Íslenski boltinn

Engin upp­alin spilaði með Fram

Valur Páll Eiríksson skrifar
Leikmenn sem eru uppaldir annarsstaðar en í Fram báru liðið uppi í sumar.
Leikmenn sem eru uppaldir annarsstaðar en í Fram báru liðið uppi í sumar. Vísir/Diego

Hlutfallslega spiluðu uppaldir leikmenn flestar mínútur hjá Þór/KA í Bestu deild kvenna í sumar og Breiðablik kom þar skammt á eftir. Hjá Fram spiluðu uppaldir leikmenn ekki neitt.

Hjá Þór/KA spiluðu uppaldir Akureyringar 58 prósent mínútna hjá norðankonum samkvæmt tölum tölfræðiveitunnar Ordio. Skammt þar á eftir með 57 prósent mínútna voru uppaldar Blikakonur í meistaraliði Breiðabliks sem varð Íslandsmeistari þriðja árið í röð.

Hjá öðrum liðum í deildinni var hlutfallið á milli 28 og 41 prósent þar sem Eyjakonur komu næst á eftir Þór/KA og Breiðabliki og því næst FH og Stjarnan.

Neðsta lið listans vekur hins vegar athygli þar sem uppaldir Framarar spiluðu 0 prósent mínútna með liðinu í sumar. Fram var spáð falli af mörgum og byrjaði mótið illa en endaði efst í neðri hluta deildarinnar rétt fyrir ofan áðurnefnt lið Þór/KA.

Líkt og greint var frá á Vísi á dögunum var Þór einnig efstur á lista í karlaflokki en Þórsarar spiluðu flestar mínútur fyrir uppeldisfélag sitt í Bestu deild karla með heil 77 prósent. Þar var Breiðablik einnig í öðru sæti.

Neðst karlamegin var lið Vals þar sem uppaldir leikmenn spiluðu 1 prósent mínútna.

Hlutfall uppaldra leikmanna í Bestu deild kvenna á nýliðinni leiktíð samkvæmt tölum Ordio.is.Ordio



Fleiri fréttir

Sjá meira


×