Árs fangelsi fyrir kynferðisbrot Maður var dæmdur í 12 mánaða fangelsisvist fyrir kynferðisbrot gagnvart ungu stúlkubarni í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Barnið leit á manninn sem afa sinn og sjálfur bar hann fyrir dómi að hafa litið á stúlkuna sem barnabarn sitt. Innlent 1. júlí 2005 00:01
Gill unir skyrslettudómi Paul Gill, einn þremenningana sem slettu skyri á álráðstefnu á Hótel Nordica, var í dag dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi. Bótakröfu flugleiðahótela var vísað frá dómi. Gill ætlar ekki að áfrýja dómnum. Innlent 1. júlí 2005 00:01
Gill fékk 2 mánuði skilorðsbundið Héraðsdómur Reykjavíkur kvað upp dóm um hádegisbil í máli ákæruvaldsins gegn Paul Gill sem, ásamt tveimur Íslendingum, var ákærður fyrir að sletta grænu skyri á ráðstefnugesti á Nordica-hóteli. Gill var dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi en skaðabótakröfu Flugleiðahótela upp á rúmar tvær milljónir króna var vísað frá. Innlent 1. júlí 2005 00:01
Sex ákærðir í Baugsmálinu Sex hafa verið ákærðir í Baugsmálinu: Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, Kristín Jóhannesdóttir, Jóhannes Jónsson, Tryggvi Jónsson, fyrrverandi forstjóri Baugs, og tveir endurskoðendur. Í tilkynningu frá Baugi segir að fyrirtækið mun krefja íslenska ríkið um skaðabætur vegna þess tjóns sem Baugur "hefur orðið fyrir af völdum lögreglunnar". Innlent 1. júlí 2005 00:01
3 ár og milljón í skaðabætur Rúmlega fertugur karlmaður var dæmdur í þriggja ára fangelsi í dag fyrir að nauðga fyrrverandi sambýliskonu sinni. Honum var jafnframt gert að greiða henni eina milljón króna í skaðabætur. Innlent 28. júní 2005 00:01
Laxness-málið kært til hæstaréttar Lögmaður Auðar Laxness hefur kært úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur til Hæstaréttar. Um er að ræða mál sem Auður höfðaði á hendur Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni prófessor þar sem hann var sakaður um að hafa ekki notað tilvísanir með réttum hætti í bókum sínum um Halldór Laxness, auk þess sem hann hefði notað verk Halldórs sjálfs of frjálslega. Innlent 27. júní 2005 00:01
Landssíminn dæmdur í Héraðsdómi Landssíminn var í Héraðsdómi í dag dæmdur til að greiða fyrirtækinu Gullveri rúma milljón króna fyrir afnot af lóð undir fjarskiptamastur í tæp þrjú ár. Lóðin hefur verið í eigu Gullvers síðan maí árið 2001 þegar fyrirtækið keypti hana af ríkinu. Innlent 27. júní 2005 00:01
Málssókn undirbúin af krafti Unnið er hörðum höndum að því að undirbúa málssókn nokkurra manna, sem eiga og reka fasteigasölur, á hendur ríkinu, að sögn Halldórs Backmans héraðsdómslögmanns. Innlent 27. júní 2005 00:01
Dæmdur til 300 þúsund króna sektar Tuttugu og þriggja ára karlmaður var í Héraðsdómi Reykjaness í morgun dæmdur til 300 þúsund króna sektar fyrir að hafa í fórum sínum tæp þrjú grömm af kókaíni og ríflega hálft gramm af amfetamíni, auk þess að hafa ítrekað gerst sekur um umferðalagabrot. Þá var maðurinn einnig sviptur ökuleyfi í tvö ár. Innlent 23. júní 2005 00:01
Mál F.f. þingfest í dag Mál ríkislögreglustjóra gegn tíu stjórnendum Frjálsrar fjölmiðlunar og dótturfyrirtækja var í dag þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur. Frjáls fjölmiðlun fór á hausinn fyrir þremur árum og var gjaldþrotið eitt hið stærsta í íslenskri viðskiptasögu. Kröfur í þrotabúið námu um 2,2 milljörðum króna en aðeins fengust um 300 milljónir upp í kröfurnar. Innlent 23. júní 2005 00:01
