Stefnumót öldunga
Samflug tveggja þrista yfir Reykjavík og Vesturlandi í fyrrakvöld vakti mikla athygli og um tíma voru aðeins um þrjátíu metrar á milli vélanna. Myndir frá fluginu voru sýndar í fréttum Stöðvar 2 og rætt við Tómas Dag Helgason, formann Þristavinafélagsins, og Francisco Agullo, flugstjóra svissneska Breitling-þristsins.