Erna Hrönn: Tími kassettunnar runninn upp!
Á þessum frábæra föstudegi kemur út platan „Too Much Not Enough“ með Daða Frey og ekki aðeins á vínyl heldur einnig geisladisk og kassettu. Hann kíkti í spjall með Árnýju sinni þar sem margt skemmtilegt var rætt og mikið hlegið. Útgáfunni verður fagnað með partýi í kvöld þar sem Daði þeytir skífum á Pablo Discobar. Framundan er svo tónleikaferðalag í haust um Bandaríkin og Kanada og svo spennandi tónleikar með Sinfó í kjölfarið.