Bandarískir kjósendur ganga að kjörborðinu á morgun, þriðjudag, í kosningum sem bera þess merki að geta markað svokallaða bláa flóðbylgju. Demókratar eru með byr undir báðum vængjum fyrir kosningarnar, ef marka má kannanir, og má meðal annars rekja þennan meðbyr til sögulegra óvinsælda Donalds Trump. Þrátt fyrir að kannanir séu víða góðar fyrir Demókrata og það jafnvel í ríkjum sem hafa lengi verið eldrauð vígi Repúblikana, eru margar sviðsmyndir við sjóndeildarhringinn. Nánast öruggt þykir að Demókratar muni ná meirihluta í fulltrúadeildinni og telja leiðtogar flokksins að þeir eigi einnig möguleika á meirihluta í öldungadeildinni. Hér að neðan verður stiklað á stóru yfir það hvað er í vændum og þá helst í hvaða ríkjum baráttan um öldungadeildina mun fara fram. Óttast að eiga „hrottalegt“ kvöld Leiðtogar Repúblikanaflokksins eru sagðir vonast eftir því að halda Demókrötum við fimmtíu sæti í öldungadeildinni. Með JD Vance varaforseta sem úrslitatkvæðið, þá felur það í raun í sér að flokkurinn stjórnar enn þingdeildinni. Þeir óttast þó að hljóta afhroð í kosningunum og missa þingsæti sem Repúblikanar hafa setið í um árabil eða jafnvel áratugi. Í grein Politico segir að í fulltrúadeildinni ræði þingmenn flokksins sín á milli ekki um það hvort þeir muni missa meirihlutann, heldur hve stór meirihluti Demókrata verði. Nokkrir þingmenn flokksins sem virðast vera að tapa sætum sínum hafa grátbeðið flokkinn um fjárhagsaðstoð en það hefur ekki skilað árangri. „Þetta gæti orðið hrottalegt kvöld.“ Þetta sagði einn háttsettur Repúblikani um þriðjudaginn. Annar sem var spurður út í stöðuna í smáskilaboðum svaraði með myndbandi. Víða lítill munur á frambjóðendum Þó að kannanir bendi til þess að líkurnar séu með Demókrötum og að blá flóðbylgja gæti skollið á Bandaríkjunum, er í mörgum tilfellum lítill munur á frambjóðendum. Því þarf ekki mikið til svo að hinir bestu draumar Demókrata rætist ekki. Undanfarin ár hafa kannanir í Bandaríkjunum átt það til að vera tiltölulega fjarri raunverulegum úrslitum kosninga. Þetta hefur að miklu leyti verið rakið til þess að Donald Trump dró á kjörstað marga sem hafa áður verið ólíklegir til að taka þátt í kosningum. Starfsmenn fyrirtækja sem framkvæma kannanir segjast hafa lært af reynslunni en þetta gæti þó gerst aftur. Margir sérfræðingar segja að kjörsókn gæti ráðið miklu, þar sem kjósendur Repúblikanaflokksins segjast að þessu sinni, heilt yfir, mun ólíklegri til að mæta á kjörstað en kjósendur Demókrataflokkins. Atkvæði greidd utan kjörfundar í New York.Gretty/Selcuk Acar, Anadolu Blaðamenn New York Times hafa vaktað utankjörfundaratkvæði í aðdraganda kosninganna. Þau eru í flestum ríkjum sem gefa út slíka tölfræði, mun fleiri en þau voru í þingkosningunum 2022. Það bendir til þess að kjörsókn, sem er yfirleitt mun minni í þingkosningum en hún er í forsetakosningum, verði hærri en gengur og gerist. Leiða má líkur að því að þessi kjörsókn, sem virðist ætla að verða mikil, sé Demókrötum frekar í hag en Repúblikönum, þar sem kjósendur þeirra síðarnefndu eru ekki eins líklegir til að vilja mæta á kjörstað að þessu sinni. Hvað er barist um? Þegar kemur að