Mikið tjón á Hótel Skjalbreið
Kristófer Oliversson, forstjóri Center Hotel, var vakinn í nótt vegna bruna á einu hótelanna í miðbænum. Hann segir skemmdir töluverðar en gestir hafi fengið inni á öðrum hótelum þeirra. Einn var handtekinn í nótt og tveir fluttir á slysadeild.