Sport

Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg

Stefán Árni Pálsson skrifar
Fréttamaður sýndi Gísla Þorgeiri atvikið þegar Hjörvar Hafliðason gaf Freddie Ljunberg fyrrum leikmanni Arsenal landsliðstreyjuna .
Fréttamaður sýndi Gísla Þorgeiri atvikið þegar Hjörvar Hafliðason gaf Freddie Ljunberg fyrrum leikmanni Arsenal landsliðstreyjuna . vísir/sigurjón

Íslenska landsliðið í handbolta mætir Úkraínu í undankeppni EM í Laugardalshöllinni á miðvikudagskvöldið. Strákarnir okkar eru mættir til landsins og æfðu fyrir hádegi í Safamýrinni.

Gísli Þorgeir Kristjánsson er klár í leikinn gegn Úkraínumönnum en viðurkennir að hann viti ekki mikið um liðið.

„Þessir leikir leggjast mjög vel í mig. Auðvitað er bara alltaf mikil tilhlökkun að koma einhvern veginn saman landsliðið,“ segir Gísli.

„Ég ætla bara að vera alveg hreinskilinn. Ég hef ekki séð mikið af þeim og bara satt að segja þá eigum við að gera kröfur að vinna þetta lið og setja smá standard.“

Hann er sammála því að Ísland ætti að fara nokkuð þægilega á Evrópumótið.

„Þegar maður lítur á hvaða stað við vorum síðasta janúar, við dettum nú bara út á móti besta landsliði heims og vorum í mjög jöfnum leik í fimmtíu mínútur. Ég held að það sýni bara svona standardinn sem við viljum vera á, að vera þarna upp með þessum bestu liðum í heimi og við viljum bara halda áfram á þeirri vegferð.“

Athygli vakti í gær þegar Hjörvar Hafliðason mætti með landsliðstreyju íslenska landsliðsins á Anfield og gaf Arsenal-goðsögninni Fredrik Ljungberg hana. Svíinn er mikill aðdáandi handbolta og var hann mjög glaður með gjöfina.

„Nei, bíddu, hvað?,“ segir Gísli og heldur áfram.

„Var hún eitthvað merkt eða? Ég þarf að tékka á þessu.“

Klippa: Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg



Fleiri fréttir

Sjá meira


×