Hundurinn Þekla gaut ellefu hvolpum
Íslenska tíkin Þekla gaut nýverið ellefu hvolpum, sjö tíkum og fjórum rökkum. Eigandinn kveðst aldrei hafa vitað af íslenskum fjárhundi sem hefur átt svona marga lifandi hvolpa í goti. Magnús Hlynur var í Landeyjum og þar var sannarlega mikið fjör.