Aðalmeðferð í Bátavogsmálinu hafin Aðalmeðferð í máli Dagbjartar Rúnarsdóttur, sem er ákærð fyrir að hafa orðið manni að bana í Bátavogi í september síðasta árs, hófst í dag. Gert er ráð fyrir því að aðalmeðferðin taki þrjá daga og meðal gagna í málinu eru myndskeið þar sem sjá má og heyra Dagbjörtu valda brotaþola ítrekuðum líkamsmeiðingum. Innlent 26. júní 2024 09:15
Úrskurðaður í gæsluvarðhald daginn eftir frávísun Landsréttur úrskurðaði Pétur Jökul Jónasson, sem grunaður er um aðild að stóra kókaínmálinu svokallaða, í áframhaldandi gæsluvarðhald síðastliðinn föstudag. Daginn áður vísaði Héraðsdómur Reykjavíkur ákæru á hendur honum frá dómi. Innlent 26. júní 2024 08:09
Braut rúðu lögreglubíls með því að skalla hana ítrekað Karlmaður hefur hlotið 45 daga skilorðsbundinn dóm í Héraðsdómi Austurlands fyrir brot gegn valdstjórninni og eignaspjöll. Brotin framdi maðurinn fyrir framan lögreglubíl að kvöldi til í janúar í fyrra. Innlent 25. júní 2024 22:49
Milljón í málskostnað út af 50 þúsund kalli Félag hefur í héraði verið dæmt til að greiða fyrrverandi starfsmanni sínum 55.675 krónur í vangoldin laun, auk vaxta, vegna tveggja veikindadaga. Nokkru hærri er upphæð málskostnaðar sem félaginu var gert að greiða starfsmanninum fyrrverandi, eða rúmlega milljón krónur. Innlent 25. júní 2024 22:17
Gummi Emil dæmdur í fangelsi fyrir akstur án réttinda Guðmundur Emil Jóhannsson, einkaþjálfari og áhrifavaldur, hefur verið dæmdur í þrjátíu daga óskilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa ekið bifreið sviptur ökuréttindum. Þetta er í þriðja sinn sem Guðmundur er gripinn við akstur án ökuréttinda. Innlent 25. júní 2024 12:46
Braut gegn tveimur konum og þremur unglingsstúlkum Karlmaður á fertugsaldri hlaut fjögurra mánaða fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrr í þessum mánuði vegna tveggja kynferðisbrota. Sami maður hlaut átta mánaða fangelsisdóm í apríl vegna kynferðisbrota í garð þriggja unglingsstúlkna. Innlent 24. júní 2024 18:08
Fullvissaði brotna dóttur sína um að þau væru ástfangin Rúmlega fertugur karlmaður og barnaníðingur á suðvesturhorni landsins hefur verið dæmdur í átta ára fangelsi fyrir að nauðga fimmtán ára dóttur sinni ítrekað. Hann endurnýjaði kynni við dóttur sína vitandi að hann glímdi við barnagirnd. Hann þarf að greiða dóttur sinni sex milljónir króna í miskabætur. Innlent 21. júní 2024 16:30
Skotárásarmaðurinn á Dubliner fær tíu ára dóm Landsréttur þyngdi í dag fangelsisdóm Fannars Daníels Guðmundssonar sem hann hlaut vegna skotárásar á skemmtistaðnum The Dubliner í mars á síðasta ári og vegna frelsissviptingar og nauðgunar. Innlent 21. júní 2024 15:50
Ofsaakstur eftir vopnað rán frá Suðurlandsbraut upp í Kópavog Dagur Þór Hjartarson hlaut tveggja ára fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjavíkur á dögunum vegna fjölda brota. Samverkamaður hans hlaut tíu mánaða fangelsisdóm að hluta til skilorðsbundinn. Innlent 21. júní 2024 15:46
Faðir handtekinn á nærbuxunum á heimili sonar Íslenska ríkið þarf að greiða manni 170 þúsund krónur vegna handtöku sérsveitarinnar á honum árið 2022. Þetta var niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur. Að mati dómsins var handtakan sjálf lögmæt en vegna þess að maðurinn varð fyrir skaða vegna hennar á hann rétt á bótum. Innlent 21. júní 2024 13:34
