Íslenskir kórar í Kaupmannahöfn héldu jólatónleika
Fjórir íslenskir kórar í Kaupmannahöfn héldu í gær jólatónleika í Kristjánsborgarhallarkirkjunni sem Benedikta prinsessa sótti meðal annarra. Tónleikarnir voru haldnir í samstarfi við íslenska sendiráðið í Kaupmannahöfn en kórarnir sungu íslensk og dönsk jólalög og -sálma í bland. Kvennakórarnir Dóttir og Eyja stigu á stokk í kirkjunni, karlakórinn Hafnarbræður og kammerkórinn Staka. Tónleikarnir voru afskaplega vel sóttir og kirkjan stútfull.