Button: Besti tími lífs míns Bretinn Jenson Button segir að upplifun sín í Formúlu 1 síðustu mánuði sé sannkallað blómaskeið í lífi hans og hann njóti sín enn betur en í fyrra, en þá varð hann meistari. Hann vann kínverska kappaksturinn um helgina. Formúla 1 20. apríl 2010 15:33
Formúlu 1 ekki frestað vegna eldgoss Bernie Ecclestone, segir að eldgosið á Íslandi og vandamál varðandi flug síðustu daga muni ekki hafa áhrif á spænska kappaksturinn í Barcelona í maí. Meirihluti starfsmanna Formúlu 1 liða eru strandaglóðpar í Kína vegna frestana á flugum í Evrópu. Formúla 1 19. apríl 2010 12:38
Button: Besti sigurinn frá upphafi Bretinn Jenson Button var kampakátur sigurvegari Formúlu 1 mótsins í Kína í dag, en var taugaspenntur um tíma þegar öryggisbíll var kallaður inn á brautina vegna óhapps. Hafði áhyggjur af stöðu sinni eftir að hafa náð forystu. Formúla 1 18. apríl 2010 18:34
Button vann í stormasamri keppni Bretinn Jenson Button á McLaren fagnaði sgri í kínverska Formúlu 1 kappakstrinum í Sjanghæ í dag. Formúla 1 18. apríl 2010 10:12
Vettel hræðist ekki veðurspánna Sebasstian Vettel var að vonum sáttur við að ná besta tíma í tímatökum í þriðja mótinu af fjórum í Formúlu 1 í Sjanghæ í morgun. Formúla 1 17. apríl 2010 08:09
Vettel og Webber fremstir í tímatökum Sebastian Vettel og Mark Webber tryggðu Red Bull tvo fremstu staðina á ráslínu á Sjanghæ brautinni í Kína í morgun, þegar tímataka fyrir kappaksturinn á sunnudag fór fram. Formúla 1 17. apríl 2010 07:34
Webber fljótastur á lokaæfingunni Ástralinn Mark Webber var fljótastur á lokaæfingu keppnisliðia á Sjanghæ brautinni í Kína í nótt á Red Bull bíl, en bestu tímarnir náðust á lokaspretti æfingarinnar. Æfingin var sú síðasta fyrir tímatökuna sem er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport kl. 05.45. Formúla 1 17. apríl 2010 04:29
Tímatakan lykill að sigursókn Hamiltons Lewis Hamilton var ánægður með dagsverkið eftir fyrstu tvær æfingar mótshelgarinnar í Sjanghæ í Kína. Formúla 1 16. apríl 2010 09:35
McLaren í forystu á æfingum McLaren liðið er til alls líklegt á Sjanghæ brautinn í Kína um helgina, en ökumenn liðsins náðu besta tíma á báðum æfingum í nótt. Lewis Hamiton náði besta tíma yfir heildina á æfingunum tveimur. Formúla 1 16. apríl 2010 07:59
Meisturunum tveimur vel til vina Lewis Hamilton og Jenson eru báðir meistarar og Button núverandi handhafi titilsins. Hamilton sem vann titilinn 2008 var spurður hvort mikil samkeppni ríkti á milli þeirra á blaðamannafundi í dag, en Button er ofar Hamilton í stigamótinu hjá McLaren liðinu. Formúla 1 15. apríl 2010 16:00
Schumacher eygir enn meistaratitilinn Michael Schumacher hefur trú á að hann eigi möguleika á meistaratitilinum í Formúlu 1, þó hann sé aðeins með níu stig á móti 39 stigum Felipe Massa. Hann er kominn til Kína og í frétt á autosport.com telur hann sig eiga möguleika á toppslagnum. þrátt fyrir brösótt gengi. Formúla 1 15. apríl 2010 10:36
Alonso: Schumacher keppir um titilinn Spánverjinn Fernando Alonso sem er í öðru sæti í stigakeppni ökumanna á eftir Felipe Massa telur að Michael Schumacher verði meðal þeirra sem keppi um titilinn í ár. Formúla 1 15. apríl 2010 09:17
Massa: Búumst til varnar gegn McLaren Felipe Massa hjá Ferrari er í forystu í stigamóti ökumanna og fyrir aftan er þéttur hópur reynslumikilla ökumanna. Massa telur að McLaren með nýjan búnað sem stýrir loftflæði á afturvæng bílsins á nýstárlegan hátt gæti veitt þeim forskot um helgina. Formúla 1 14. apríl 2010 14:47
Máttur Indlands eflist í Formúlu 1 Force India liðið, eða Máttur Indlands í beinni þýðingu er keppnislið í Formúlu 1 sem er eigu miljarðamæringsins Vijay Mallay, sem ætlar sér stóra hluti í íþróttinni og vinnur náið með Mercedes, sem sér liðinu fyrir vélum. Formúla 1 13. apríl 2010 13:55
Button segir McLaren taka framförum Jenson Button segir að liðinu hafi tekist að bæta McLaren bílinn fyrir næsta mót sem er í Kína um helgina. Hann flaug frá Malasíu í síðustu viku til Englands til að vinna að þróun bílsins í ökuhermi með tæknimönnum sínum. Formúla 1 13. apríl 2010 12:23
Kubica: Flugslysið þjóðarharmleikur Ein helst íþróttastjarna Pólverja, Formúlu 1 ökumaðurinn Robert Kubica vottaði í dag löndum sínum samúð sína vegna flugslyssins í Rússlandi á laugardaginn. Þá fórust 96 manns og meðal þeirra forseti Póllands, Lech Kaczynksi og kona hans, auk fjölda yfirmanna pólskrar stjórnsýslu og hermála. Formúla 1 12. apríl 2010 17:28