Dæmdur fyrir fjölda brota Maður á fertugsaldri var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í eins og hálfs árs fangelsi fyrir fjölmörg brot, m.a. fyrir tilraun til ráns á Péturspöbb á Höfðabakka, hann var tekinn próflaus og undir áhrifum fíkniefna við akstur, braut vopnalög og sveik vörur út úr verslunum með skjalafalsi. Innlent 22. júní 2005 00:01
Sveitarfélagið sýknað af kröfunni Sveitarfélagið Rangárþing eystra var í dag sýknað af kröfu Eggerts Haukdals, fyrrum alþingismanns og oddvita Vestur-Landeyjahrepps til þrjátíu ára, um greiðslu ríflega fjögurra milljóna króna með vöxtum og dráttarvöxtum. Innlent 22. júní 2005 00:01
Fengu skilorðsbundna dóma Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í dag tvo rúmlega tvítuga menn í skilorðsbundið fangelsi fyrir þjófnað og önnur minniháttar brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni. Annar maðurinn fékk þriggja mánaða dóm en hinn tveggja mánaða. Ákvörður refsingar þriðja mannsins var frestað, haldi hann almennt skilorð. Innlent 14. júní 2005 00:01
Fluttu inn 130 g og 1000 töflur Héraðsdómur Reykjaness dæmdi sex ungmenni, fimm karla og eina konu, til fangavistar í dag fyrir aðild að innflutningi á eitt þúsund amfetamíntöflum og rúmlega 130 grömmum af kókaíni. Efnin voru keypt í Rotterdam og flutt til landsins með Íslandspósti, falin inni í vaxkertum. Innlent 13. júní 2005 00:01
Árs fangelsi fyrir kókaínsmygl Maður á þrítugsaldri var í dag dæmdur í Héraðsdómi í árs fangelsi fyrir að hafa reynt að smygla 226 grömmum af kókaíni til landsins innvortis þann 19. desember síðastliðinn. Kókaínið var í 59 pakkningum og var fjarlægt úr líkama mannsins með aðgerð á sjúkrahúsi. Þetta er þriðji dómurinn sem maðurinn fær og því þótti hann hæfilegur tólf mánuðir. Innlent 9. júní 2005 00:01
Máli Hannesar vísað frá Máli fjölskyldu Halldórs Laxness gegn Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni prófessor var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag vísað frá vegna annmarka á málatilbúnaði stefnanda. Ekkja Halldórs, Auður Sveinsdóttir, höfðaði mál gegn Hannesi vegna meints ritstuldar í bók hans um Nóbelsskáldið. Innlent 9. júní 2005 00:01
Dæmdur fyrir tilraun til manndráps Rúmlega fertugur maður var í dag dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur í eins og hálfs árs óskilorðsbundið fangelsi fyrir tilraun til manndráps. Hann stakk vin fyrrverandi sambýliskonu sinnar með hnífi fyrir framan hús hennar við Bjargartanga í Mosfellsbæ í byrjun febrúar. Innlent 9. júní 2005 00:01
3 milljóna bótakröfu vísað frá Skaðabótakröfu konu sem rann í hálku á göngustíg við Fannborg í Kópavogi veturinn 1999 var í dag hafnað í Héraðsdómi Reykjavíkur. Konan fór fram á tæpar þrjár milljónir króna auk vaxta. Innlent 9. júní 2005 00:01
Dæmdur fyrir skattsvik Maður á fimmtugsaldri var í dag dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu 14,7 milljóna króna fyrir skattsvik og bókhaldsbrot á árunum 1998 til 2000. Innlent 9. júní 2005 00:01
Reykjanesbær greiði 5 milljónir Hæstiréttur dæmdi í gær Reykjanesbæ til að greiða fyrrverandi starfsmanni bæjarins tæpar fimm milljónir króna. Maðurinn vann hjá Vatnsveitu Suðurnesja en þegar sú starfsemi færðist undir Hitaveitu Suðurnesja hf. rýrnuðu lífeyrisréttindi mannsins og tókst Reykjanesbæ ekki að sýna fram á að starfið sem hann fékk við breytingarnar væri sambærilegt fyrra starfi hvað ráðningarkjör varðar. Innlent 3. júní 2005 00:01
