Fjölnir byrjar vel með nýjan þjálfara - myndir Fjölnir vann 81-80 sigur á Hamar í Iceland Express deild karla í gær eftir að hafa verið mikið undir allan leikinn. Þetta var fyrsti leikur Fjölnisliðsins undir stjórn Örvars Þórs Kristjánssonar. Körfubolti 19. október 2010 08:30
KFÍ vann upp 9 stiga forskot í blálokin og vann í framlengingu KFÍ vann 107-97 sigur á ÍR eftir framlengdan leik á Ísafirði í kvöld í Iceland Express deild karla. Það stefndi allt í sigur ÍR sem var yfir nær allan leikinn en heimamenn náðu að tryggja sér framlengingu þar sem þeir tryggðu sér síðan sigurinn. Íslenski boltinn 18. október 2010 21:24
Stjörnumenn unnu sinn fyrsta sigur í Keflavík Stjarnan vann sinn annan leik í röð í Iceland Express deild karla þegar liðið vann 9 stiga sigur á Keflavík í Keflavík í kvöld. Þetta var jafnframt annar tapleikur heimamanna í röð. Íslenski boltinn 18. október 2010 20:37
Dramatískur Fjölnissigur í fyrsta leik Örvars Fjölnir vann 81-80 sigur á Hamar í Iceland Express deild karla í kvöld. Fjölnismenn lentu 16 stigum undir í byrjun leiksins en komu sér inn í leikinn og tryggðu sér dramatískan sigur í lokin. Íslenski boltinn 18. október 2010 20:34
Þrír leikir í körfunni í kvöld Það verður leikið í Iceland Express-deild karla í kvöld en þá fara fram þrír leikir. Körfubolti 18. október 2010 15:30
Umfjöllum: KR-ingar settu í skotgírinn gegn nýliðum Hauka KR-ingar höfðu betur gegn nýliðum Hauka í 3. umferð Iceland Express deild karla, 93-83, í DHL-Höllinn í kvöld. KR-ingar voru lengi í gang og máttu hafa sig alla við gegn spræku liði Hauka sem barðist af krafti. Körfubolti 17. október 2010 22:31
Óskar Ingi: Lékum illa í fjórar mínútur „Við gefum öllum liðum hörkuleik. Munurinn á liðinum liggur í þessum kafla þegar KR setti hreinlega allt niður fyrir utan þriggja stiga línuna. Það var erfitt að koma tilbaka eftir það,“ sagði Óskar Ingi Magnússon, fyrirliði Hauka eftir tap gegn KR í DHL-Höllinni í kvöld, 93-83. Körfubolti 17. október 2010 22:27
Hrafn: Hlaut að koma að því að skotin færu niður „Það er gott að ná sigri og maður má aldrei gleyma því að hafa gaman af því að vinna, sama hversu sterkur sem mótherjinn er,“ sagði Hrafn Kristjánsson, þjálfari KR-ingar eftir sigur sinna manna gegn nýliðum Hauka í DHL-Höllinni í kvöld, 93-83. Körfubolti 17. október 2010 22:25
Njarðvík lagði Íslandsmeistarana Njarðvík gerði sér lítið fyrir og lagði Íslands- og bikarmeistara Snæfells á heimavelli í Iceland Express-deild karla í kvöld, 89-87. Alls fóru þrír leikir fram í kvöld. Körfubolti 17. október 2010 21:06
Stórsigur Keflavíkur Keflavík vann stórsigur á Snæfell í Iceland Express-deild kvenna í dag, 118-62. Körfubolti 17. október 2010 18:22
Friðrik Ragnarsson farinn að þjálfa aftur hjá Njarðvík Friðrik Ragnarsson hefur tekið að sér þjálfun hjá Njarðvíkingum til þess að leysa skyndilegt brotthvarf Örvars Þórs Kristjánssonar. Þetta verður í fyrsta sinn í sex ár sem Friðrik þjálfar á sínum heimaslóðum. Örvar tók við meistaraflokki Fjölnis af Tómasi Holton en Njarðvíkingar hafa fengið tvo reynslubolta til þess að leysa hann af hjá sínum yngri flokkum. Körfubolti 15. október 2010 15:15
Tómas Holton hættur með Fjölnisliðið eftir aðeins tvo leiki Tómas Holton er hættur að þjálfa Fjölni í Iceland Express deild karla eftir aðeins tvo leiki. Tómas Holton tilkynnti Steinari Davíðssyni, formanni körfuknattleiksdeildar Fjölnis, þetta í gær samkvæmt frétt á karfan.is. Fjölnir hefur tapað tveimur fyrstu leikjum sínum á móti Snæfelli og Stjörnunni. Körfubolti 13. október 2010 09:00
Snæfell lagði Keflavík Íslandsmeistarar Snæfells lögðu Keflavík, 90-81, í stórleik kvöldsins í Iceland Express-deild karla. Körfubolti 11. október 2010 15:08
Tómas Holton: Tek þetta að mörgu leyti á mig „Stjarnan var betri en ég bjóst við," sagði Tómas Holton, þjálfari Fjölnis, eftir að Grafarvogsliðið tapaði fyrir Stjörnunni í Garðabænum í kvöld. Körfubolti 10. október 2010 21:39
Hamar skoraði ellefu síðustu stigin og vann meistaraefnin í KR Hamarsliðið átti ótrúlegan endasprett í 87-82 sigri á meistaraefnunum í KR í Hveragerði í kvöld. Þegar fimm mínútur voru eftir var staðan 76-82 fyrir KR en Hamar skoraði 11 síðustu stigin og tryggði sér sinn fyrsta sigur í Iceland Express deildinni í vetur. Körfubolti 10. október 2010 21:07
