Viðskipti innlent

Róar á­hyggju­fulla Hafn­firðinga

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Auður Daníelsdóttir forstjóri Dranga móðurfélags Samkaupa segir félagið hafa margt að læra af Fjarðarkaupum.
Auður Daníelsdóttir forstjóri Dranga móðurfélags Samkaupa segir félagið hafa margt að læra af Fjarðarkaupum.

Hafnfirðingar þurfa ekki að óttast að Fjarðarkaup muni brátt heyra sögunni til eftir kaup Samkaupa á rekstri þessarar sögufrægu verslunar í Hafnarfirði. Forstjóri Dranga móðurfélags Samkaupa segir þvert á móti margt að læra af hafnfirsku versluninni.

Tilkynnt var um kaupin í morgun en viðskiptin eru háð því að Samkeppniseftirlitið samþykki þau. Fjarðarkaup var fyrir viðskiptin í 98 prósenta eigu 1717 ehf sem er félag í jafnri eigu systkinanna Rósu, Gísla Þórs, Hjördísar og Sveins Sigurbergsbarna en foreldrar þeirra Sigurbergur Sveinsson og Ingibjörg Gísladóttir opnuðu verslunina fyrir 53 árum síðan árið 1973 en Sigurberg lést árið 2023. 

Gísli Sigurbergsson sagði í morgun að hann væri bæði sorgmæddur og glaður vegna þessara tímamóta. Verslunin hefur um árabil átt sess í hjörtum Hafnfirðinga, sem eru uggandi yfir mögulegum breytingum líkt og Örn Ólafsson fastakúnni komst að orði við fréttastofu þar sem hann var að versla í búðinni í morgun.

„Við erum náttúrulega svekkt yfir þessu. Búin að versla þarna síðan þau opnuðu fyrst í Trönuhrauninu. Þetta er voðalega sorglegt fyrir okkur Hafnfirðinga, þetta er búið að vera frábær verslun frá fyrstu tíð.“

Auður Daníelsdóttir forstjóri Dranga móðurfélags Samkaupa segir hinsvegar að Hafnfirðingar hafi ekkert að óttast. „Verslunin, Fjarðarkaup, hún rímar mjög vel við okkar áherslur og þarna sér maður að viðskiptavinurinn er svo sannarlega í fyrsta sæti. Og ég held að við hjá Samkaupum og Dröngum getum lært mikið af rekstri Fjarðarkaupa og þetta eru góðar vörur, það er góð þjónusta. Fólki líður vel að koma inn, það er vel tekið á móti fólki. Þetta er ákveðinn samkomustaður líka.“

Fjarðarkaup séu eitt þekktasta vörumerki landsins og segir Auður Samkaup meðvitað um hvað fyrirtækið sé með í höndunum. 

„Þannig að okkar markmið er svo sannarlega að veita framúrskarandi þjónustu áfram eins og fjölskyldan og starfsmenn hafa gert fram að þessu. Þannig að við erum mjög meðvituð um það og við erum bara spennt fyrir því að læra inn á það sem að hefur verið í boði hjá Fjarðarkaupum og áfram fyrir þær sem þau hafa verið á í að veita góða þjónustu, gott úrval og gæði.“

Áformað sé að efla þjónustu í versluninni með opnun apóteks Lyfjavals og síðan opnun bakarísins Brauð og co auk sérverslunar Kjötkompanís.

„Það liggur fyrir að það þarf að fara í endurbætur á húsnæðinu og það er í raun og veru okkar næstu skref. Þannig að við viljum bara umfram allt halda áfram að veita Hafnfirðingum og öðrum sem sækja Fjarðarkaup heim góða þjónustu, gott úrval. Þannig að við ætlum bara að viðhalda góðum rekstri á þessu svæði.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×