Eilífðarbann Briatore fellt úr gildi Alþjóðabílasambandið, FIA sendi í dag frá sér tilkynningu þar sem eilífiðarbanni Flavio Briatore frá Formúlu 1 er breytt í bann til ársins 2013. FIA hefur samið við Briatore og Pat Symonds vegna svindmálsins svokallaða sem kom upp í Singapúr árið 2008. Formúla 1 12. apríl 2010 16:49
Kubica ánægður með árangurinn Robert Kubica hjá Renault hefur halað inn 30 stig í stigamóti ökumanna í tveimur mótum og hefur komið hvað mest á óvart í meistaramótinu í Formúlu 1. Renault er til alls líklegt og stefnir á að skáka Mercedes, sem talið er fjórða besta liðið þessa dagana. Formúla 1 12. apríl 2010 13:47
Sígandi lukka Schumachers Michael Schumacher hjá Mercedes vann á Sjanghæ brautinni í Kína, síðast þegar hann keppti þar árið 2006. Nú mætir hann þremur árum síðar, en er aðeins í tíunda sæti í stigamótinu, eftir heldur brösótt gengi vegna tæknilegra vandamála í tvígang Formúla 1 12. apríl 2010 10:57
Verðlaun lyftistöng fyrir Mercedes Framkvæmdarstjóri Mercedes, Bretinn Ross Brawn sem vann tvo titla með Brawn liðinu í fyrra segist ánægður með þá Michael Schumacher og Nico Rosberg. Formúla 1 9. apríl 2010 13:00
Button hissa á hörðum stigaslag Breski meistarinn Jenson Button kveðst hissa á því hve hörð barátta er um meistaratitilinn í Formúlu 1 í ár. Hann telur að stöðugleiki munu ráða úrslitum, jafnvel þó vægi sigurs gefi mörg aukastig umfram annað sætið. Hann ræddi málin á vefsíðu sinni. Formúla 1 8. apríl 2010 10:30
Hamilton hress með eigin frammistöðu Bretinn Lewis Hamilton hefur farið mikinn í síðustu tveimur Formúlu 1 mótum, eftir að hafa ræst aftarlega á ráslínu í tvígang. Hann var ellefti á ráslínu í Ástralíu og tuttugasti í Malasíu, en vann sig upp listann með hörkuakstri í kappakstrinum á sunnudaginn. Varð sjött Formúla 1 7. apríl 2010 11:28
Barátta Sutil og Hamilton vakti athygli og Force India verðlaunað Þjóðverjinn Adrian Sutil hjá Force India náði fimmta sæti í Malasíu um helgina og barðist um sætið við vin sinn Lewis Hamilton hjá McLaren. Force India hefur vaxið ásmeginn, en í gær fékk Force India liðið að auki verðlaun fyrir athyglisverðasta atvikið í Formúlu 1 árið 2009. Formúla 1 7. apríl 2010 09:41
Kubica og Renault í toppslagnum Pólverjinn Robert Kubica og Renault er lið sem hefur komið hvað mest á óvart í Formúlu 1 mótunum. Kubica varð annar í Ástralíu og fjórði í Malasíu á sunnudaginn. Alain Permane einn af yfirmönnum liðsins er ánægður með gang mála, enda er Kubica aðeins 9 stigum frá Felipe Massa sem er efstur í stigamótinu. Formúla 1 6. apríl 2010 13:58
Laus ró hefti framför Schumachers Michael Schumacher reið ekki feitum hesti frá Formúlu 1 mótinu í Malasíu á sunnudaginn. Hann féll úr leik eftir að ró á afturdekki losnaði og er aðeins með 9 stig í stigamótinu, á meðan Felipe Massa sem er fremstur er með 39 og þéttur hópur manna með yfir 30 stig. Formúla 1 6. apríl 2010 12:10
Árangur Rosberg kemur ekki á óvart Nobert Haug hjá Mercedes segir að það komi sér ekkert á óvart að Nico Rosberg sé að standa sig vel sem liðsfélagi Michael Schumacher. Rosberg varð í þriðja sæti á eftir Red Bull mönnum í gær. Formúla 1 5. apríl 2010 13:36
Red Bull tilbúið í titilslaginn Christian Horner, framkvæmdarstjóri Red Bull segir lið sitt tilbúið í titilslag við McLaren og Ferrari, eftir sigur í mótinu á Sepang brautinni í gær. Formúla 1 5. apríl 2010 13:15
Vettel hamingjusamur með stigin Red Bull ökumaðurinn Sebastian Vettel vann sitt fyrsta Formúlu 1 mót í dag, eftir að hafa skákað liðsfélaganum í fyrstu beygju og þurfti Mark Webber því að sjá á eftir mögulegum sigri til Vettels. Formúla 1 4. apríl 2010 17:14
Sebastian Vettel vann malaíska kappaksturinn - tvöfalt hjá Red Bull Þjóðverjinn Sebastian Vettel hjá Red Bull vann malaíska kappaksturinn í formúlu eitt í morgun en þetta var fyrsti sigur hans á tímabilinu. Þetta var góður dagur fyrir Red Bull liðið því félagi Vettel, Mark Webber, varð í 2. sæti eftir að hafa byrjað á ráspólnum en missti Vettel fram úr sér í byrjun. Formúla 1 4. apríl 2010 10:30
Webber ánægður með klókindi aðstoðarmanns Mark Webber og Ciaron tæknilegur aðstoðarmaður hans voru að vonum ánægðir með besta tíma í tímatökum í dag, en klókindi þeirra sameiginlega urðu til þess að Webber var einn manna á milligerð af regndekkjum í lokaumferðinni. Formúla 1 3. apríl 2010 17:32