Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Á venjulegum miðvikudegi í ágúst væru sex lögreglumenn á vakt á öllum Vestfjörðum. Sem viðbragð við almyrkvanum 12. ágúst verður lögregluþjónum á vakt fjölgað um sextán sem er nánast fjórfalt á við venjulegan dag. Umferðarstýring verður víða og verður að hámarki þrjú þúsund bílum leyft að keyra vestur að Látrabjargi. Innlent 11.8.2026 20:56
Leita svara við aldargamalli ráðgátu sólarinnar Vísindamenn á vegum geimvísindastofnunar Bandaríkjanna, NASA, eru staddir hér á landi til að nýta almyrkvann á morgun með það að markmiði að rannsaka hvers vegna ysti lofthjúpur sólarinnar er margfalt heitari en yfirborð hennar. Fjórar myndavélar um borð í rannsóknarþotu NASA munu mynda kórónu sólarinnar úr fimmtán kílómetra hæð. Innlent 11.8.2026 18:32
Kveikt á götulýsingu í sólmyrkva á stofnbrautum Í samráði við lögregluna og vegna umferðaröryggis verður kveikt á götulýsingu á stofnbrautum á höfuðborgarsvæðinu þar sem leyfður umferðarhraði er 60 kílómetrar á klukkustund eða meiri á meðan almyrkvi á sólu gengur yfir á morgun, 12. ágúst. Innlent 11.8.2026 14:57
Fyrir fólk sem búi á almyrkvaslóðinni sé nóg að „vera úti í garði og upplifa allt“ Innlent 10.8.2026 20:32
Ætlar að hafa lokað þrátt fyrir tífaldan íbúafjölda Mikil spenna er á öllu vestanverðu landinu fyrir almyrkvanum á miðvikudag. Veitingamaður á Hellissandi ætlar að hafa lokað til að njóta sjálfur og leyfa starfsfólki sínu að upplifa þennan sögulega viðburð. Innlent 10. ágúst 2026 13:00
Þurfa dýr að vera með sólmyrkvagleraugu þann 12. ágúst? Það er tiltölulega fyrirsjáanlegt hver viðbrögð mannfólks verða þann 12. ágúst þegar tunglið hylur sólina algjörlega og við upplifum örstutta nótt. Sumir munu reka upp stór augu, aðrir skella upp úr og einhverjir munu án efa fella tár. Hvernig dýr munu bregðast við er hins vegar ekki eins augljóst. Innlent 10. ágúst 2026 12:54
Aukinn viðbúnaður vegna almyrkva á Reykjanesi Lögreglan á Suðurnesjum, björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Brunavarnir Suðurnesja og Slökkvilið Grindavíkur verða með aukinn viðbúnað vegna almyrkvans á sólu miðvikudaginn 12. ágúst. Á Reykjanesi og verður almyrkvinn allt frá tveimur mínútum til 1.45. Innlent 10. ágúst 2026 11:37
Bjart og milt í dag og allt að nítján stiga hiti Í dag er spáð hægri breytilegri átt og að það verði léttskýjað um mestallt land, en líkur á stöku skúrum með kvöldinu inn til landsins. Hlýnar, einkum fyrir norðan og austan og hiti víðast 12 til 19 stig yfir daginn. Veður 10. ágúst 2026 08:26
Ljónið, Karlsvagninn og reikistjörnur gætu stolið senunni þann 12. ágúst Þann 12. ágúst næstkomandi munu augu allra landsmanna beinast að himni, eða í það minnsta flestra. Þegar næturmyrkur skellur á löngu fyrir sólsetur gæti fólk komið auga á í það minnsta fjórar reikistjörnur og næstum því eins mörg stjörnumerki. Einhverjir munu eflaust freistast til að slíta augun af almyrkvanum til að virða eitt eða fleiri þeirra fyrir sér. Innlent 9. ágúst 2026 11:33