Grunlaus eigandi dularfulls bíls fær hann ekki afhentan Embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum þarf ekki að afhenda bíl, sem það lagði hald á í janúar á þessu ári, til eigandans. Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjaness þess efnis. Innlent 20. júní 2024 14:06
Hjúkrunarfræðingur sem neitaði að fara í Covid-próf ekki fyrir Hæstarétt Hæstiréttur mun ekki taka fyrir mál hjúkrunarfræðings sem höfðaði mál gegn heilbrigðisfyrirtæki sem sagði henni upp eftir að hún neitaði að fara í Covid-hraðpróf. Innlent 20. júní 2024 12:43
Máli Péturs Jökuls vísað frá Máli Péturs Jökuls Jónassonar, sakbornings í stóra kókaínmálinu, hefur verið vísað frá Héraðsdómi Reykjavíkur. Héraðssaksóknari hefur kært þá niðurstöðu til Landsréttar. Innlent 20. júní 2024 11:09
Bíður eftir gögnum til að ljúka rannsókn í manndrápsmáli á Selfossi Héraðssaksóknari bíður enn eftir gögnum til að geta lokið rannsókn sinni á andláti Sofiu Sarmite Kolsenikovu. Sofia fannst látin í heimahúsi á Selfossi í lok apríl í fyrra. Málið var sent frá lögreglunni á Suðurlandi til héraðssaksóknara í desember síðastliðnum. Innlent 20. júní 2024 06:45
Tugmilljóna sekt og má ekki stunda rekstur Sverrir Halldór Ólafsson hefur verið dæmdur til tveggja ára skilorðsbundinnar fangelsisvistar og greiðslu 57 milljóna króna vegna stórfelldra skattalagabrota. Hann hefur keyrt sjö einkahlutafélög í þrot og hefur nú verið bannað að stunda atvinnurekstur í tvö ár. Viðskipti innlent 19. júní 2024 21:20
Tók 38 prósent bótanna og þarf að endurgreiða hundruð þúsunda Ómar R. Valdimarsson lögmaður þarf að greiða fyrrverandi umbjóðanda sínum 400 þúsund krónur vegna óhæfilegrar þóknunar sem hann tók fyrir lögmannsþjónustu vegna uppgjörs slysabóta. Eftir fullnaðaruppgjör við Ómar hélt konan aðeins 62 prósentum af bótum sem vátryggingafélag greiddi henni. Innlent 19. júní 2024 19:41
Sparkaði í liggjandi sambýliskonu sína á gamlársdag Karlmaður hlaut á dögunum þrjátíu daga fangelsisdóm, skilorðsbundinn til tveggja ára, í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir líkamsárás gagnvart þáverandi sambýliskonu hans. Árásin var framin á heimili hans aðfaranótt gamlársdags, 31. desember, árið 2022. Innlent 19. júní 2024 16:40
Leitaði ítrekað til læknis án þess að blóðtapparnir fyndust Kona sem leitaði endurtekið eftir læknisþjónustu áður en hún var loks greind með blóðtappa fékk viðeigandi þjónustu hjá Landspítalanum. Það er niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur. Konan höfðaði mál og vildi meina að meðferðin hefði verið ófullnægjandi og að ríkið bæri skaðabótaábyrgð. Innlent 19. júní 2024 15:36
„Tiltekin atvik“ varðandi stúlku orsök bardaga á Akranesi Karlmaður hlaut þriggja mánaða fangelsisdóm, skilorðsbundinn til tveggja ára, í Héraðsdómi Vesturlands á dögunum fyrir að taka steypuklump og slá annan mann ítrekað í höfuðið. Innlent 19. júní 2024 13:43
Táningur sagður hafa stungið mann í andlit og kvið Unglingspiltur hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps fyrir tilraun til manndráps fyrir að ráðast með hníf á mann við Austurvöll í júní í fyrra. Innlent 19. júní 2024 10:14
