Saksóknarinn í málinu gegn Baldwin segir af sér Saksóknari sem haldið hefur utan um rannsókn yfirvalda í Nýju Mexíkó á dauða Haylynu Hutchins, sem leikarinn Alec Baldwin skaut til bana við tökur myndarinnar Rust, hefur sagt af sér. Það er eftir að lögmenn Baldwins héldu því fram að skipun hennar í embætti sérstaks saksóknara færi gegn stjórnarskrá ríkisins, þar sem Andrea Reeb, umræddur saksóknari, sæti einnig á þingi Nýju Mexíkó. Erlent 15. mars 2023 14:20
Bein útsending: Opinbera nýja búninga fyrir tunglferðir komandi ára Forsvarsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) og fyrirtækisins Axiom Space ætla að kynna nýja geimbúninga sem notaðir verða í Artemis áætluninni í dag. Um er að ræða búninga sem geimfarar munu væntanlega klæðast yfirborði tunglsins á komandi árum. Erlent 15. mars 2023 14:00
Deilt um markaðsleyfi þungunarrofslyfja í Bandaríkjunum Alríkisdómari í Amarillo í Texas mun í dag hlýða á málflutning í máli sem samtök andstæðinga þungunarrofs hafa höfðað gegn Matvæla- og lyfjastofnun Bandaríkjanna til að fá þungunarrofslyfið mifepristone bannað. Erlent 15. mars 2023 10:29
„Hvert einasta kyssti á mér rassinn“ Ný bók sem inniheldur bréf sem þjóðhöfðingjar og aðrir þekktir einstaklingar sendu Donald Trump áður eða eftir að hann varð forseti, mun sýna fram á að allir „kysstu á honum rassinn“, eins og hann komst að orði í samtali við Breitbart News í gær. Erlent 15. mars 2023 07:49
Sendiherra Rússa í Bandaríkjunum kallar uppákomuna „ögrun“ Anatoly Antonov, sendiherra Rússlands í Bandaríkjunum, sagði í samtali við ríkisfréttastofuna RIA í gær að atvik sem átti sér stað í gær þegar rússneskar herþotur höfðu afskipti af bandarískum dróna hefði falið í sér ögrun. Erlent 15. mars 2023 06:40
Rændi þrettán ára stelpu og læsti í skúr í tvær vikur Karlmaður í Norður-Karólínu fylki í Bandaríkjunum var á föstudaginn handtekinn grunaður um að hafa rænt þrettán ára stelpu, brotið gegn henni kynferðislega og læst hana inni í skúr í tvær vikur. Maðurinn á yfir höfði sér fjölda ákæra fyrir brot sín. Erlent 14. mars 2023 23:33
„Þetta er svona skjálfti sem ég held að gangi yfir“ Fjármálaráðherra segir eftirlit með bönkunum hafa verið eflt verulega á síðasta rúma áratug en hrun bandaríska bankans Silicon Valley sýni fram á mikilvægi þess að regluverkið um bankastarfsemi og fjármálafyrirtæki sér sterkt. Innlent 14. mars 2023 21:01
Lýsir innrásinni í Úkraínu sem „deilu um landsvæði“ Helsti áskorandi Donalds Trump um að verða forsetaefni Repúblikanaflokksins á næsta ári lýsir innrás Rússa í Úkraínu sem deilu um landsvæði. Hann telur það ekki brýna hagsmuni Bandaríkjanna að verja Úkraínu. Erlent 14. mars 2023 19:58
Rannsaka fall Kísildalsbankans Bandaríska dómsmálaráðuneytið rannsakar nú fall Silicon Valley Bank og gjörðir æðstu stjórnenda hans. Yfirvöld tóku bankann yfir eftir að áhlaup var gert á hann í síðustu viku. Gjaldþrot bankans er það næststærsta í sögu Bandaríkjanna. Viðskipti erlent 14. mars 2023 18:47
Rússar þvinguðu bandarískan dróna til nauðlendingar Bandaríski flugherinn sakar Rússa um glannaskap þegar rússnesk herþota þvingaði bandarískan eftirlitsdróna til þess að nauðlenda í Svartahafi í dag. Atvikið er það fyrsta á milli ríkjanna tveggja frá því að stríðið í Úkraínu hófst. Erlent 14. mars 2023 17:33