Stjörnumenn kláruðu Fjölni í seinni hálfleiknum Stjarnan hitti á ansi góðan dag þegar liðið lagði Fjölni 86-69 í kvöld. Eftir jafnræði í fyrri hálfleik héldu Garðbæingum engin bönd og með sterkri liðsheild náðu þeir öruggum sigri. Körfubolti 10. október 2010 20:58
Helgi Jónas byrjar vel með Grindavíkurliðið Helgi Jónas Guðfinnsson byrjar vel með Grindavíkurliðið því Grindvíkingar hafa unnuð tvo fyrstu leiki leiki sína í Iceland Express deild karla í körfubolta. Grindavík vann níu stiga sigur á nýliðum KFÍ, 96-87, í hörkuleik í Röstinni í Grindavík í kvöld. Körfubolti 10. október 2010 20:55
Ingi Þór: Góður varnarleikur skilaði okkur sigrinum „Ég er bara mjög stoltur af strákunum að hafa náð að vinna hérna í kvöld,“ sagði Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari Snæfells, eftir sigurinn í kvöld. Körfubolti 8. október 2010 22:53
Tómas: Vorum góðir í þrjá fjórðunga „Við vorum mjög góðir í þrjá fjórðunga, en síðasti leikhlutinn kostaði okkur of mikið,“ sagði Tómas Holton, þjálfari Fjölnis, eftir tapið í kvöld gegn Snæfelli. Körfubolti 8. október 2010 22:39
Jón Ólafur: Tökum stigin tvö með glöðu geði Við tökum glaðir stigin tvö eftir þennan leik,“ sagði Jón Ólafur Jónsson, leikmaður Snæfells, eftir að lið hans hafði unnið Fjölni í fyrstu umferð Iceland-Express deild karla í kvöld. Körfubolti 8. október 2010 22:34
Umfjöllun: Reynsla meistarana gerði gæfumuninn Íslandsmeistararnir í Snæfell byrjuðu leiktímabilið eins og þeir enduðu það síðasta með fínum sigri á Fjölni í fyrstu umferð Iceland-Express deild karla í kvöld. Körfubolti 8. október 2010 22:31
Meistararnir hófu titilvörnina á sigri Íslandsmeistarar Snæfells unnu í kvöld sigur á Fjölni í fyrstu umferð Iceland-Express deildar karla sem lauk með þremur leikjum í kvöld. Körfubolti 8. október 2010 21:18
Hlynur með stórleik í Svíþjóð Hlynur Bæringsson átti frábæran leik í frumraun sinni í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld. Körfubolti 8. október 2010 21:10
Fannar: Það fer mikil orka í að elta allan leikinn „Við mættum bara ekki alveg tilbúnir og spiluðum bara mjög illa nánast allan leikinn,“ sagði Fannar Freyr Helgason, leikmaður Stjörnunnar, eftir að lið hans hafði tapað fyrir KR í fyrstu umferð Iceland-Express deild karla. Körfubolti 7. október 2010 23:16
Pavel: Vöknum í framlengingunni og klárum dæmið „Við gerðum okkur þetta allt of erfitt fyrir,“sagði Pavel Ermolinskij ,leikmaður KR, eftir leikinn í kvöld. Körfubolti 7. október 2010 23:15
Umfjöllun: KR-ingar byrja tímabilið af krafti KR-ingar unnu virkilega fínan sigur á Stjörnunni í fyrstu umferð Iceland-Express deild karla í Vesturbænum í kvöld. Framlengja þurfti leikinn en KR-ingar voru of sterkir og unnu 108-90 í hörkuleik. Körfubolti 7. október 2010 23:10
KR slátraði Stjörnunni í framlengingunni Keppni í Iceland Express-deild karla hófst í kvöld með þremur leikjum. KR, Keflavík og KFÍ fengu sín fyrstu stig í kvöld. Körfubolti 7. október 2010 21:19
Hrafn Kristjánsson: Svona spáðum við þessu Liðum Hrafns Kristjánssonar er spáð góðu gengu í Iceland Express deilum karla og kvenna í vetur. Karlaliðinu var spáð Íslandsmeistaratitlinum í árlegri spá fyrirliða, þjálfara og forráðamanna en kvennaliðið sem hefur titil að verja endaði í 2. sæti í spánni. Körfubolti 4. október 2010 16:30
Keflavík og KR spáð Íslandsmeistaratitlunum í körfunni Kvennalið Keflavíkur og karlalið KR munu fagna Íslandsmeistaratitlinum í körfunni næsta vor ef marka má spá þjálfara, fyrirliða og forráðamanna í árlegri spá sem var kunngerð nú áðan á kynningarfundi Iceland Express-deilda karla og kvenna fyrir tímabilið 2010-2011. Haukar og Tindastól munu falla hjá körlunum en Fjölnir fellur hjá konunum. Körfubolti 4. október 2010 13:43
Snæfell er meistari meistaranna Snæfell frá Stykkishólmi heldur áfram að safna titlum en liðið varð í kvöld meistari meistaranna er það lagði Grindavík í Hólminum, 101-93. Körfubolti 3. október 2010 20:54