Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Valur Páll Eiríksson skrifar 1. nóvember 2026 09:30 Helgi Már Magnússon og Teitur Örlygsson veltu vöngum yfir banni Veigars Páls Alexanderssonar vegna brots á lyfjareglum. Vísir/Sýn Sport Teitur Örlygsson og Helgi Már Magnússon segja út í hött að Veigar Páll Alexandersson, leikmaður Njarðvíkur, fái ekki að æfa með körfuboltaliði félagsins meðan hann tekur út lyfjabann. Veigar var dæmdur í ársbann vegna inntöku ADHD-lyfja á dögunum.
Veigar Páll tók inn ADHD-lyf sem greindust í sýni hans teknu við hefðbundið lyfjaeftirlit eftir leik Njarðvíkur í vor. Veigur hefur tekið inn lyf sem innihald efni sem eru á bannlista Alþjóðalyfjastofnunarinnar, WADA, en flest ADHD-lyf innihalda efni sem eru bönnuð. Klippa: Skilja ekkert í því að Veigar megi ekki æfa Fjölmargir íþróttamenn eru með ADHD-greiningu en þurfa undanþágu frá reglununum fyrir það efni sem þeir taka inn. Til þess þarf læknisvottorð og að ganga frá umsóknarferli um undanþágu hjá Lyfjaeftirliti Íslands. Veigar var dæmdur í árs bann fyrir viku síðan eftir nokkurra mánaða bið eftir niðurstöðu. Legið þungt á Njarðvíkingum Málið var til umræðu í Körfuboltakvöldi þar sem þáttastjórnandinn Stefán Árni Pálsson spurði Teit Örlygsson, sem er goðsögn hjá Njarðvík, út í málið. Teitur, hvernig hefur fyrir þig sem goðsögn þarna í Njarðvík svona kannski að fylgjast með þessu máli? „Þetta er búið að hanga yfir fólki allt of lengi. En fyrst og fremst er þetta bara rosalegt svekkelsi og ég hálfvorkenni Rúnari (Inga Erlingssyni, þjálfara Njarðvíkur) að þurfa að eiga við þetta. Svo kemur þetta svona dálítið í bakið á honum, að missa svona lykilmann út. Þetta er bara ferlegt,“ segir Teitur. „Þegar svona uppalinn leikmaður eins og Veigar, sem er búinn að leggja ofboðslega mikið á sig síðustu ár, og er einn af þessum fáum sem bara ætla sér að verða atvinnumaður í körfubolta, og æfir þannig, að þetta skuli akkúrat vera hann,“ „Ég vona bara að það séu margir aðrir sem læri bara af þessu. Veigar er búinn að koma alveg hreint fram og búið að fylgjast með honum eftir að dómur féll og vonandi er þetta svona bara víti til varnaðar fyrir aðra,“ segir Teitur. Helgi Már Magnússon segir að málið hafi líklega haft slæm áhrif á Njarðvíkurliðið og fólkið í kringum það. „Eins og Teitur kemur inn á, þá er þetta mál búið að vera pínu orkusuga. Hangandi svona einhvern veginn yfir liðinu og þjálfaranum og bara öllu. Svo er þetta lið sem má ekkert við miklum skakkaföllum. Fyrstu samræður allra þarna inni í húsinu eru alltaf tengd Veigari,“ segir Helgi Már. Hvers vegna er fólk sett í æfingabann? Þeir Teitur og Helgi velta því þá upp hvers vegna Veigar Páll fái ekki að æfa með Njarðvíkingum. Það er fylgifiskur lyfjabanna íþróttafólks að það má ekki æfa sína íþrótt og ekki með liðum sínum, þegar við á, á meðan banni stendur. Þar sem rökin með slíku eru ekki nefnd í umræðunni skulu þau rakin hér. Samkvæmt reglum Alþjóðalyfjastofnunarinnar, WADA, og rökstuðningi hennar sem má til að mynda finna á vef Ólympíusambands Evrópu. Þegar um lyfjabrot, þar sem íþróttamaður reynir að bæta íþróttaframmistöðu með inntöku efna sem eru á bannlista Alþjóðalyfjastofnunarinnar WADA eru íþróttamenn teknir út úr umhverfi sínu á þeim grundvelli að þeir megi ekki halda áfram að byggja ofan á forskot sem þeir fengu með lyfjunum til að byrja með. Samkvæmt reglum WADA þýðir bann vegna lyfjabrota algjört bann frá allri keppni, þjálfun, að vinna með öðru