Játar að hafa banað dóttur sinni

Sigurður Fannar Þórsson hefur játað að hafa orðið tíu ára dóttur sinni að bana í grennd við Krýsuvík í september í fyrra. Aðalmeðferð hófst í máli hans í Héraðsdómi Reykjaness í morgun en Rúv greindi frá játningu Sigurðar nú fyrir stundu. Dómshald fór fram fyrir luktum dyrum, en samkvæmt mati geðlækna var Sigurður Fannar sakhæfur á verknaðarstundu. Fjölskipaður héraðsdómur hefur lokaorðið um hvort hann teljist sakhæfur.

14
00:33

Vinsælt í flokknum Fréttir