Erlent

Fram­tíð Trump í húfi á kjör­degi í Banda­ríkjunum

Smári Jökull Jónsson skrifar
Fyrstu kjörstaðir opna fyrir hádegi að íslenskum tíma.
Fyrstu kjörstaðir opna fyrir hádegi að íslenskum tíma. Vísir/Getty

Bandaríkjamenn ganga að kjörborðinu í dag í kosningum sem gætu haft mikil áhrif á seinni tvö ár kjörtímabils Donalds Trump. Samkvæmt könnunum hafa kjósendur mestar áhyggjur af auknum kostnaði í samfélaginu en kosningarnar koma á erfiðum tíma fyrir Repúblikanaflokkinn.

Á tíma þegar verð á matvöru og eldsneyti hefur rokið upp úr öllu valdi, meðal annars vegna ákvarðana Trump um tolla og átakanna í Íran, má búast við að margir muni kjósa með veskinu.

Trump hefur tekið virkan þátt í kosningabaráttunni en vinsældir hans hafa aldrei verið minni. Hefur hann oft á tíðum valið að mæta í kosningafundi í ríkjum þar sem búist er við sigri Repúblikana en hann var á fundum í Iowa og Kansas síðustu daga. Þá hafa Repúblikanir eytt hundruðum milljónum dollara í herferðir í ríkjum þar sem Repúblikanir hafa í sögulegu samhengi oftast unnið þægilega sigra.

Samkvæmt könnunum er nánast öruggt að Demókratar nái meirihluta í fulltrúadeild bandaríska þingsins en spennan er öllu meiri í öldungadeildinni en Demókratar hafa þó verið sjónarmun á undan í mörgum ríkjum þar. Fari svo að Demókratar nái meirihluta í báðum þingdeildum mun það hafa töluverð áhrif á seinni hluta kjörtímabils Trump.

Alls er kosið um öldungadeildarsæti í 35 ríkjum þar sem þrettán eru núna í höndum Demókrata en 22 í höndum Repúblikana. Í mörgum þeirra þykja úrslitin nánast örugg en spálíkön fjölmiðla benda til þess að mest spennandi ríkin séu nokkur.

Demókratar þurfa meðal annars að halda sætum sínum í Georgíu, Minnesota, New Hampshire og Michigan og það þykir ekki algjörlega öruggt. Auk þessara ríkja þurfa þeir að ná sætum af Repúblikönum í að minnsta kosti fjórum ríkjum en meðal þeirra ríkja sem Demókratar telja sig eiga séns eru Norður-Karólína, Maine, Alaska, Iowa, Texas, Ohio og Kansas.

Fyrstu kjörstaðir munu opna í Vermont klukkan 10 að íslenskum tíma en kjósendur í fleiri ríkjum á Austurströndinni, New Jersey, Virginíu, Connecticut og Kentucky geta  byrjað að kjósa klukkan 11. Yfir 230 milljón kjósendur eru á kjörskrá í landinu öllu en auk kosninga til beggja deilda þingsins fara fram kosningar um ríkisstjóra í fjölmörgum ríkjum.


Tengdar fréttir

„Rannsóknar­nefndir verða stofnaðar“

Mjög miklar líkur eru á að Demókratar vinni sigur í báðum þingdeildum í Bandaríkjunum í kosningum á þriðjudag að sögn sérfræðings um bandarísk stjórnmál. Fari svo þá blasi við að stofnaðar verði rannsóknanefndir sem muni skoða embættisaðgerðir Trump Bandaríkjaforseta og ríkisstjórnar hans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×