Þrautaganga Ingva og fjölskyldu
Móðir fimmtán ára drengs með afar fjölþættan vanda segir algjört ráðaleysi ríkja gagnvart honum og fjölskyldunni í velferðarkerfinu. Mál hans hafi fyrst verið skoðað heilstætt þegar hann fékk alvarlegt flogakast þá ellefu ára gamall. Fjölskyldan hefur miklar áhyggjur af afdrifum hans og kallar eftir úrræðum.