Nico Rosberg fyrstur í mark í Austurríki Nico Rosberg vann keppnina í Austurríki, liðsfélagi hans Lewis Hamilton á Mercedes varð annar og Valtteri Bottas á Williams varð þriðji. Fjórfaldi heimsmeistarinn Sebastian Vettel hætti keppni. Formúla 1 22. júní 2014 13:35
Felipe Massa á ráspól í Austurríki Felipe Massa varð fyrstur til að stöðva ráspólaröð Mercedes liðsins. Liðsfélagi hans Valtteri Bottas var annar og Nico Rosberg varð þriðji. Formúla 1 21. júní 2014 12:45
Mercedes menn skiptu með sér föstudagsæfingunum Nico Rosberg á Mercedes varð fljótastur á fyrri æfingu dagsins en liðsfélagi hans Lewis Hamilton varð fljótastur á seinni æfingu dagsins. Formúla 1 20. júní 2014 21:30
„Líklegt að Schumacher verði alltaf öryrki“ Læknir í Sviss telur að ökuþórinn Michael Schumacher muni aldrei ná sér að fullu. Formúla 1 20. júní 2014 10:00
Raikkonen: Ekki fleiri tilviljanakenndir snúningar Kimi Raikkonen hefur átt í ítrekuðum vandræðum með að halda Ferrari bíl sínum í skefjum í beygjum á tímabilinu. Ótt og títt virðist bíllinn snúast án nokkurrar teljandi ástæðu. Raikkonen telur að nú sé liðið búið að finna lausnina á vandanum. Formúla 1 19. júní 2014 21:44
Rosberg: Ég hef sálfræðilegt forskot á Hamilton Nico Rosberg telur að hann hafi nú sálfræðilegt forskot á lisðfélaga sinn hjá Mercedes, Lewis Hamilton. Rosberg telur að hann hafi snúið taflinu við þegar hann náði 22 stiga forskoti á Hamilton í síðustu keppni. Formúla 1 19. júní 2014 10:00
Schumacher bregst við rödd konu sinnar Michael Schumacher er sagður bregðast við þegar hann heyrir rödd eiginkonu sinnar og að hann geti andað óstuddur í ákveðinn tíma. Formúla 1 17. júní 2014 11:30
Michael Schumacher úr dái Fjölskylda Þjóðverjans þakkar öllum þeim sem hafa stutt við bakið á þeim undanfarið hálft ár. Sport 16. júní 2014 10:12
Ferrari neitar að hafa hótað að hætta í F1 Forseti Ferrari, Luca di Montezemolo telur að Alþjóða akstursíþróttasambandið (FIA) hafi misst sjónar á því um hvað Formúla 1 á að snúast. Formúla 1 15. júní 2014 22:30
McLaren stefnir á að loka bilinu McLaren liðið er sannfært um að það sitji á uppfærslum sem dugi því til að keppa við fremstu lið strax í næstu keppni. Formúla 1 13. júní 2014 23:00
Batahorfur Schumacher sagðar hverfandi Þýskur fjölmiðill fullyrðir að Michael Schumacher hafi verið fluttur af gjörgæsludeild og sé ekki lengur í lífshættu. Formúla 1 13. júní 2014 17:04
Webber: Ricciardo ekki gert nein mistök Ástralinn Mark Webber hrósaði samlanda sínum og arftaka hjá Red Bull, Daniel Ricciardo eftir að sá síðarnefndi vann kanadíska kappaksturinn á sunnudag. Formúla 1 12. júní 2014 16:45
Hefði átt að stöðva Perez fyrir áreksturinn Rob Smedley telur að Force India hefði átt að láta Sergio Perez hætta keppni áður en áraksturinn varð vegna bremsuvandræða Formúla 1 11. júní 2014 09:30
Bílskúrinn: Veislan í Kanada Kanadíski kappaksturinn í ár einkenndist af drama og skakkaföllum. Dramatíkin náði nýjum hæðum og Mercedes vann ekki. Formúla 1 10. júní 2014 07:00
Ricciardo kom fyrstur í mark | Myndband Daniel Ricciardo varð hlutskarpastur í Formúlu 1 kappakstri gærdagsins sem fór fram í Kanada. Þetta var hans fyrsti sigur í keppninni, en hann ekur fyrir Mercedes. Formúla 1 9. júní 2014 09:00
