Smára-stjórnin kynnt til leiks
Ný ríkisstjórn í Danmörku hyggst lækka virðisaukaskatt á matvæli um helming, afnema virðisaukaskatt á ávexti og grænmeti og stefna að því að tannlækningar verði ókeypis innan tíu ára. Mette Fredriksen, sem gerir ráð fyrir að verða forsætisráðherra og hefur þar með sitt þriðja kjörtímabil sem slíkur, greindi Danakonungi í gær frá því að fjórir flokkar frá miðju að vinstri væng hefðu komið sér saman um myndun ríkisstjórnar