
Æðruleysi og þolinmæði
Í æsku minni á Akranesi var mér sagt að íþróttafélagið ÍA væri besta lið í heimi. Skagamaðurinn amma Lóa sagði mér stolt frá því að faðir hennar hann Ingólfur hefði verið einn af stofnendum þessa liðs.
Í æsku minni á Akranesi var mér sagt að íþróttafélagið ÍA væri besta lið í heimi. Skagamaðurinn amma Lóa sagði mér stolt frá því að faðir hennar hann Ingólfur hefði verið einn af stofnendum þessa liðs.
Frjáls verslun og heimskerfi alþjóðavædds kapítalisma hefur frá upphafi hnitast um nokkrar vörur sem hafa áhrif á alþjóðlegar hagsveiflur. Nú á dögum eru það olía og önnur brennsluefni fyrir orkuframleiðslu, en í árdaga hnattvæðingar voru það fremur ýmsar neysluvörur.
Heilbrigð sál í hraustum líkama er ágætt slagorð sem lengi hefur þótt gott og er gott. Ágæt er líka sú heilsuvakning sem orðið hefur hin síðari ár með aukinni meðvitund um mikilvægi hreyfingar og gildi þess að borða hollan mat.
Þegar að Bill Clinton, sá ágæti maður, varð uppvís að ástarleikjum við unga konu í fallegum bláum kjól þurfti hann í kjölfarið ekki bara að glíma við reiði eiginkonunnar.
Það eru nokkur tíðindi í breskum stjórnmálum að íhaldsmaðurinn Boris Johnson verður næsti borgarstjóri Lundúnaborgar um leið og flokkurinn kemst til valda í tólf nýjum sveitarfélögum víðsvegar um England og Wales.
Margir hafa áhuga á að leggja sitt af mörkum og stuðla að betra lífi fólks í fjarlægum og oft á tíðum fátækum löndum.
Miðað við að það sé hlutverk ráðherra að vinna sér inn virðingu hjá þjóð sinni fyrir vinnusemi, hugmyndaauðgi, manngæsku, verklagni, heiðarleika og fleiri kosti er það fræðandi hjá fyrirtæki eins og Capacent að birta vorprófseinkunnir úr Skóla lífsins fyrir þá sem nú stjórna landinu, um sama leyti og próflestrarhrina brestur á hjá skólafólki.
Það er örugglega rétt hjá Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, utanríkisráðherra og formanni Samfylkingarinnar, að minnkandi fylgi við ríkisstjórnina tengist erfiðri stöðu í efnahagsmálum þjóðarinnar. Auðvitað er þyngra að sækja fram í mótvindi en þegar byrinn er í bakið.
Í Fréttablaði gærdagsins var a.m.k. tvennt sem fékk mig til að dæsa yfir ruglinu. Annað var frétt um ungan mann sem var beittur harðræði af lögreglu við bensínsstöðina á dögunum. Slagur þessa manns, sem er stór og stæðilegur, við lögreglu birtist landslýð í beinni útsendingu.
Munið þið þegar þeirri skrítnu hugmynd skaut niður á Íslandi að enginn væri maður með mönnum nema hann eignaðist straumlínulagaðan jeppa sem hét hinu afspyrnu kjánalega og óþjála nafni SsangYong Musso?
Í dag er góður dagur til að þakka fyrir þá dásamlegu tilviljun að þú fæddist í besta landi í heimi. Að þú sért hluti af hamingjusömustu þjóð í heimi og hafir ítrekað borið gæfu til að kjósa þér bestu leiðtoga alheimsins.
Í Frakklandi hefur frumrannsóknir í vísindum nokkuð borið á góma að undanförnu. Hafa vísindamenn við hina opinberu vísindastofnun CNRS risið upp og gagnrýnt stjórnvöld harðlega fyrir að láta þá iðju sitja á hakanum, en beina fjármagninu í staðinn að hagnýtum rannsóknum alls konar, kannske í samvinnu við fyrirtæki og samkvæmt óskum þeirra.
Þótt samúð með vörubílstjórum hafi runnið út í sandinn fer ekki hjá því ópin um eldsneytishækkun hafi orðið bensín á dýrtíðarhræðsluna. Sniðugt, ekki satt? Hroðaleg verðbólga ekki lengur bara bráðum heldur núna.
