Innlent

Á­rekstur á Vestur­lands­vegi tefur um­ferð

Eiður Þór Árnason skrifar
Af vettvangi fyrr í kvöld.
Af vettvangi fyrr í kvöld. aðsend

Árekstur varð á Vesturlandsvegi í Reykjavík í kvöld þar sem ökumaður bifreiðar keyrði utan í tvo aðra bíla. Engin slys urðu á fólki en nokkuð er um umferðartafir á svæðinu á meðan unnið er að því að hreinsa vettvanginn, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Áreksturinn átti sér stað rétt fyrir neðan lögreglustöðina við Vínlandsleið. Tveir sjúkrabílar voru sendir á staðinn að sögn varðstjóra slökkviliðs.

Fréttin er í vinnslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×