Segir aftur upp þúsundum manna Mark Zuckerberg, forstjóri Meta (áður Facebook) tilkynnti í dag að aftur væri verið segja upp fjölmörgum starfsmönnum fyrirtækisins. Að þessu sinni eru það tíu þúsund manns verið er að segja upp og á ekki að ráða í fimm þúsund lausar stöður. Viðskipti erlent 14. mars 2023 15:25
Sérfræðingar uggandi og Kínverjar æfir vegna AUKUS Stjórnvöld í Bandaríkjunum tilkynntu í gær formlega um samkomulag Bandaríkjanna, Bretlands og Ástralíu um þróun og framleiðslu kjarnorkuknúinna herkafbáta. Erlent 14. mars 2023 10:21
Bréf í bönkum taka dýfu Hlutabréf í bönkum hafa fallið talsvert í Asíu og í Evrópu þrátt fyrir staðhæfingar Bandaríkjaforseta um að bandaríska fjármálakerfið sé öruggt þrátt fyrir fall tveggja banka á örfáum dögum. Viðskipti erlent 14. mars 2023 07:16
Trump skellir skuldinni á Pence fyrir árásina á þinghúsið Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, heldur því fram að Mike Pence, þáverandi varaforseti sinn, hefði getað komið í veg fyrir ofbeldi stuðningsmanna Trumps við þinghúsið fyrir tveimur árum með því að hjálpa honum að snúa við úrslitum forsetakosninganna. Erlent 13. mars 2023 23:39
Traust á fjármálakerfinu ekki komið aftur eftir hrun Íslenskur hagfræðiprófessor segir að óróleiki vegna falls tveggja bandaríska banka bendi til þess að traust fólks á fjármálakerfinu sé ekki komið aftur þrátt fyrir að fimmtán ár séu liðin frá bankahruninu. Fátt bendi þó til þess að bankarnir hafi fallið vegna kerfislægs vanda. Viðskipti erlent 13. mars 2023 23:14
Hjartnæmt myndskeið sýnir mæðgur sameinaðar á ný eftir 29 ár Meðfylgjandi myndskeið hefur fangað hug og hjörtu netverja eftir að hin bandaríska Allie Murphy Seabock birti það á TikTok nú á dögunum. Þar má sjá augnablikið þegar móðir Allie og dóttirin sem hún gaf til ættleiðingar nær þremur áratugum áður eru sameinaðar á ný, og eins og vænta má eru endurfundirnir afar tilfinningaþrungnir. Lífið 13. mars 2023 20:01
Biden segir bankakerfið standa traustum fótum Joe Biden Bandaríkjaforseti fullyrti að bankakerfið væri traust þrátt fyrir fall tveggja banka á skömmum tíma. Landsmenn þyrftu ekki að hafa áhyggjur af innistæðum sínum og skattgreiðendur yrðu ekki látnir borga reikninginn. Viðskipti erlent 13. mars 2023 18:57
Mörg ríki Bandaríkjanna hyggjast banna dragsýningar Stjórnvöld í Tennesse í Bandaríkjunum hafa samþykkt lög sem banna dragsýningar. 10 ríki til viðbótar hafa lagt fram lagafrumvarp í svipuðum anda. Erlent 13. mars 2023 14:30
Gæti reynst erfitt að lögsækja Trump Michael Cohen, fyrrverandi einkalögmaður Donalds Trumps um árabil, mun bera vini fyrir sérstökum ákærudómstól í New York í dag. Trump sjálfum hefur einnig verið boðið að bera vitni fyrir þessum sama dómi vegna greiðslu hans til fyrrverandi klámmyndaleikkonu í aðdraganda forsetakosninganna 2016. Erlent 13. mars 2023 13:44
Xi vill stærra hlutverk á alþjóðasviðinu Xi Jinping, forseti Kína, kallaði í morgun eftir því að ríkið spilaði stærri rullu í alþjóðamálum. Forsetinn sagði í morgun að Kína ætti að taka virkan þátt í því að gera endurbætur á og að endurbyggja alþjóðakerfið. Það sagði Xi að myndi veita heimsfriði og framþróun „jákvæða orku“. Erlent 13. mars 2023 11:09