öldungadeildinni er kosið um þriðjung hundrað þingsæta á tveggja ára fresti. Nú bætast tvö sæti við, í Ohio og í Flórída, vegna þess að JD Vance sagði af sér til að verða varaforseti og Marco Rubio sagði af sér til að verða utanríkisráðherra. Þess vegna er nú kosið um öldungadeildarsæti í 35 ríkjum. Þrettán þeirra eru í höndum Demókrata og 22 í höndum Repúblikana. Í langflestum tilfellum þykja úrslitin nánast örugg en Demókratar telja sig eiga séns á að ná meirihluta í öldungadeildinni og er sú tilfinning studd af niðurstöðum kannana. Barist í nokkrum ríkjum Spálíkön fjölmiðla og annarra vestanhafs benda til þess að mest spennandi ríkin séu nokkur. Það er mismunandi milli líkana í hvaða ríkjum spennan er hvað mest en flestir eru sammála um nokkur þeirra. Til að ná tökum á öldungadeildinni þurfa Demókratar að halda sínum fjórum sætum sem kosið er um að þessu sinni og þykja ekki algerlega örugg. Það eru sæti í Georgíu, Minnesota, New Hamphire og Michigan. Kannanir benda, samkvæmt vefnum 270towin, til þess að Demókratar séu líklegri en ekki til að halda öllum þessum sætum. Til viðbótar við það þurfa þeir að ná að minnsta kosti fjórum sætum úr höndum Repúblikana. Meðal þeirra ríkja sem Demókratar telja sig eiga séns má helst nefna Norður-Karólínu, Maine, Alaska, Iowa, Texas, Ohio og Kansas. Norður-Karólína þykir þegar líkleg til að falla í hendur Demókrata, ef svo má segja. Þar hefur Roy Cooper, frambjóðandi Demókrataflokksins, ítrekað mælst með töluvert forskot á Michael Whatley, mótframbjóðanda sinn. Í október mældist forskot hans frá átta prósentustigum í fjórtán. Flestar kannanir gáfu honum tíu eða fleiri prósentustiga forskot. Leiðtogar Repúblikanaflokksins drógu verulega úr eyðslu í auglýsingar fyrir Whatley í aðdraganda kosninganna, sem bendir til þess að þeir hafi gefið þingsætið upp á bátinn. Eldrauð ríki gætu orðið blá Þá eru eftir ríkin Alaska, Texas, Ohio, Iowa, Maine, Kansas og Michigan. Það að þessi ríki þyki yfirhöfuð spennandi hvað varðar öldungadeildina er í sjálfu sér merkilegt. Demókratar stjórnuðu síðast öldungadeildarsæti í Alaska og Iowa fyrir átján árum. Það eru 38 ár síðan Demókrati sat í öldungadeild Bandaríkjaþings fyrir Texas og heil 94 ár síðan það gerðist síðast í Kansas. Á síðustu þrjátíu árum hafa Demókratar unnið einar öldungadeildarkosningar í Alaska. Fjórir í framboði en tveir Dan-ar Í Alaska eru fjórir frambjóðendur um eitt sæti í öldungadeildinni. Fyrir situr í því sæti Repúblikani sem heitir Dan Sullivan. Helsti andstæðingur hans er Mary Peltola, Demókrati og fyrrverandi þingmaður í fulltrúadeildinni. Þá eru einnig þeir Herald Heikes, sem er líka Repúblikani, og annar Dan Sullivan, sem er óháður, að berjast um þingsætið. Dan Sullivan og Dan Sullivan, frambjóðendur í Alaska.AP/Mark Thiessen og Becky Bohrer Þetta er vegna einstakra reglna í Alaska, sem fela í sér að efstu fjórir frambjóðendurnir í forvölum flokkanna fara áfram i kosningar. Þá raða kjósendur frambjóðendum í röð, eftir því hverjum þeim lýst best á. Setji meira en helmingur kjósenda ekki einn frambjóðanda í fyrsta sætið, er öll uppröðunin tekin til skoðunar og sigurvegarinn ákveðinn