Ísland í dag - Ljótasti garður landsins. Hvað er til ráða.

Blaðakonan flotta Erna Ýr Guðjónsdóttir segist líklega vera með ljótasta garð landsins. En hún fékk garðahönnuðinn virta og landsþekkta hana Evu Ósk Guðmundsdóttur til þess að koma með snilldar hugmyndir til að gera garðinn mjög fallegan og notalegan með heitum potti, útieldhúsi og ýmsu skemmtilegu sem hægt er að njóta bæði um sumar og vetur. Erna Ýr vinnur sem blaðamaður á sérblöðum Morgunblaðsins þar sem hún er iðulega með greinar sem vekja verðskuldaða athygli og Eva Ósk hefur slegið þvílíkt í gegn með sínum verkefnum sem garðahönnuður þar sem hún hefur sjálf til dæmis smíðað útieldhús við sumarbústaðinn sinn og hún og maður hennar Valgarður gerðu stóran garð þeirra hjóna í Hafnarfirði alveg einstakan með pöllum og útieldhúsi með bar og fleiru sem vakið hefur athygli. Vala Matt fór fyrir Ísland í dag og fékk að sjá hvaða ráð Eva Ósk gaf Ernu með þennan ljóta garð sinn.

7
14:54

Vinsælt í flokknum Ísland í dag