„Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 25. október 2026 14:30 Stuðningur við börnin hafi verið of lítill. getty/vilhelm Framkvæmdastjóri Okkar heims segir stuðning við börn sem eiga foreldri í fangelsi alltof stutt kominn hér á landi. Börnin upplifi oft mikla skömm og einangrist sem geti dregið dilk á eftir sér.
Gefið var úr Styrktarsjóði geðheilbrigðis í vikunni þar sem samtals voru úthlutaðar 18 milljónir króna til þrettán verkefna. Styrkupphæðirnar námu frá 400 þúsund krónum til 2,5 milljóna. Meðal styrkþega er Okkar heimur sem er félag fyrir börn sem eiga foreldra með geðrænan vanda en það tekur við styrkjum fyrir tvö verkefni. Eitt verkefnið er samstarfsverkefni með Afstöðu, félagi fanga, og er hugsað fyrir börn sem eiga foreldra í fangelsi en annað verkefnið er skapandi sjálfstyrkingarnámskeið fyrir ungmenni sem eiga foreldra sem glíma við geðrænan vanda eða fíknivanda. Sigríður Gísladóttir, framkvæmdastjóri Okkar heims, segir styrkinn skipta sköpum. „Eins og með þessi verkefni þá tryggir það að við getum farið algjörlega af stað með það og klárað verkefnið sem er náttúrulega stórkostlegt. Þetta í raun og veru kemur svolítið út frá því í starfinu okkar að við höfum starfað mikið með ungmennum sem eiga foreldra sem eru að glíma við geð- eða fíknivanda. Það sem þau eiga sameiginlegt er að þau eru að fóta sig í lífinu. Þau eru svona að fara upp í meira sjálfstæði og kannski með svolítið brotið bakland og ýmis áföll að baki.“ Sjálfstyrkingarnámskeiðið hefur borið góðan árangur síðustu ár en verkefnið sem varðar börn fanga er nýtt af nálinni og löngu tímabært að mati Sigríðar. „Mjög mikið af þeim börnum sem eiga foreldra í fangelsi fá ekki þann stuðning sem þau þurfa. Það náttúrulega fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi. Þessi börn virðast á einhverju svæði sem er svolítið týnt á Íslandi. Ég held að þau falli rosalega mikið á milli kerfa.“ Norðurlöndin séu komin mun lengra í stuðningi við umræddan hóp barna. „Það sem er kannski samnefnari í rannsóknum á þessum börnum er að þau upplifa sig eitt í heiminum. Það er svo sorglegt. Þau upplifa að það eru engin önnur börn í þessari stöðu og þau eru sér á báti því við tölum ekkert um þetta í skólanum.“ Sagði Sigríður Gísladóttir, framkvæmdastjóri Okkar heims. Það sé gömul saga og ný að það vanti fjármagn.
Fangelsismál Börn og uppeldi Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Fleiri fréttir „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Sjá meira