Everton FC

Everton FC

Fréttir af enska fótboltaliðinu Everton FC frá Liverpool.

Fréttamynd

Sjáðu Bruno jafna metið og von West Ham dofna enn

Bruno Fernandes jafnaði stoðsendingamet, Manchester United festi sér 3. sætið og West Ham tók stórt skref í átt að næstefstu deild með tapi gegn Newcastle. Mörkin úr öllum leikjum gærdagsins í ensku úrvalsdeildinni má sjá á Vísi.

Enski boltinn
Fréttamynd

Titilvonir City tóku á sig skell í kvöld

Manchester City fór illa að ráði sínu í titil­baráttu ensku úr­vals­deildarinnar í kvöld þegar liðið glutraði niður for­ystu endaði á því að gera 3-3 jafntefli gegn Ever­ton á úti­velli. Arsenal er í bíl­stjórasætinu, með ör­lögin í sínum höndum, fyrir loka­um­ferðir deildarinnar en jöfnunarmark Doku á lokasekúndunum gæti skipt miklu máli.

Enski boltinn
Fréttamynd

Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti

Þrátt fyrir að vinna loks sinn fyrsta deildarleik á árinu 2026 í dag er Tottenham enn í fallsæti ensku úrvalsdeildarinnar. Sigurmark Callums Wilson fyrir West Ham United gegn Everton skyggði á gleði Tottenham-manna.

Enski boltinn
Fréttamynd

Mörkin úr enska: Sex­tán ára skrifaði söguna með Arsenal

Gærdagurinn var sögulegur fyrir Max Dowman og Arsenal. Þessi sextán ára strákur varð yngsti markaskorari sögunnar í ensku úrvalsdeildinni er hann skoraði seinna mark Arsenal í sigri gegn Everton. Toppliðin áttu bæði leik í gær og þá var Anthony Gordon hetja Newcastle gegn Chelsea. 

Enski boltinn
Fréttamynd

Sex­tán ára gull­tryggði Arsenal mikil­vægan sigur

Topplið Arsenal vann dramatískan sigur á Everton er liðin mættust á Emirates leikvanginum í Lundúnum í kvöld. Lokatölur 2-0 sigur Arsenal, bæði mörk leiksins komu á lokamínútum hans. Hinn sextán ára gamli Max Dowman gulltryggði sigurinn og varð þar með yngsti markaskorarinn í sögu ensku úrvalsdeildarinnar.

Enski boltinn
Fréttamynd

Tottenham í tómu tjóni

Vandræði Tottenham í ensku úrvalsdeildinni héldu áfram á heimavelli í kvöld þar sem liðið tapaði fyrir Newcastle United, 1-2. Lærisveinar Thomas Frank eru nú aðeins fimm stigum frá fallsæti. 

Enski boltinn
Fréttamynd

Beto bjargaði stigi á af­mælis­daginn

Bournemouth vann sinn þriðja sigur í síðustu fjórum leikjum þegar liðið lagði Wolves að velli, 0-2, í ensku úrvalsdeildinni í dag. Á sama tíma gerðu Brighton og Everton jafntefli, 1-1. Afmælisbarnið Beto reyndist hetja gestanna frá Liverpool.

Enski boltinn
Fréttamynd

Sjáðu rauðu spjöld Everton: Einn fyrir hártog en hinn fyrir klapp

Everton endaði leikinn á níu vellinum þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við Wolves í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöldi. David Moyes knattspyrnustjóri Everton var æfur yfir að hans mati „fáránlegri“ ákvörðun sem leiddi til þess að Michael Keane var rekinn af velli fyrir að toga í hár Tolu Arokodare.

Enski boltinn