íþróttafólki eða að nýta sér tilgreinda æfingaaðstöðu. Þá er hluti af refsingu viðkomandi að hann fái ekki aðgang að aðstöðu og þjálfurum sínum á meðan banninu stendur, þar sem í mörgum tilfellum lyfjabrota eru þeir í nærumhverfi íþróttamannsins samsekir. Megin rökin fyrir æfingabanninu er þá fyrst og fremst fælingarmáttur. Lyfjabönn eru almennt töluvert löng og viðmið við fyrsta brot er almennt tvö til fjögur ár í bann frá keppni og æfingum. Dómur Veigars Páls hefur ekki verið birtur enn og því ekki hægt að rýna í niðurstöðu dómsins eða á hvaða grundvelli nákvæmlega dómurinn er. Færa má aftur á móti rök fyrir því að Veigar hafi ekki tekið inn ADHD-lyf til að bæta íþróttaframmistöðu heldur akademíska frammistöðu í skóla, sem gæti spilað inn í stutt bann hans, sem og samstarfsvilji hans. Fáránlegt að útiloka hann frá íþróttahúsum Líkt og segir að ofan hristu þeir Teitur og Helgi hausinn yfir því að hann megi ekki æfa með liði Njarðvíkur á meðan banninu stendur. „Mér finnst reglurnar dálítið skrýtnar að hann megi ekki æfa. Að refsa íþróttamönnum sem misstíga sig á einhvern hátt með því að útiloka þá frá íþróttahúsum finnst mér vera alveg fáránlegt og maður hefur áður séð það,“ segir Teitur. „Ég hélt að við vildum akkúrat halda þessu fólki inni í íþróttahúsunum og í félagsskapnum. En ég veit að hann er duglegur að æfa og gerir það bara á sinn hátt og lyftir. Við getum ekki rekið hann út úr öllum líkamsræktum líka. Þannig að, þannig að ég býst við að Veigar komi mjög sterkt til baka,“ bætir Teitur við. Helgi Már tekur undir. „Þessi punktur hans Teits hérna með æfingabann, ég skil þetta ekki. Mér finnst þetta algjört nonsense,“ „Ég skil þetta með einhver frammistöðubætandi efni, einhver með stera eða slíkt. Ég skil þann part. Hann var klárlega ekki að reyna að bæta frammistöðu sína og svo eru aðrir sem lenda kannski bara í einhverjum fíkniefnum eða leiðast bara inn á einhverja slæma braut. Þetta er bara fólk sem þú vilt halda í íþróttastarfi,“ segir Helgi Már og bætir við: „Hver er skaðinn af því að við eiga að fá að æfa með liðinu? Enginn. Mér finnst þetta, það er það sem mér finnst svona mest frústrerandi við þetta.“
Körfuboltakvöld Lyf UMF Njarðvík Bónus-deild karla Körfubolti Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Fleiri fréttir Fyrstur síðan David Robinson var og hét Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Ótrúlegar troðslur: „Með einari!“ Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ „Hans besti leikur“ Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Missti af leik með KR vegna herskyldu „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ „Ég er oftast mjög rólegur“ Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Uppgjörið: Keflavík-Höttur 112-99 | Góður endasprettur Keflvíkinga Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Sjáðu slagsmálin í Síkinu Uppgjörið: Stjarnan-ÍR 102-96 | Loksins Stjörnusigur „Lið sem enginn vill mæta núna“ Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Uppgjörið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Grindavíkurkonur áfram á sigurgöngu Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Uppgjörið: Keflavík - Stjarnan 72-92| Stjarnan heldur áfram að heilla Haukar völtuðu yfir KR og Ármann hrekkti meistarana Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Hætti við Lakers sökum hroka Kobe „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Sjáðu skelfileg meiðsli Jalen Williams Sjá meira