CCP náði í fyrstu atrennu og fleiri íslensk fyrirtæki hafa áhuga Það ferli að fá vottunina Great Place to Work var afar langt og strangt segir Erna Arnadóttir VP of People hjá CCP. Hún segir það samt hafa verið vel þess virði að fara í gegnum það ferli enda er CCP að keppa um mjög eftirsótta starfskrafta. Atvinnulíf 27. nóvember 2020 07:00
Hart barist um allar lausar stöður á næstunni Ástandið minnir um sumt á mánuðina eftir bankahrun þar sem barist er um hvert starf sem auglýst er. Atvinnulífið á Vísi ræddi við nokkra vinnuveitendur sem eiga það sameiginlegt að hafa auglýst nokkur störf síðustu vikurnar. Atvinnulíf 26. nóvember 2020 07:00
Brjálað að gera í kjölfar Covid og ný störf að verða til Ný störf eru að verða til og margt hefur breyst í kjölfar Covid. Erfiðara er að komast í atvinnuviðtal nú þar sem margir eru um hituna fyrir hvert auglýst starf. En hjá ráðningaþjónustum er brjálað að gera. Atvinnulíf 25. nóvember 2020 10:01
„Lykilatriðin núna eru að nýta tímann þar til bóluefnið er komið“ Fjöldi einstaklinga á atvinnuleysisbótum jókst um 100% í öllum landshlutum nema á Vestfjörðum. Birna Guðmundsdóttir deildarstjóri Gagnagreiningar Vinnumálastofnunar gerir ráð fyrir að janúar og febrúar gætu orðið erfiðir mánuðir. Hér má sjá nýjar tölur sem Vinnumálastofnun tók saman fyrir Atvinnulífið á Vísi. Atvinnulíf 25. nóvember 2020 07:01
Fólk beðið um að senda ekki stutta og óþarfa tölvupósta Hér eru átta dæmi um tölvupósta sem fólk er hvatt til að hætta að senda sín á milli því allir tölvupóstar skilja eftir sig kolefnisfótspor. Atvinnulíf 24. nóvember 2020 07:00
Slógu til árið 2010 og velta nú á annan milljarð Bjarki Viðar Garðarsson og Pétur Hannes Ólafsson kynntust þegar þeir störfuðu báðir að uppbyggingu íslenskra fyrirtækja í Hong Kong. Með þeim tókst strax góður vinskapur og yfir kaffibolla á Starbucks ákváðu þeir að stofna sitt eigið fyrirtæki. Onanoff veltir nú um 1,3 milljarði og stefnir veltan í tvo milljarða á næsta ári. Atvinnulíf 23. nóvember 2020 07:00
Það þýddi ekkert að leggjast í þunglyndi og gefast upp Það þýddi ekkert annað en að draga punginn upp og hugsa eins og karlmaður segir Þórdís Helgadóttir um fundinn með bankastjóranum þegar hún vildi fjármagna fasteignakaup fyrir reksturinn. Þórdís og dætur hennar eru í helgarviðtali Atvinnulífsins að þessu sinni en Þórdís keypti hárgreiðslustofu árið 1985 og stofnaði síðan heildverslunina Þórborgu árið 2012. Atvinnulíf 22. nóvember 2020 08:01
Er stundum morgunfúl en dreymir um að vakna eldhress Rósa Guðný Þórsdóttir leikkona og leikstjóri er gestur kaffispjallsins þessa helgina. Hún viðurkennir að vera stundum morgunfúl en dreymir um að vakna eldhress á morgnana og dansa fram í eldhús. Atvinnulíf 21. nóvember 2020 10:00
Fimm ráð fyrir þá sem vilja líta vel út á fjarfundum Það eru nokkur atriði sem fólk ætti að huga að áður en það situr fjarfundi. Til dæmis lýsingin og í hvaða hæð myndavélin á tölvunni er. Atvinnulíf 20. nóvember 2020 07:01
„Ekki bara sitja og hugsa heldur standa upp og fara að gera“ Tengslanetið og fjármögnun eru erfiðasti hjallinn fyrir konur í nýsköpun segja þær Fida Abu Libdeh og Sandra Mjöll Jónsdóttir, en þær eru meðal leiðbeinanda AWE viðskiptahraðalsins sem nú stendur til boða á Íslandi. Atvinnulíf 19. nóvember 2020 07:00
