Umræðan ekki verið nægilega málefnaleg
Allir þeir sem fréttastofa ræddi við á förnum vegi í dag voru sammála um að umræðan fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna hefði ekki verið nægilega málefnaleg og erfitt að treysta á réttar upplýsingar. Flestir voru þó búnir að gera upp hug sinn.