

Bónus-deild karla
Leikirnir

Ólafur biðst afsökunar á ummælum sínum
Ólafur Ólafsson, leikmaður Grindavíkur í Dominos-deild karla í körfubolta, sér eftir ummælum sem hann lét falla eftir tap liðsins gegn KR í lokaúrslitum Íslandsmótsins í kvöld.

Ragnar samdi við Sundsvall Dragons
Ragnar Nathanaelsson verður fjórði Íslendingurinn í röðum Íslendingaliðsins Sundsvall Dragons í Svíþjóð en hann gekk frá samningi við liðið í kvöld.

Ólafur: Eins og við kunnum ekki að spila körfubolta
Ólafur Ólafsson, leikmaður Grindavíkur, var bálreiður eftir 29 stiga tap Íslands- og bikarmeistaranna gegn KR í þriðja leik lokaúrslita Íslandsmótsins í körfubolta í kvöld.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: KR - Grindavík 87-58 | Grindvíkingar rassskelltir
KR er komið yfir á ný í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta eftir að hafa rassskellt Grindavík 87-58 á heimavelli sínum í kvöld. KR leiðir einvígið 2-1.

Stærðin skiptir ekki máli
Á morgun mætast KR og Grindavík í þriðja leik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta. KR vann fyrsta leikinn á heimavelli með níu stigum, 93-84, en Grindvíkingar svöruðu fyrir sig með 79-76 sigri í Röstinni.

Nýtt myndband af umdeildri villu úr KR - Grindavík
Óíþróttamannslega villan sem dæmd var á Martin Hermannsson í gær vakti mikla athygli.

Öll helstu tilþrifin úr leik Grindavíkur og KR | Myndband
Það stefnir í æsilega rimmu milli KR og Grindavíkur um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta.

Æsilegar lokasekúndur í Röstinni | Myndband
Það var mikil dramatík á lokasekúndunum í leik Grindavíkur og KR í Dominos-deild karla í körfubolta.

Umfjöllun, viðtöl og myndbönd: Grindavík - KR 79-76 | Grindavík jafnaði einvígið
Íslandsmeistarar Grindavíkur jöfnuðu einvígið gegn KR, 1-1, í úrslitum Dominos-deildar karla í körfubolta í kvöld í hreint frábærum leik.

Benedikt lofar Martin í hástert | Einstakir hæfileikar
Benedikt Guðmundsson, þjálfari Þórs frá Þorlákshöfn, hvetur alla íþróttaáhugamenn að fylgjast sérstaklega vel með KR-ingnum Martin Hermannssyni.

Spilar í sokkunum þó svo þeir séu forljótir
Jóhann Árni Ólafsson og félagar í Grindavík líta á leikinn gegn KR í kvöld sem lykilleik í lokaúrslitunum um Íslandsmeistaratitilinn. Nokkrir leikmenn liðsins nýta sér nýjustu tækni til að jafna sig fyrr á milli leikja.

Úrslitaleiknum frestað vegna handboltaleiks
Mótastjórn KSÍ ákvað í gær að færa úrslitaleik FH og Breiðabliks í deildabikarkeppninni aftur um einn dag.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: KR - Grindavík | KR tók forystuna
KR tók í kvöld forystuna í lokaúrslitunum Íslandsmótsins í körfubolta eftir 93-84 sigur á Grindavík í DHL-höllinni.

Sigurður Gunnar í sínum fimmtu lokaúrslitum á sex árum
Sigurður Gunnar Þorsteinsson, miðherji Grindavíkur, er kominn með góða reynslu af því að spila til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn en hann er nú kominn í lokaúrslitin í fimmta sinn á síðustu sjö tímabilum.

Fulltrúar síðustu fjögurra Íslandsmeistaratitla með KR í ár
Grindvíkingar hafa unnið Íslandsmeistaratitilinn undanfarin tvö tímabil og innan Grindavíkurliðsins er því mikil meistarareynsla en margir úr KR-liðinu hafa einnig unnið titilinn með sínu félagi á síðustu árum.

Sex af sjö spá KR-ingum Íslandsmeistaratitlinum - fyrsti leikur í kvöld
Fréttablaðið fékk sjö reynda menn úr Dominos-deild karla til þess að spá um hvernig úrslitaeinvígi KR og Grindavíkur fari en fyrsti leikurinn er í DHL-höllinni í Frostaskjóli klukkan 19.15 í kvöld.