Vélrænt nám mun hafa áhrif á öll fyrirtæki Vélrænt nám mun hafa áhrif á öll fyrirtæki, stór sem smá og það er ekki eftir neinu að bíða með að nýta sér þessa tækni. Sem dæmi má nefna hvernig vélrænt nám getur dregið úr brottfalli viðskiptavina. Atvinnulíf 18. nóvember 2020 07:01
Aðeins toppurinn á ísjakanum sjáanlegur í kjölfar Covid Vinnustaðir eru aðeins að sjá toppinn á ísjakanum hvað varðar áhrif Covid á líðan starfsfólks. Einangrunin, fjarvinnan og samkomubann eru allt atriði sem eru að hafa áhrif á fólk sem ekki sér alveg fyrir endann á enn þá hvaða afleiðingar muni hafa. Atvinnulíf 17. nóvember 2020 07:01
Klikkuð hugmynd sett í framkvæmd og varan seldist upp Umfjöllun um Omnom í þætti Zac Efron síðastliðið sumar hafði mikil og jákvæð áhrif segja þeir Kjartan Gíslason og Óskar Þórðarson hjá Omnom sem nú vinnur að frekari útrás. Atvinnulíf 16. nóvember 2020 07:01
Það breyttist allt með Covid Það hefur margt breyst síðustu áratugina í útförum að sögn Rúnars Geirmundssonar útfaraþjónustu. En það breyttist allt með Covid. Í helgarviðtalinu þessa helgina fáum við að heyra söguna á bakvið Útfaraþjónustu Rúnars Geirmundssonar sem stofnuð var árið 1990. Atvinnulíf 15. nóvember 2020 08:01
„Allt of mikill tími í þinginu sem fer í ekki neitt“ Þorsteinn Víglundsson segir þrjá espresso þurfa alla morgna til að rífa sig í gang. Honum leiðist tímasóun og segir hana of mikla á þingi. Að sitja á þingi sé þó mikill heiður. Í forstjórastarfinu í dag eru það hins vegar umhverfismálin sem eru hvað brýnust. Atvinnulíf 14. nóvember 2020 10:00
Ráð fyrir stjórnendur sem vilja vita hvernig starfsfólkinu líður Það getur verið erfið áskorun fyrir stjórnendur að hlusta nægilega vel. Enda eru stjórnendur oft málglaðari einstaklingar en starfsfólk almennt. Að hlusta vel er samt lykilatriði ef stjórnendur vilja fylgjast með líðan og tilfinningum starfsfólks. Atvinnulíf 13. nóvember 2020 07:00
„Ég sæki kraft, hugmyndir og gleði“ Gestir Heimsþings kvenleiðtoga segja þingið afar mikilvægt fyrir stjórnendur í atvinnulífinu og alla umræðu um jafnréttismálin. Þangað sækja stjórnendur sér fræðslu, þekkingu, dæmisögur, niðurstöður rannsókna auk innblásturs, kraft og gleði. Atvinnulíf 12. nóvember 2020 12:26
Ungt fólk sækir í störf hjá fyrirtækjum sem hlúa að jafnrétti og sjálfbærni Bjarney Harðardóttir, einn eigenda 66°Norður segir reynslu fyrirtækisins vera að ungt fólk sækist í störf hjá fyrirtækjum sem vinna að því að vera fyrirmyndir í jafnréttis- og sjálfbærnimálum. Bjarney segist þeirrar skoðunar að fyrirtæki sem ekki huga að þessum málum muni tilheyra fortíðinni. Atvinnulíf 12. nóvember 2020 09:31
Jafnréttismálin í útrás til Evrópu og Bandaríkjanna Þórey Vilhjálmsdóttir segir fyrirtækið Empower stefna á útrás með jafnréttismálin. Sérstaklega er horft til Evrópu og Bandaríkjanna. Í viðtali nefnir Þórey nokkur dæmi um algengar birtingarmyndir á kynbundnum fordómum á vinnustöðum. Atvinnulíf 11. nóvember 2020 12:22
