Íslenski boltinn

KA hættir sam­starfinu við Þór og kvennalið Þór/KA heyrir sögunni til

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Leikmenn Þór/KA fagnar marki í Bestu deild kvenna í sumar.
Leikmenn Þór/KA fagnar marki í Bestu deild kvenna í sumar. Vísir/Guðmundur

Þór/KA verður ekki með á Íslandsmótinu í knattspyrnu á næsta ári því KA hefur tekið þá ákvörðun að endurnýja ekki samstarfssamning sinn við KA. KA og Þór munu nú tefla fram sérliðum alveg eins og þau gera hjá körlunum.

KA og Þór hafa um árabil staðið saman að rekstri kvennaknattspyrnu á Akureyri í 3. flokki, 2. flokki og meistaraflokki kvenna. Samstarfssamningur félaganna rann sitt skeið á enda 15. október síðastliðinn og nú er ljóst að hann verður ekki endurnýjaður en þetta kemur fram í tilkynningu frá KA.

Þór/KA hefur meðal annars unnið tvo Íslandsmeistaratitla í kvennaflokki, þann fyrri árið 2012 og þann seinni árið 2017.

„Að baki ákvörðuninni liggur sú framtíðarsýn KA að kvennaknattspyrna verði hornsteinn í starfi félagsins og að stúlkur sem hefja æfingar hjá KA fái tækifæri til að leika undir merkjum félagsins alla leið upp í meistaraflokk,“ segir í frétt á miðlum KA.

Frá og með næsta tímabili munu KA og Þór tefla fram eigin liðum í 3. flokki, 2. flokki og meistaraflokki kvenna.

„Félagið lítur björtum augum til þessa nýja kafla og hlakkar til að byggja upp öflugt, faglegt og skemmtilegt kvennastarf sem KA-fólk getur verið stolt af,“ segir í frétt á miðlum KA.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×