út frá því hver kemur best út úr uppröðuninni. Það mun þó ekki gerast fyrr en um miðjan nóvember. Þess vegna gæti liðið þó nokkur stund þar til úrslitin í Alaska liggja formlega fyrir. Kannanir benda til þess að Peltola njóti naums forskots á Sullivan, sitjandi þingmanninn ekki hinn, í báðum lotum. Kannanirnar eru þó ekki margar og forskotið hefur mælst lítið. Því ríkir mikil spenna um úrslitin í Alaska. Mary Peltola hefur mælst með forskot á andstæðinga sína í könnunum.AP/Mark Thiessen Dýrasta kosningabarátta sögunnar Baráttan um öldungadeildarsætið í Texas hefur verið sérstaklega dýr. Báðir flokkar hafa dælt milljörðum dala í hana þar sem Repúblikanar hafa áhyggjur af því að missa sætið, sem hefur verið í höndum þeirra um árabil, og Demókratar sjá tækifæri til að ná í mjög verðmætt sæti og færast nær meirihluta í öldungadeildinni. Þetta gerir baráttuna þá dýrustu um öldungadeildarsæti í sögu Bandaríkjanna en áætlað er að meira en hálfum milljarði dala hafi verið varið í auglýsingar fyrir kosningarnar. Repúblikanar hafa haft mikið forskot þegar kemur að eyðslu í auglýsingar. Í Texas berjast þeir Ken Paxton, Repúblikani og mjög svo umdeildur fyrrverandi dómsmálaráðherra ríkisins, og James Talarico Demókrati um sætið. Paxton tókst, með stuðningi Trumps, að velta John Cornyn, fráfarandi öldungadeildarþingmanni Repúblikanaflokksins, úr sessi í forvali fyrr á árinu en það hefur leitt til mikilla vandræða fyrir Repúblikana. Sjá einnig: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Paxton hefur í gegnum árin verið viðloðinn fjölda hneykslismála og verið sakaður um og ákærður fyrir embættisbrot vegna meintrar spillingar. Það var árið 2023 og var niðurstaða rannsóknarnefndar sem leidd var af Repúblikönum. Þá var hann einnig til rannsóknar hjá Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) vegna gruns um að hann hefði beitt embætti sínu til að hjálpa manni sem hafði styrkt kosningabaráttu hans. Enn fremur var Paxton ákærður fyrir fjársvik árið 2015. Það mál rataði þó aldrei í dómsal og Paxton var ekki sakfelldur fyrir embættisbrot af þingmönnum öldungadeildar ríkisþings Texas, sem leidd er af Repúblikönum. Helsti bakhjarl Paxtons hefur verið Elon Musk, auðugasti maður heims. Hann hefur varið tugum milljarða króna í auglýsingar fyrir Paxton. Heilt yfir hefur hann gefið Repúblikönum gífurlegt magn peninga fyrir kosningarnar og er talið að enginn hafi nokkru sinni varið meiri peningum í kosningabaráttu en Musk hefur gert fyrir þingkosningarnar. Sjá einnig: Styður Repúblikana með tugum milljarða Talarico er 37 ára gamall fyrrverandi ríkisþingmaður. Repúblikanar hafa varið miklu púðri í að reyna að mála hann sem fjarvinstri öfgasinna og jafnvel einhvers konar pervert, eins og JD Vance varaforseti hefur haldið fram, án þess að hafa fært nokkur rök fyrir máli sínu. Kannanir benda til þess að staðan sé tiltölulega jöfn en Talarico hefur oftar en ekki mælst með meira fylgi. Í október mældist Paxton einungis einu sinni með meira fylgi og þá eingöngu eitt prósentustig. Talarico hefur mest mælst með átta prósentustiga forskot. Gagnaverin fyrirferðarmikil Í Ohio er Demókratinn Sherrod