„Eigum samt enn langt í land“ Hanna Birna Kristjánsdóttir stjórnarformaður Heimsþings kvenleiðtoga segist afar stolt af þeim árangri sem Ísland hefur náð í jafnréttismálum. Staðan sé þó enn ekki nógu góð og hindranir meðal annars þær að enn hvíla heimilisstörf og barnauppeldi mun þyngra á konum en körlum. Atvinnulíf 11. nóvember 2020 07:00
„Ekki vera eitthvað fyrir alla, vertu allt fyrir einhverja“ Samkvæmt öllum fræðum er mikilvægt að sinna auglýsinga- og markaðsmálum á krepputímum. Fyrir mörg fyrirtæki, sérstaklega þau smærri, er þetta hægara sagt en gert. Við leituðum til Unnar Maríu Pálmadóttur hjá KVARTZ og báðum um nokkur góð ráð. Atvinnulíf 10. nóvember 2020 07:01
Eins og að fleygja sér út úr flugvél og smíða fallhlíf á leiðinni Tveir læknar réðust í nýsköpun fljótlega eftir bankahrun og stofnuðu fyrirtækið Sidekick. Í dag starfa þar fjörtíu starfsmenn og markmiðið er að þrefalda þann fjölda á næstu misserum. Atvinnulíf 9. nóvember 2020 07:00
„Ég skil eiginlega ekki mamma hvernig þú gast þetta allt“ Það hefur ansi margt breyst í verslunarrekstri frá því að Bryndís Brynjólfsdóttir stofnaði Lindina á Selfossi árið 1974. Verðlagseftirlit, háir tollar, gengisfellingar og gjaldeyrishöft. Í dag rekur Kristín Hafsteinsdóttir, dóttir Bryndísar, verslunina. Og þriðja kynslóðin hefur bæst við því sonur Kristínar, Bjarki Már Magnússon, hjálpar nú mömmu sinni með netverslunina tiskuverslun.is. Atvinnulíf 8. nóvember 2020 08:00
Í fimm ár hefur fjölskyldan vaknað fyrr og krakkarnir lesa fyrir foreldrana Thelma Kristín Kvaran er gestur kaffispjallsins þessa helgina. Hún segist vera mikil hundakona, viðurkennir að skipulagið hjá sér er skipulagt chaos og brennur fyrir jafnréttismálum. Atvinnulíf 7. nóvember 2020 10:00
Fatnaður í fjarvinnu: Kósý eða „casual“? Í fjarvinnunni hafa margir farið þá leið að vera betur til hafðir að „ofan“ en „neðan“ eða hreinlega vinna í joggingbuxum eða náttfötum alla daga. En hverju er mælt með? Atvinnulíf 6. nóvember 2020 07:00
Vísbendingar um heimilisofbeldi sem þú sem vinnufélagi ættir að vita af og hafa í huga Vinnustaðurinn er oft einu tengslin sem þolendur heimilisofbeldis hafa við samfélagið og þeir skipta miklu máli til að sporna við ofbeldinu segir Sigþrúður Guðmundsdóttir framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins meðal annars í viðtaliÞá getur samstarfsfól. k verið vakandi yfir vísbendingum um ofbeldi. Atvinnulíf 5. nóvember 2020 07:01
Fyrsti vinnustaðurinn til að sporna við heimilisofbeldi í Covid ISAL hefur nú innleitt aðgerðaráætlun til að sporna við heimilisofbeldi. Aðgerðaráætlunin byggir á nokkrum leiðum til að aðstoða starfsfólk sem gætu verið þolendur heimilisofbeldis til að stíga út úr þeim aðstæðum. Atvinnulíf 4. nóvember 2020 07:00
Covidþreytan í vinnunni og góð ráð Fjögur einkenni Covidþreytu sem þú mögulega upplifir að sé að hafa áhrif á þig í vinnunni og nokkur góð ráð. Atvinnulíf 3. nóvember 2020 07:01
Keypti fyrirtækið þremur vikum fyrir bankahrun Rödd lítilla fyrirtækja er of veik segir Hildur Guðnadóttir meðal annars í viðtali en hún keypti fyrirtækið Satúrnus þremur vikum fyrir bankahrun. Árið 2010 stofnaði hún síðan Ömmu Mús - handavinnuhús. Atvinnulíf 2. nóvember 2020 07:00