Erna Hrönn: Ein línan í textanum lét bíða eftir sér í heilt ár
Þjóðargersemin Magnús Þór kíkti í spjall og leyfði hlustendum að heyra fallega lagið „Í timburhúsi við malargötu“ sem hann gaf út fyrir skömmu með Jóhanni Helgasyni. Saga Magnúsar og Jóhanns spannar áratugi og í sumar voru þeir útnefndir listamenn Reykjanesbæjar sem Magnús sagði vera mikinn heiður. Hlustaðu á einlægt spjall við yfirburðamann í tónlistarsköpun sem segir lagasmíðar vera stundarfyrirbrigði og mikilvægt að vera vakandi og grípa augnablikin sem koma til manns.