Brown að reyna að ná öldungadeildarsæti sem hann missti fyrir tveimur árum aftur. Fyrir tveimur árum tapaði hann fyrir Bernie Moreno í kosningum en er nú að bjóða sig fram til hins þingsætis ríkisins gegn Jon Husted, sitjandi þingmanni fyrir Repúblikanaflokkinn, sem skipaður var í embætti í fyrra eftir að JD Vance varð varaforseti. Kjósendur ríkisins hafa á undanförnum árum færst meira til hægri, miðað við úrslit kosninga, en þetta er í fyrsta sinn sem Husted er á kjörseðli þar. Donald Trump og Jon Husted á kosningafundi í Ohio á dögunum. Trump hefur ítrekað talað um það að Husted sé myndarlegur maður og með flottan rass.AP/Jon Cherry Kosningabaráttan í Ohio hefur, eins og víðar í Bandaríkjunum, að miklu leyti snúist um gagnaver fyrir gervigreind en þau hafa orðið sífellt óvinsælli í hugum kjósenda í Bandaríkjunum. Þetta virðist sérstaklega eiga við kjósendur í dreifbýli, sem hafa lengi kosið frambjóðendur Repúblikanaflokksins. Samkvæmt frétt The Hill eru um 67 prósent þeirra gagnavera sem verið er að reisa í Bandaríkjunum að rísa í dreifbýli. Þetta hefur ekki fallið í kramið hjá fólki. Trump og Repúblikanar hafa verið miklir stuðningsmenn gagnavera. Husted er einn þeirra sem hafa áður lýst yfir miklum stuðningi við gagnaver og hefur sjálfur kallað sig „andlit gagnavera“. Að undanförnu hefur hann reynt að afneita þessum gömlu ummælum sínum en þau hafa reynst honum erfið í kosningabaráttunni. Brown hefur gert andstöðu við gagnaver að einu af hans helstu baráttumálum. Barack Obama og Sherrod Brown á kosningafundi.AP/Sue Ogrocki Kannanir í Ohio benda til þess að Brown njóti forskots á Husted, sem hefur í mánuðinum mælst frá tveimur til sex prósentustigum. Husted mældist einu sinni með eins prósentustigs forskot og í einni könnun mældust þeir jafnir. Óvænt barátta í eldrauðu Iowa Öldungadeildarþingmaðurinn Joni Ernst er að setjast í helgan stein. Það felur í sér tækifæri fyrir Demókrata til að endurheimta þingsæti sem hún hrifsaði af þeim árið 2014 og hefur setið í síðan. Josh Turek, ríkisþingmaður Demókrata í Iowa, er maðurinn sem á að ná því sæti aftur. Það gæti reynst erfitt. Josh Turek ásamt Lindsay James, sem er í framboði til fulltrúadeildarinnar í Iowa, á fundi með stuðningsmönnum.AP/Steven Sloan Trump sigraði bar sigur úr býtum í síðustu þremur kosningum í Iowa og með töluverðum yfirburðum. Þá hafa Repúblikanar verið með þrennu í ríkinu frá 2017, en það er að stjórna báðum deildum ríkisþingsins og að ríkisstjórinn er Repúblikani. Frambjóðandi Repúblikana er Ashley Hinson. Fyrir kosningarnar hefðu fáir búist við því að Iowa yrði eitt af barátturíkjunum en litlar vinsældir Trumps, tollar hans, stríðið gegn Íran og hátt eldsneytisverð hafa reitt kjósendur þessa mikla landbúnaðarríkis mjög til reiði. Ashley Hinson á kosningafundi í Iowa.AP/Charlie Neibergall Trump hefur lagt töluverða áherslu á að styðja Hinson, þar sem Repúblikanar telja Iowa eitt af þeim ríkjum þar sem þeir geta varist Demókrötum. Sú skoðun er studd af könnunum, þar sem Hinson hefur ítrekað mælst með naumt forskot á Turek. Það forskot hefur mest mælst þrjú prósentustig en Turek mældist þrisvar sinnum í