Hefur tvisvar skilað Íslandsmeistaratitli á fyrsta ári með Njarðvík
Friðrik Ingi Rúnarsson skrifaði um helgina undir fimm ára samning um að þjálfa meistaraflokka Njarðvíkur í körfubolta. Þetta koma fyrst fram á karfan.is en var síðan staðfest á heimasíðu Njarðvíkur.

Sverrir Þór skilar liðum sínum alltaf í lokaúrslitin um titilinn
Sverrir Þór Sverrisson, þjálfari Grindavíkur, heldur áfram að bæta við magnaða hefð sína að fara alltaf með sín lið í lokaúrslitin um Íslandsmeistaratitilinn.

Allir nema einn spá KR-ingum titlinum
Fréttablaðið fékk sjö reynda menn úr Dominos-deild karla til þess að spá um hvernig úrslitaeinvígi KR og Grindavíkur fari en fyrsti leikurinn er í DHL-höllinni í Frostaskjóli klukkan 19.15 á annan dag páska.

Friðrik Ingi gerði fimm ára samning við Njarðvík
Friðrik Ingi Rúnarsson verður næsti þjálfari karla- og kvennaliðs Njarðvikur.

Ómar í miklum ham í Njarðvíkurseríunni
Ómar Sævarsson, fyrirliði Grindvíkinga, átti frábæra leiki í undanúrslitaseríunni í Dominos-deild karla í körfubolta á móti Njarðvík en þetta var jafnframt fyrsta serían sem Ómar er í fyrirliðahlutverki hjá sínu liði.

Grindvíkingar settu nýtt stigamet í oddaleik
Grindvíkingar voru í miklu stuði í Röstinni í Grindavík í gær þegar liðið tryggði sér sæti í lokaúrslitum Dominos-deildar karla eftir 25 stiga sigur á Njarðvík í oddaleik í undanúrslitum, 120-95.

Njarðvísku þjálfararnir hættu allir með sín lið
Örvar Þór Kristjánsson varð í gær þriðji þjálfarinn frá Njarðvík sem hættir þjálfun síns liðs í Dominos-deild karla í körfubolta. Hann bættist þá í hóp með þeim Einari Árna Jóhannssyni og Teiti Örlygssyni.

Svona verður leikið í úrslitum Dominos deildarinnar
Nú er ljóst að KR mætir Grindavík í úrslitum Dominos deildar karla í körfubolta. Úrslitin hefjast á mánudaginn annan í páskum og á KR heimaleikjarétt.

Sverrir Þór: Ætlum að halda þessu hugarfari gegn KR
Sverrir Þór Sverrisson þjálfari Grindvíkinga var að vonum ánægður með leik sinna manna í oddaleiknum gegn Njarðvík í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: Grindavík - Njarðvík 120-95 | Grindvíkingar sýndu afhverju þeir eru ríkjandi Íslandsmeistarar.
Grindvíkingar mæta KR í úrslitum Dominos-deildarinnar.

Halda upp á tuttugu ára afmælið með oddaleik á sama stað
Grindavík og Njarðvík mætast í kvöld klukkan 19.15 í Röstinni í Grindavík í úrslitaleik um sæti í lokaúrslitum Dominos-deildar karla á móti KR.

Helgi Jónas samdi við mennina sem börðu hann ávallt í spað
Helgi Jónas Guðfinnsson þjálfar karlalið Keflavíkur næstu tvö árin en hann stóð fyrir framan forna fjendur á samningafundinum.

Ívar tekur við kvennaliði Hauka | Þjálfar bæði liðin næsta vetur
Ívar Ásgrímsson þjálfar bæði karla- og kvennalið Hauka á næsta tímabili en hann var einnig ráðinn landsliðsþjálfari kvenna í byrjun mánaðarins.

Mikill munur á framlagi Clinch í sigur- og tapleikjum
Lewis Clinch Jr., bandaríski leikmaður Grindavíkur, er mikilvægasti leikmaður Grindvíkinga í undanúrslitaeinvíginu á móti Njarðvík ef marka má tölfræðina úr fyrstu fjórum leikjunum.