Formúla 1

Formúla 1

Fréttir af þekktasta kappakstri í heimi.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Sá fyrsti í sögu For­múlu 1

Ítalska ungstirnið Kimi Antonelli heldur áfram að skrifa söguna í Formúlu 1 mótaröðinni. Hann er fyrsti ökuþórinn til þess að vinna fyrstu fjórar keppnir sínar í Formúlu 1 allar í röð.

Formúla 1
Fréttamynd

Ní­tján ára í hóp með Schumacher og Senna

Það er óhætt að segja að Ítalinn ungi, Kimi Antonelli ökuþór Mercedes, sé að slá í gegn í Formúlu 1 um þessar mundir. Antonelli vann sinn þriðja kappakstur á ferlinum í mótaröðinni í gær. Þann þriðja í röð og stillir sér upp við hlið goðsagna á borð við Michael Schumacher og Ayrton Senna. 

Formúla 1
Fréttamynd

For­múlunni flýtt vegna storms

Formúlu 1-keppni dagsins hefur verið flýtt um þrjár klukkustundir. Keppni dagsins hefst klukkan 17:00 og bein útsending hefst klukkan 16:30 á Sýn Sport Viaplay.

Formúla 1
Fréttamynd

Antonelli fékk færri til­raunir en tók ráspólinn

Kimi Antonelli ökuþór Mercedes verður fyrstur af stað þegar Formúlu 1 kappaksturinn í Miami fer af stað annað kvöld. Max Verstappen fylgir honum fast eftir á Red Bull bílnum og freistar þess að vinna sinn fyrsta sigur á tímabilinu.

Formúla 1
Fréttamynd

Leclerc sneggstur á æfingum

Mónakóinn Charles Leclerc var sneggstur á lokaæfingum ökuþóra í Formúlu 1 á Miami-brautinni í dag fyrir komandi sprettkeppni og tímatökur.

Formúla 1
Fréttamynd

Hægri hönd Verstappens skiptir um lið

Gianpiero Lambiase, keppnisverkfræðingur og hægri hönd formúluökumannsins Max Verstappens til margra ára, er sagður vera á förum frá Formúlu 1-liði Red Bull. Hann er sagður hafa þegið stjarnfræðilegt tilboð frá keppinaut.

Formúla 1
Fréttamynd

Ungstirnið slær hvert metið á fætur öðru

Ítalinn ungi, Kimi Antonelli, ökuþór Mercedes í Formúlu 1 hefur vakið verðskuldaða athygli eftir frábæra byrjun á tímabilinu. Kimi er að slá hvert metið á fætur öðru og gæti orðið yngsti heimsmeistarinn í sögu mótaraðarinnar. 

Formúla 1