkar vísbendingar um að 33 ára þýskur maður, sem handtekinn var í kjölfar brunans í Arnarhreiðri Adolfs Hitlers í Bæjaralandi, hafi kveikt í húsinu. Bráðabirgðamat geðlæknis bendir til þess að maðurinn glími við geðræn veikindi.
Þetta kom fram á blaðamannafundi lögreglu og saksóknara í Berchtesgaden síðdegis í dag en Guardian fjallar um málið. Maðurinn var handtekinn skömmu eftir að eldurinn kom upp á föstudagskvöld. Hann mun hafa ekið á rauðu mótorhjóli án skráningarmerkja niður hinn mjóa fjallveg frá Kehlsteinhaus á móti lögreglu og slökkviliði sem voru á leið á vettvang. Rannsóknaryfirvöld segja nú sterkar vísbendingar liggja fyrir um að hann hafi sjálfur lagt eld að húsinu. Maðurinn er þýskur ríkisborgari og hefur tengsl við Berchtesgaden-svæðið en býr þar ekki að staðaldri að sögn lögreglu. Saksóknari sagði á blaðamannafundinum að fram hefðu komið „áþreifanlegar vísbendingar“ um möguleg geðræn veikindi mannsins. Sérfræðingur hafi þegar gert bráðabirgðageðmat og saksóknari telji um skerta refsiábyrgð kunni að ræða. Maðurinn var leiddur fyrir dómara í Rosenheim í dag og er óskað eftir því að hann verði vistaður á réttargeðdeild á meðan rannsókninni stendur. Pólitískur hvati einnig rannsakaður Vegna sögu hússins rannsakar lögregla jafnframt hvort pólitískar ástæður kunni að hafa legið að baki brunanum. Saksóknari segir rannsókn þess þáttar þó enn á algeru byrjunarstigi. Það var byggt á árunum 1937 til 1938 sem sumarhús fyrir háttsetta nasista, þar á meðal Adolf Hitler. Hann er þó sagður hafa dvalið þar sjaldan, heldur hafi markmiðið með byggingunni verið að heilla erlenda gesti og diplómata. Húsið komst nokkuð óskaddað í gegnum seinni heimsstyrjöldina. Á síðustu árum hefur það verið notað sem safn um Þýskaland nasismans. Ekkert bendir að svo stöddu til þess að fleiri hafi komið að verknaðinum. Enginn slasaðist Eldurinn kviknaði á föstudagskvöld og var tilkynnt um hann þegar reykskynjari fór í gang. Þegar fyrstu viðbragðsaðilar komu á vettvang stóð húsið alelda. Um 200 viðbragðsaðilar tóku þátt í aðgerðunum en mjög erfiðar aðstæður voru á fjallinu, sem stendur í 1.834 metra hæð. Snjór, vindur og erfið aðkoma torvelduðu slökkvistarf verulega. Enginn var inni í húsinu og enginn slasaðist. Joachim Herrmann innanríkisráðherra Bæjaralands.Getty Í frétt Vísis í morgun kom fram að enn hefði ekki tekist að slökkva eldinn og ólíklegt væri talið að hægt yrði að bjarga húsinu. Tökum hefur verið náð á eldinum en húsið er að stórum hluta brunnið og tjónið talið nema milljónum evra. Verður ekki látið standa sem rúst Joachim Herrmann, innanríkisráðherra Bæjaralands, segir þegar ákveðið að Kehlsteinhaus verði ekki látið standa sem rúst. „Það er mikilvægt að við höldum áfram minningarstarfinu,“ sagði Herrmann. Húsið er í eigu Bæjaralands og er tryggt. Yfirvöld hyggjast því endurreisa það, þótt ekki liggi enn fyrir hvernig endurbyggingunni verður háttað.
Þýskaland Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Fleiri fréttir Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Sjá meira