október yfir Hinson. Hafa lengi reynt að velta Collins úr sessi Demókratar hafa um árabil reynt að velta Susan Collins úr sessi í Maine. Það hefur þó aldrei borið árangur þó að heilt yfir sé ríkið meira blátt en rautt. Collins hefur setið í sínu þingsæti frá 1996 en í síðustu kosningum, árið 2020, dróst stuðningur hennar í ríkinu nokkuð saman. Nú sjá Demókratar enn einu sinni færi á að bola Collins á brott en kosningabarátta þeirra fór illa af stað. Graham Platner, sem sigraði í forvali flokksins, þurfti að stíga til hliðar vegna þó nokkurra hneykslismála og ásakana um kynferðisbrot. Eftir það völdu Demókratar Troy Jackson til að taka við keflinu, en hann er fyrrverandi ríkisþingmaður í öldungadeild Maine. Kosningabarátta Jacksons fór því seint af stað og hann er að keppa við mun þekktari aðila. Susan Collins og Troy Jackson á kappræðum í október.Getty/Gregory Rec, Portland Press Herald Collins hefur lengi þótt mjög skilvirkur stjórnmálamaður og hefur lengi getað stært sig af árangri sínum fyrir hönd kjósenda í Maine. Kjósendur hafa þó margir ekki verið sáttir við það hvernig hún hefur greitt atkvæði með Trump, þrátt fyrir ítrekaðar yfirlýsingar sínar um að hún hafi áhyggjur af ætlunum forsetans, sem hún hefur svo greitt atkvæði með. Helsta dæmið um það er hvernig hún greiddi atkvæði með tilnefningu Bretts Kavanaugh til Hæstaréttar Bandaríkjanna. Hann tók svo þátt í því að fella úr gildi stjórnarskrárbundinn rétt kvenna í Bandaríkjunum til þungunarrofs. Þrátt fyrir erfiða byrjun hefur Jackson mælst með naumt forskot á Collins í könnunum. Það er þó í flestum tilfellum innan skekkjumarka og spálíkön sérfræðinga vestanhafs segja kosningarnar um þingsætið geta farið á hvorn veginn. Fyrsti þingmaðurinn í 94 ár? Kansas er eitt þeirra ríkja þar sem Demókratar töldu sig eiga séns á að næla í þingsæti. Nýjustu kannanir benda til þess að það gæti gengið eftir. Demókratar hafa ekki haft öldungadeildarþingmann frá Kansas í 94 ár. Roger Marshall, sitjandi öldungadeildarþingmaður Repúblikanaflokksins, er þar að reyna að halda sæti sínu gegn Adam Hamilton, sem er prestur stærsta safnaðar meþódista í gervöllum Bandaríkjunum. Adam Hamilton og Roger Marshall.AP/Charlie Riedel Nýleg könnun frá Kansas sýndi að Hamilton var með níu prósentustiga forskot á Marshall, þar sem skekkjumörkin voru 3,9 prósentustig. Þeir sem framkvæmdu könnunina viðurkenndu þó að stuðningsmenn Demókrataflokksins voru mun viljugri til að svara könnuninni en stuðningsmenn Repúblikanaflokksins. Heilt yfir hefur Hamilton þó verið að mælast með naumt forskot í könnunum. Hvort það skili sér í kjörklefunum á þó eftir að koma í ljós, þar sem kjósendur Demókrataflokksins virðast líklegri til að svara könnunum. Eins og áður hefur komið fram eru þeir þó einnig líklegri til að mæta á kjörstað. Rasísk kosningabarátta Kosningabaráttan í Michigan hefur einkennst af tilraunum Repúblikana, oft rasískum, til að teikna Abdul El-Sayed sem öfgamann og jafnvel hryðjuverkamann. Hann er að slást um öldungadeildarsæti við Mike Rogers, sem reyndi einnig að komast á þing árið 2024 en tapaði naumlega gegn þingkonunni Elissu Slotkin. El-Sayed er