Lífið

„Eins og ein sál í tveimur líkömum“

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Tónlistarkonan Brynja Bjarnadóttir var að gefa út tónlistarmyndband við lagið Rainbow.
Tónlistarkonan Brynja Bjarnadóttir var að gefa út tónlistarmyndband við lagið Rainbow. Aðsend

„Ég samdi lagið eftir erfitt tímabil í lífi mínu. Eftir að hafa komist í gegnum það fannst mér hversdagsleikinn svo fallegur,“ segir tónlistarkonan Brynja Bjarnadóttir sem frumsýnir hér að neðan tónlistarmyndband við nýja lagið sitt Rainbow.

„Myndbandið er í raun óður til hversdagsleikans. Við fylgjum pari í gegnum dag í lífi þeirra, þar sem mörkin milli þess sem við sjáum og þess sem við skynjum renna saman í eitt,“ segir Brynja um söguþráðinn en myndbandið má sjá í spilaranum hér að neðan:

Klippa: Brynja - Rainbow

„Myndbandið fjallar um tilfinninguna að tilheyra og finna heimili í annarri manneskju. Það var því vel við hæfi að taka það upp á æskuheimili mínu, gullfallegu húsi sem Högna Sigurðardóttir teiknaði. Ég bjó aðeins þar fyrstu þrjú árin en svo skemmtilega vill til að vinkona mín býr þar núna.“ 

Sjónræni heimurinn

Þegar Brynja kynntist kvikmyndagerðarmanninum Konráð Kárasyni heillaðist hún af verkum hans.

„Konráð hefur mikla reynslu af tökum á 35 mm filmu en analog-heimurinn hefur lengi heillað mig. Mér fannst spennandi að prófa formið þótt það væri líka svolítið ógnvekjandi tilhugsun að vita að aðeins væru örfáar tökur í boði fyrir hverja senu. Það er ekki mikið pláss fyrir mistök.“

Brynja ásamt systkinum sínum á æskuheimilinu, þar sem hún tók svo upp myndband rúmum 30 árum síðar. Aðsend

Í sameiningu sköpuðu þau Brynja og Konráð sjónrænan heim Rainbow. Þau undirbjuggu gróft handrit og gerðu tilraunir með ljósbrot en margt varð líka til á tökustað.

„Tíminn var naumur, svo við þurftum að treysta innsæinu og bregðast við í augnablikinu. Töfrar voru í loftinu og mikið af fallegum senum urðu til á staðnum.“

Konráð fékk til liðs við sig stóran hóp fólks, meðal annars framleiðslufyrirtækið Dögun Films og marga úr kvikmyndadeild Listaháskóla Íslands. Brynju fannst magnað að fylgjast með öllum vinna saman eins og smurð vél.

Það sem var minnistæðast er að allir fengu kaffibolla merkta með sínu hlutverki svo þeir rugluðust ekki saman. Á mínum bolla stóð „leikstjóri“, sem mér þótti vænt um þar sem þetta var í fyrsta sinn sem ég leikstýri.

Að standa á bak við myndavélina

Brynja ákvað að leikstýra myndbandinu sjálf, bak við myndavélina.

„Mér fannst spennandi að prófa að stýra því hvernig senurnar birtust utan frá, í stað þess að vera sjálf inni í rammanum. Útkoman fékk þannig á sig blæ stuttmyndar fremur en hefðbundins tónlistarmyndbands.“

Jón Sölvi og Jean-Luc eru eins og ein sál í tveimur líkömum.Aðsend

Hún þurfti ekki að hugsa sig lengi um hverja hún vildi hafa í myndbandinu, þá Jón Sölva og Jean-Luc.

„Þeir pössuðu bara einhvern veginn fullkomlega. Myndbandið lýsir nánd og mér hefur alltaf fundist að þeir séu eins og ein sál í tveimur líkömum.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.