Minnast almyrkvans 1954: „Mér fannst þetta alveg nauðaómerkilegt fyrirbæri“ Almyrkvi sást síðast á Íslandi árið 1954 og samkvæmt heimildum sást hann einna best í Vestmannaeyjum. Eyjamennirnir Hávarður Birgir Sigurðsson og Svavar Steingrímsson muna vel eftir því þegar almyrkvinn skall á. Eftirminnilegast þykir þeim hvernig umhverfið hljóðnaði og dýr lögðust til svefns. Lífið 9. ágúst 2026 09:00
Nýjasta sólmyrkvaspáin gefur ívið betri fyrirheit Útlit er fyrir að skil fari yfir landið á miðvikudaginn, þann 12. ágúst, og er reiknað með að skýjað verði víða en nýjustu spár herma að skýjahulan gæti brotnað upp staðbundið, einkum þegar tekur að kvölda. Í dag má búast við dálítilli vætu og svölu veðri á norðanverðu landinu en sunnan- og vestanlands verður bjart og hlýrra en hiti fer víða yfir tíu stig. Veður 9. ágúst 2026 07:24
72 ár síðan síðast en 170 ár þar til næst Þann 29. október árið 878 sást fyrsti almyrkvi sem samtímaheimildir eru um hérlendis en hann gekk yfir Bjargtanga, ytri hluta Snæfellsness og Reykjanesskaga um kl. 12:55. Síðan þá hafa ellefu almyrkvar sést frá Íslandi en þann 12. ágúst næstkomandi mun sá tólfti ganga yfir. Þá tekur við löng bið fram að þeim næsta. Innlent 8. ágúst 2026 11:30
Hægt að nálgast staðarspár fyrir almyrkvaslóðir á sérstöku spásvæði Nýtt spásvæði vegna sólmyrkvans miðvikudaginn 12. ágúst hefur verið gert landsmönnum aðgengilegt en fyrstu veðurspár benda til þess að skil gangi yfir landið með úrkomu og talsverðri skýjahulu. Þá hefur mikið verið rætt um það hvernig dagurinn spilist ef skýjahula dreifist yfir landið stóra sólmyrkvadaginn og því eflaust margir sem munu heimsækja spásvæðið. Innlent 7. ágúst 2026 16:33
Óvissa með sólmyrkvaveður Mikil óvissa er um veðrið á sólmyrkvanum á miðvikudag. Veðurfræðingur segir erfitt að spá í skýjafarið. Skýin ættu ekki að skemma sólmyrkvann en hafa töluverð áhrif á upplifunina að mati stjörnufræðings. Innlent 7. ágúst 2026 12:40
Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ólíkur þeim sem var árið 2015? Almyrkvar á sólu eru sjaldgæfir atburðir á hverjum stað á jörðinni, þar sem skugginn fellur aðeins á lítið takmarkað svæði. Fræðilega séð gætu almyrkvar lengst varað í 7 mínútur og 31 sekúndu en venjulega eru þeir ekki lengri en 2-4 mínútur. En hver er munurinn á almyrkva, deildarmyrkva og hringmyrkva? og hvað er eiginlega sólmyrkvi? Innlent 7. ágúst 2026 11:31
Ekki rétt að börn þurfi að bera gleraugun allan tímann Sævar Helgi Bragason, betur þekktur sem Stjörnu-Sævar, segir það ekki rétt að börn yngri en tólf ára þurfi að nota gleraugu allan tímann á meðan almyrkvinn stendur yfir þann 12. ágúst. Innlent 7. ágúst 2026 09:46
Veðurvélin á leið á Hellissand fyrir almyrkvahátíð Á Hellissandi rís nú hátíðarsvæði þar sem stefnt er á að taka á móti þúsundum erlendra og innlendra gesta á tónlistar- og viðburðahátíðina Iceland Eclipse. Von er á veðurvél til að tryggja gott veður. Skipuleggjandi segir að búið sé að hugsa fyrir öllu. Fólki verði skutlað í verslun og sund og tiltekt sé þaulskipulögð á meðan og eftir viðburð. Tónlist 6. ágúst 2026 20:00
