Flugmenn í krefjandi hliðarvindslendingum
Flugmenn hafa mátt takast á við krefjandi hliðarvindslendingar á Reykjavíkurflugvelli í dag. Flugrekstrarstjóri Norlandair segir sorglegt að flugmenn séu settir í þessar aðstæður og hefur flugfélagið sótt um undanþágu fyrir sjúkraflug til lendinga.