Mjólkurlítrinn á Íslandi sagður kosta 380 krónur
Fulltrúa samtakanna SJÁ, sem berjast fyrir því að þjóðin greiði atkvæði með því að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný, varð á í messunni í myndskeiði á Instagram þegar hann sagði mjólkurlítrann á Íslandi kosta 380 krónur. Hið rétta er að í Bónus kostar hann 234 krónur.