læknismenntaður, framsækinn, vinstrisinnaður Demókrati og íslamstrúar. Hann er sonur innflytjenda frá Egyptalandi. Vegna þessa hafa Repúblikanar kallað hann öllum illum nöfnum. Rogers hefur reynt að tengja hann við hryðjuverkastarfsemi og Trump hefur meðal annars kallað hann „grimmilega, ofbeldishneigðan vígamann“ og hvatt kjósendur til að hafna honum til að „vernda trú okkar, gildi og arfleifð“. Þá hefur Trump sagt að ef El-Sayed kemst á þing muni hann ganga úr skugga um að hann verði látinn ganga gegnum málmleitartæki í þinghúsinu, einn öldungadeildarþingmanna. Abdul El-Sayed og Mike Rogers takast í hendur.Getty/Robin Buckson Ted Cruz, öldungadeildarþingmaður Repúblikanaflokksins frá Texas, hefur haldið því fram að vera El-Saeyd á þingi gæti ógnað lífum Bandaríkjamanna, þar sem hann gæti lekið leynilegum upplýsingum til hryðjuverkamanna. Kjósendur í Michigan kusu Trump tvisvar í síðustu þremur forsetakosningum en frá árinu 1994 hafa öldungadeildarþingmenn ríkisins allir verið Demókratar. El-Sayed hefur verið að mælast með nokkuð forskot á Rogers í könnunum. Flestar nýjustu kannanir í Michigan sýna hann með fimm til níu prósentustiga forskot. Forval Demókrataflokksins í Michigan var tiltöulega óvægið og var mikið um deilur innan flokksins á meðan það stóð yfir. Haley Stevens, sem situr í fulltrúadeildinni fyrir Demókrataflokkinn, tapaði gegn El-Sayed í forvaldinu, lýsti upprunalega yfir stuðningi við hann. Í gær virðist henni þó hafa snúist hugur og steig hún fyrir framan myndavélar með Mike Rogers og lýsti yfir stuðningi við Repúblikanann. Samhliða því birti hún yfirlýsingu en sagði ekki berum orðum af hverju henni hefði snerist hugur. I am endorsing Mike Rogers for the United States Senate today. https://t.co/pQgfSBuhOJ— Haley Stevens (@HaleyforMI) November 1, 2026 Strax í kjölfarið gaf starfsmannastjóri skrifstofu hennar á þingi út yfirlýsingu. Hann sem sagði að ákvörðun þingkonunnar væri sláandi og að starfsmenn hennar væru miður sín. Hann sagði marga þeirra hafa sagt af sér eftir yfirlýsingu hennar og hvatti íbúa Michigan til að kjósa El-Saeyd. Wow — a protester yells “Haley Stevens is a traitor!” and Stevens then wraps up her news conference with Mike Rogers in a hurry https://t.co/Wcqgpu2ypI— Aaron Rupar (@atrupar) November 1, 2026 Ísrael og samskipti Bandaríkjann við ríkið hafa spilað stóra rullu í aðdraganda kosninganna í Michigan. Pólitíska aðgerðanefndin (PAC) American Israel Public Affairs Committee eða AIPAC varði tæpum þrjátíu milljónum dala í að styða Stevens í forvalinu gegn El-Sayed en það er meira en nefndin hefur áður varið í baráttu um eitt tiltekið þingsæti. Nefndin hefur það að markmið að styðja þingmenn sem vilja bæta samskipti Bandaríkjanna og Ísrael. Michigan er það ríki Bandaríkjanna þar sem flestir arabar búa. El-Sayed gerði þennan stuðning AIPAC við Stevens að stórum hluta baráttunnar í forvalinu. Bandaríkin Þingkosningar í Bandaríkjunum Donald Trump Fréttaskýringar Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Erlent Hreyfingar mælast og aukin vöktun Innlent Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? Erlent Fjölmenni í héraðsdómi Innlent