Innlent

Eldur í fjöl­býli í Norðlingaholti

Agnar Már Másson skrifar
Mikill reykur rís úr fjölbýlishúsinu.
Mikill reykur rís úr fjölbýlishúsinu. Aðsend

Allt tiltækt lið slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu hefur verið ræst út vegna elds í fjölbýlishúsi í Norðlingaholti í Reykjavík.

Varðstjóri slökkviliðs segir að allar stöðvar hafi verið boðaðar á staðinn. Fyrstu bílar séu mættir á vettvang og fleiri séu á leiðinni. Enn sé að fást mynd á umfang eldsins.

Um er að ræða fjölbýlis hús við Elliðaárbraut, að sögn eins sjónarvotts sem Vísir ræddi við.

Frétt verður uppfærð.

Aðsend

Aðsend



Fleiri fréttir

Sjá meira


×