Mikilvægi Vaxtamálsins -lántakar verjist Árið 2021 fengu Neytendasamtökin fulltingi VR til að stefna bönkunum vegna skilmála og vaxtaákvarðana lána með breytilegum vöxtum. Að mati samtakanna eru skilmálarnir óskýrir, verulega matskenndir og ógegnsæir og þess vegna ekki hægt að sannreyna hvort vaxtaákvarðanir séu réttmætar. Skoðun 19. júní 2024 09:31
Ósammála Hæstarétti og telja brot Brynjars nauðgun Tveir starfsmenn við lagadeild Háskóla Íslands, Brynhildur G. Flóvenz dósent emerita, og Ragnheiður Bragadóttir prófessor, telja dóm Hæstaréttar í máli Brynjars Joensen Creed, rangan. Þær vona að fordæminu verði snúið við, en þær birtu grein um dóminn í Úlfjóti í síðastliðnum mánuði. Innlent 17. júní 2024 15:48
Refsing manns sem nauðgaði þroskaskertum konum milduð verulega Landsréttur hefur mildað fangelsisdóm yfir tæplega sextugum karlmanni vegna ýmissa brota, þar á meðal vegna fjölda kynferðisbrota gegn konum með þroskaskerðingu. Hann hlaut fjögurra ára fangelsisdóm í stað sex ára. Landsréttur var sammála héraðsdómi um að tornæmi mannsins stæði ekki í vegi fyrir því að hann yrði dæmdur til fangelsisvistar. Innlent 14. júní 2024 15:54
Mikilvægt að ómenningu sé ekki sýnt umburðarlyndi Diljá Mist Einarsdóttir þingkona Sjálfstæðisflokksins hefur lagt fram fyrirspurn á Alþingi til dómsmálaráðherra varðandi heiðurstengt ofbeldi og umfang þess á Íslandi. Hún segir tilefnið vera ljótt mál um ofbeldi innan palestínskrar fjölskyldu á Suðurnesjum sem virðist vera heiðurstengt. Innlent 13. júní 2024 10:54
Sagði „kærustuna“ í sambandi þó hún segði annað Karlmaður hefur verið dæmdur í þrjátíu daga fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, í Héraðsdómi Vesturlands vegna hótana. Innlent 13. júní 2024 10:24
Sagðist ekki hafa slegið eiginkonuna heldur sjálfan sig með pönnu Karlmaður hefur hlotið níu mánaða fangelsisdóm, skilorðsbundinn til tveggja ára, í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir tvær líkamsárásir gagnvart fyrrverandi eiginkonu sinni. Innlent 13. júní 2024 08:22
Dómsmálaráðherra skammar fjármálaráðherra fyrir afskipti Dómsmálaráðuneytið hefur sent frá sér tilkynningu á vef stjórnarráðsins þar sem kemur fram að ráðuneyti stjórnarráðsins og ráðherrar ríkisstjórnarinnar eigi ekki að hafa afskipti af því hvort eða hvernig mál séu tekin til rannsóknar sem sakamál. Innlent 12. júní 2024 15:08
Enok sakfelldur Enok Vatnar Jónsson, sjó- og athafnamaður, hefur hlotið sex mánaða fangelsisdóm, skilorðsbundinn til tveggja ára í Héraðsdómi Reykjavíkur vegna tveggja líkamsárása. Annar maður, sem var ákærður fyrir að fremja aðra líkamsárásina ásamt Enoki hlýtur fjögurra mánaða skilorðsbundinn dóm. Innlent 12. júní 2024 12:22
Ákærður fyrir tilraun til manndráps á Ingólfstorgi Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps vegna meintrar stunguárásar sem er sögð hafa verið framin utandyra við Ingólfstorg í miðbæ Reykjavíkur í júní 2021. Innlent 12. júní 2024 11:22
Ungt burðardýr hlaut vægari dóm í Landsrétti Landsréttur hefur mildað dóm Edas Geraitis, 24 ára litáísks karlmanns, úr fimm ára fangelsisvist í fjögurra. Hann var sakfelldur fyrir að flytja inn ríflega fimm kíló af kókaíni til landsins árið 2022. Innlent 9. júní 2024 20:20