Það skal alveg viðurkennast að sá skáldskapur sem ég setti niður á blað sem barn hlaut aldrei náð fyrir augum dómnefnda sem verðlaunuðu kvæði eftir börn á níunda og tíunda áratugnum.
Ekki ég," tauta ég gjarnan með sjálfum mér þegar smeðjulegi maðurinn kemur í útvarpinu og segir að allir elski KFC: það er ein tegund andófs. Og eiginlega það eina sem ég stunda í seinni tíð.
Árið 1209 höfðu „rétttrúaðir" kaþólikkar nógu að sinna í krossferð gegn „villutrú" Kaþara í Suður-Frakklandi. Þar kom að krossfaraherinn sat um Beziersborg, eitt höfuðvirkja Kaþara.
Fyrr á þessu ári var móðir dæmd í héraði til að greiða kennara barns síns bætur vegna áverka sem hann hlaut í slysi í skólanum. Slysið varð með þeim hætti að barn skellti aftur rennihurð sem lenti á höfði kennarans en hann hlaut 25 prósenta örorku af völdum áverkans.
Spennan er gríðarleg. Það þarf að greiða hárið í fallegan hnút, yfirfara skóna og mæta tímanlega. Í kvöld verður hin árlega vorsýning balletskóla Sigríðar Ármann.
Ég hef aðeins einu sinni á ævinni átt frumkvæði að mótmælaaðgerðum. Ætli ég hafi ekki verið svona þrettán ára, alla vega nógu gömul til að finnast á mér brotið og of ung til að hugsa dæmið til enda.
Átök lögreglu við flutningabílstjóra og vegfarendur við Norðlingaholt í gær eru forvitnileg á ýmsa kanta. Af viðbrögðum við þeim að dæma virðist almenn samúð með aðgerðum flutningabílstjóra vera að fjara mjög hratt út.
Þeirri staðreynd var vandlega haldið leyndri fyrir Íslendingum á sínum tíma að Júróvisjón-keppnin væri risavaxin hommaárshátíð. Hommar voru enda enn álitnir kynvillingar, ekki síst af því hégómlega fólki sem í alvöru hafði metnað fyrir því að vinna söngvakeppnina.
Þrátt fyrir allskyns uppsteyt í garð dæmigerðrar kynjaskiptingar hef ég með sóma haldið uppi merkjum kvenlegs yndisþokka með því að vera átakanlega seinfær þegar kemur að vélbúnaði.
Snarhækkað verð á ýmsum grunntegundum matvæla í heiminum, svo sem korni, maís, hrísgrjónum, baunum og kjöti, veldur því nú að hungurógnin vofir yfir hundruðum milljóna manna.
Árið 2003 voru boðaðar skipulagsbreytingar innan Ríkisútvarpsins í framhaldi af tölvupósti Markúsar Arnar Antonssonar þáverandi útvarpsstjóra til samstarfsmanna.
Mikil opinber umræða getur verið óheppileg, skapað óraunhæfar væntingar og þar með haft neikvæð áhrif.“ Geir H. Haarde, formaður Flokksins og forsætisráðherra Íslands, á fundi með Samtökum atvinnulífsins 18. apríl 2008.
Skemmtileg umræða var í Morgunblaðinu í síðustu viku um gáfnafar unglinga í framhaldi af léttúðugum ummælum Egils Helgasonar í Kiljunni þegar rætt var um Bréf til Láru eftir Þórberg. Hann sagði glaðhlakkalega: „Unglingar eru náttúrlega mjög vitlausir."
Það er mikilvægt að forsætisráðherra sýni ákveðna yfirvegun þegar kemur að spurningum og svörum um íslenskt efnahagslíf. Það hefur hann sýnt undanfarnar vikur.
Fréttablaðið hóf dreifingu Blaðberans nú fyrir helgi. Blaðberinn er hvort tveggja í senn, blaðakarfa og taska sem nota má til að bera blöðin sín í endurvinnslu.
Ég hlustaði á merkilegt spjall hjá dætrum mínum á leið heim úr leikskólanum um daginn þar sem þær sátu saman í aftursæti bílsins. Systurnar eru þriggja og sex ára.
Enn er Seðlabankinn í sviðsljósinu. Og enn á ný á röngum forsendum. Tilskipunum hans, sem áður var hlýtt í hljóði, er nú tekið með öllu í bland; hlátri, reiði og furðu.