Venjuleg sólgleraugu duga ekki til þann 12. ágúst Það þarf ekki að vera heiðskírt, né þarf að vera með kíki til þess að virða sjónarspilið fyrir sér þegar Íslendingar og aðrir sem eru staddir á landinu fá færi á að upplifa einhverja allra fallegustu sýningu náttúrunnar, almyrkva á sólu. Aftur á móti er nauðsynlegt að útvega sér þartilgerð sólmyrkvagleraugu til að vernda augun gegn skaðlegum geislum sólarinnar á meðan deildarmyrkva stendur. Innlent 6. ágúst 2026 11:32
Hvað ef það verður skýjað þegar almyrkvinn verður? Margir hafa látið hugfallast af tilhugsuninni um að almyrkvi skelli á sólu á þessu landi þar sem sólin virðist oft ótíður gestur. Þjóðin þarf þó ekkert að örvænta að mati Stjörnu-Sævars enda þótt illa viðri munum við upplifa skyndilegt svartnætti um hábjartan dag. Innlent 5. ágúst 2026 11:31
Good Morning America í beinni frá Bláa lóninu á almyrkva Bandaríski sjónvarpsþátturinn Good Morning America í samvinnu við ABC News verður með beina útsendingu frá Bláa lóninu á Íslandi miðvikudaginn 12. ágúst þegar almyrkvi að sólu gengur yfir vestanvert Ísland. Lífið 5. ágúst 2026 10:41
Útsýnispallurinn talinn öruggur þrátt fyrir sprungur Bæjarstjóri Bolungarvíkurkaupstaðar segir útsýnispall á Bolafjalli alveg öruggan þrátt fyrir að sprungur séu í glerveggjum þess. Til stendur að bæta veginn upp fjallið en alvarlegt slys varð þar fyrir um viku. Innlent 4. ágúst 2026 14:07
Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Veginum upp að útsýnispalli Bolafjalls verður lokað 12. ágúst næstkomandi þegar almyrkvi verður á sólu. Búist er við mikilli aðsókn ferðamanna á Vestfirði en almyrkvinn verður aðeins sýnilegur á landinu vestanverðu. Innlent 3. ágúst 2026 07:01
Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Umfangsmiklar götulokanir verða í Vesturbænum og á Seltjarnarnesi á meðan almyrkvi á sólu sést yfir vesturhluta landsins í ágúst. Hátt í 80 þúsund ferðamenn verða á landinu á meðan á almyrkvanum stendur. Einn helsti stjörnuáhugamaður landsins ætlar sjálfur að fylgjast með sólmyrkvanum heima hjá sér í Reykjavík. Innlent 28. júlí 2026 19:57
Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Viðbragðsaðilar og fjarskiptafélög hafa lagst á eitt til þess að styrkja fjarskiptakerfið á Íslandi í kringum almyrkva á sólu. Þá hefur Neyðarlínan einnig gefið út varanúmer sem hægt er að hringja í ef ekki næst samband við 112. Neytendur 24. júlí 2026 13:12
Mikil eftirspurn eftir miðum á Eclipse Festival - „Augnablik sem aldrei gleymist“ „Við erum þegar búin að selja stóran hluta af miðunum enda gríðarlegur áhugi frá fólki sem vill koma til Íslands og upplifa eitthvað alveg einstakt. Hátíðir sem byggja á almyrkva hafa sterkt aðdráttarafl fyrir fólk sem sækist eftir óvenjulegri upplifun,“ segir Jón Bjarni Steinsson, einn af forsvarsmönnum Iceland Eclipse hátíðarinnar sem haldin verður á Hellissandi á Snæfellsnesi dagana 11. til 15. ágúst. Lífið samstarf 24. júlí 2026 09:51