Biden sagður munu leggja blessun sína yfir umfangsmikla olíuborun New York Times hefur eftir embættismönnum innan stjórnkerfis Bandaríkjanna að stjórnvöld muni í dag samþykkja umfangsmiklar olíuboranir í Alaska, sem munu mögulega gefa af sér 600 milljón tunnur af hráolíu á 30 ára tímabili. Erlent 13. mars 2023 10:23
Öðrum banka lokað en innistæður að fullu tryggðar Etirlitsaðilar í New York ríki Bandaríkjanna hafa tekið yfir bankann Signature Bank, sem kominn var í sambærileg vandræði og SVB-bankinn sem lokað var fyrir helgi. Innistæður allra innistæðueiganda verða að fullu tryggðar svo tryggja megi trú á bandaríska bankakerfið. Bankarnir voru umsvifamiklir á rafmyntamarkaði. Viðskipti erlent 13. mars 2023 08:49
Þetta eru sigurvegarar Óskarsins 2023 Kvikmyndin Everything, Everywhere All At Once er ótvíræður sigurvegari Óskarsverðlaunahátíðarinnar 2023. Myndin hreppti sjö verðlaun, meðal annars fyrir bestu leikkonu í aðalhlutverki, leikstjórn og sem besta mynd. Þýska stríðsmyndin All Quiet on the Western Front kom næst á eftir með fern verðlaun. Lífið 13. mars 2023 04:08
Fjölskyldu Pence ógnað vegna orða Trumps Mike Pence, fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna, segir Donald Trump fara með fleipur um innrásina sem gerð var á þinghúsið í Washington 6. janúar 2021. Árásin hafi ekki verið neitt annað en svívirðileg. Erlent 12. mars 2023 10:20
Önnur tilraun til að skjóta upp fyrstu þrívíddarprentuðu eldflauginni Starfsmenn fyrirtækisins Relativity Space munu reyna að skjóta fyrstu eldflauginni sem er nánast öll þrívíddarprentuð út í geim. Eldflaugin notar einnig metan sem eldsneyti, sem er ekki hefðbundið. Fyrri tilraun til að skjóta eldflauginni mistókst. Erlent 11. mars 2023 19:13
Missti son sinn út af Basic Instinct Leikkonan Sharon Stone segist hafa misst forræði yfir syni sínum í forræðisdeilu vegna atriðis í kvikmyndinni Basic Instinct. Hún segir áreitið eftir að myndin kom út hafa verið gífurlegt. Lífið 10. mars 2023 22:02
Stærsti bankinn til að fara á hausinn síðan árið 2008 Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa tekið yfir allar eigur Silicon Valley-bankans (SVB) en bankinn er sá sextándi stærsti í Bandaríkjunum. Viðskiptavinir bankans geyma um það bil 175 milljarða Bandaríkjadala þar, 24 þúsund milljarða íslenskra króna. Viðskipti erlent 10. mars 2023 20:45
DeSantis sagður ræða um framboð bak við tjöldin Ron DeSantis, ríkisstjóri Flórída, er sagður ræða um að bjóða sig fram til forseta Bandaríkjanna á bak við tjöldin. Hann er nú á ferðalagi um ríki sem greiða fyrst atkvæði í forvali Repúblikanaflokksins og verið er að smyrja fjáröflunarvél hans. Erlent 10. mars 2023 16:20
Bjarki heldur ótrauður áfram eftir hrottalega lendingu Í Íslandi í dag var rætt við Bjarka Harðarson, BMX-kappa, sem hefur að undanförnu verið að gera garðinn frægan í Flórída. Í innslaginu hér að ofan má sjá tilraunir hans, heppnaðar og misheppnaðar, til að standast lykiláskorun á hátíð sem heitir Swampfest. Lífið 10. mars 2023 09:00
Glæpagengi biðst afsökunar á morðum og mannráni Erlendir miðlar hafa greint frá því að hópur sem klauf sig úr mexíkóska Flóa-fíkniefnahringnum og kallar sig Sporðdrekagengið hafi beðist afsökunar á því að hafa rænt fjórum Bandaríkjamönnum í síðustu viku og myrt tvo þeirra. Erlent 10. mars 2023 08:02