Vigdís segir forseta ekki eiga að fara gegn vilja Alþingis
Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi forseti Íslands segir í viðtali sem Stöð 2 sýnir í kvöld, að forseti hverju sinni ætti ekki að fara gegn meirihlutavilja Alþingis. Forsetaembættið sé mikilvægt sameiningartákn þjóðarinnar á gleði- og sorgarstundum.