40 daga fangelsi fyrir úlnliðsbrot Héraðsdómur Reykjaness dæmdi fyrir stundu tvítugan karlmann í fjörutíu daga fangelsi, skilorðsbundið, fyrir að ráðast á unga konu á veitingastað í Grindavík með þeim afleiðingum að hún brotnaði á báðum úlnliðum. Atvikið átti sér stað á Sjávarperlunni fyrir rúmu ári. Innlent 3. júní 2005 00:01
Hæstiréttur sneri tveimur dómum Hæstiréttur sneri í gær við tveimur dómum þar sem ökumenn höfðu verið sakfelldir fyrir að virða ekki hvíldarákvæði EES-samningsins. Í báðum málunum hafði Héraðsdómur Norðurlands eystra dæmt bílstjórana til sektargreiðslu. Innlent 3. júní 2005 00:01
Fjórir unglingspiltar fá dóm Fjórir piltar, fæddir árin 1986 og 1987, voru dæmdir í sex til tíu mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Piltarnir játuðu allir brot sín sem voru nokkur fjöldi innbrota auk minniháttar fíkniefnabrota. Haldi piltarnir skilorð í þrjú ár fellur refsing niður. Innlent 3. júní 2005 00:01
Aðeins mál eins starfsmanns Hæstiréttur staðfesti í gær úrskurð héraðsdóms í deilu Iceland Seafood og fyrrverandi starfsmanns. Hann var í hópi fimm lykilstarfsmanna Iceland Seafood sem hættu hjá fyrirtækinu og réðu sig til Seafood Union sem er í sama geira. Missagt var í fréttum Bylgjunnar í morgun að mál allra starfsmannanna hafi verið á borði Hæstaréttar í gær. Innlent 31. maí 2005 00:01
Hæstiréttur staðfesti úrskurðinn Hæstiréttur staðfesti í gær úrskurð héraðsdóms í deilu Iceland Seafood og nokkurra fyrrverandi starfsmanna þess. Nokkrir lykilstarfsmenn Iceland Seafood hættu hjá fyrirtækinu og réðu sig til Seafood Union sem er í sama geira. Innlent 31. maí 2005 00:01
Nágranni heyrði skerandi óp Skerandi angistaróp heyrðust inn til nágranna Sæunnar Pálsdóttur þegar Magnús Einarsson, eiginmaður hennar, réð henni bana. Vitnisburður nágrannans þykir grafa undan vörn Magnúsar í málinu. Þó sá nágranninn ekki ástæðu til að gera lögreglu viðvart. Innlent 30. maí 2005 00:01
Eiginmaðurinn missti stjórn á sér Sálfræðingur sagðist í Héraðsdómi Reykjaness rétt fyrir hádegi að hann teldi að Magnús Einarsson, sem varð konu sinni að bana á heimili þeirra í Hamraborg, hafi ekki undirbúið morðið heldur hafi hann misst stjórn á sér. Innlent 30. maí 2005 00:01
Skólastjórinn í 2 ára fangelsi Jón Árni Rúnarsson, fyrrverandi skólastjóri Rafiðnaðarskólans, var dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir fjárdrátt og skjalafals á árunum 1994 til 2001 í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Jón Árni var ákærður fyrir að hafa dregið sér tæpar 29 milljónir króna. Innlent 30. maí 2005 00:01
Ræddi bara við suma umsækjenda Ættleiðingarnefnd ræðir við suma umsækjendur í málum sem koma fyrir nefndina, aðra ekki. Hún er ekki í samvinnu við viðkomandi barnaverndarnefnd, að sögn Margrétar Hauksdóttur formanns ættleiðingarnefndar. </font /></b /> Innlent 24. maí 2005 00:01
Betra að reykja en vera of þungur Dómsmálaráðuneytið óskar eftir sérstökum heilsufarsupplýsingum séu umsækjendur um ættleiðingu yfir ákveðnum þyngdarstuðli. Er það sagt vegna hættu á æða- og hjartasjúkdómum. Einskis er spurt þótt umsækjandi reyki að sögn kjörföður. </font /></b /> Innlent 23. maí 2005 00:01