Játaði óvænt að hafa barið þrjá fangaverði

Gabríel Douane Boama breytti framburði sínum og játaði óvænt að hafa barið þrjá fangaverði á Litla-Hrauni fyrir tæpum tveimur árum þegar aðalmeðferð í máli hans hófst í héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Þrjár ákærur á hendur Gabríel voru sameinaðar í einu máli sem nú er til meðferðar. Ein þeirra varðar árás á fangverðina, önnur varðar meiri háttar líkamsárás gagnvart samfanga og sú þriðja er í sex liðum og varðar ofbeldis- og fíkniefnalagabrot, hótanir og rán. Ýmis vitni komu fyrir dóminn í dag og gáfu skýrslu en málflutningur fer fram á morgun.

22
00:40

Vinsælt í flokknum Fréttir