Daniel Ricciardo vann í Kanada Daniel Ricciardo vann gríðarlega spennandi kappakstur í Kanada. Nico Rosberg á Mercedes varð annar og Sebastian Vettel varð þriðji. Formúla 1 8. júní 2014 19:47
Rosberg á ráspól í Kanada Mercedes menn halda áfram að drottna í Formúlu 1. Nico Rosberg hafði betur gegn liðsfélaga sínum Lewis Hamilton hjá Mercedes í tímatökunni fyrir kanadíska kappaksturinn. Sebastian Vettel varð þriðji og Williams mennirnir Valtteri Bottas og Felipe Massa fylgdu Vettel fast á eftir. Formúla 1 7. júní 2014 18:07
Alonso og Hamilton fljótastir Tvær æfingar fyrir kanadíska kappaksturinn fóru fram í gær. Fernando Alonso á Ferrari var fljótastur á fyrri æfingu dagsins en Lewis Hamilton á Mercedes á þeirri seinni. Formúla 1 7. júní 2014 11:45
Mercedes á meira inni Sam Bird, fyrrverandi þróunarökumaður Mercedes liðsins í Formúlu 1, telur að liðið eigi enn eftir að sýna fulla hæfni W05 bílsins. Formúla 1 5. júní 2014 19:00
Renault loksins með fullt afl í Kanada Franski bílaframleiðandinn telur að vélar sínar séu nú lausar við vandamálin sem hrjáðu þær í byrjun tímabilsins. Formúla 1 4. júní 2014 09:00
Ísmaðurinn hefur verið óheppinn Finninn Kimi Raikkonen sem ekur fyrir Ferrari telur að frammistaða sín í ár hafi verið betri en úrslitin hafi sýnt. Hann telur ólán sitt felast í atvikum sem hann fær ekki stjórnað. Formúla 1 3. júní 2014 06:30
Allison: Ferrari þarf að vera frumlegra James Allison tæknistjóri Ferrari liðsins segir að verkfræðingar liðsins verði að fá meira frelsi til að leita frumlegra lausna, ætli liðið sér að búa til bíl sem vinnur keppnir. Formúla 1 1. júní 2014 09:00
Hakkinen: Hamilton þarf að læra að tapa Mika Hakkinen og John Surtees, fyrrum heimsmeistarar í Formúlu 1 telja að viðbrögð Lewis Hamilton eftir Mónakó kappaksturinn hafi verið röng. Formúla 1 30. maí 2014 22:30
Massa er þakklátur fyrir að hafa verið hafnað af Ferrari Felipe Massa viðurkennir að hann sé þakklátur fyrir ákvörðun Ferrari að skipta honum út fyrir Kimi Raikkonen. Hann hefur fundið sig vel hjá Williams. Formúla 1 29. maí 2014 13:30
Mattiacci: Raikkonen er geysilega svalur gaur Nýráðinn liðsstjóri Ferrari, Marco Mattiacci finnst Kimi Raikkonen "geysilega svalur gaur“ og nýtur þess að vinna með finnska ökumanninum. Formúla 1 29. maí 2014 09:00
Hamilton ætlar ekki að faðma Rosberg aftur Það andar heldur betur köldu á milli liðsfélagana hjá Marcedes, Lewis Hamilton og Nico Rosberg. Formúla 1 27. maí 2014 10:45
Bílskúrinn: Hamilton og Rosberg ekki lengur vinir Mónakó kappaksturinn fór fram í gær og dramatíkin náði nýjum hæðum. Mercedes liðið hefur unnið allar keppnir tímabilsins. Formúla 1 26. maí 2014 22:00
Nico Rosberg vann aftur í Mónakó Þjóðverjinn Nico Rosberg leiddi hvern einasta hring í keppninni eftir að ná ráspól á umdeildan hátt í gær. Liðsfélagi Rosberg hjá Mercedes, Lewis Hamilton varð annar og Daniel Ricciardo á Red Bull varð þriðji. Formúla 1 25. maí 2014 13:54
Rosberg á ráspól í Mónakó Nico Rosberg náði ráspól í mikilvægustu tímatöku tímabilsins. Lewis Hamilton varð annar og Daniel Ricciardo varð þriðji. Brautin í Mónakó er mjög þröng og því erfitt að taka framúr. Þess vegna skiptir tímatakn í Mónakó meira máli en aðrar tímatökur. Formúla 1 24. maí 2014 13:05
Hamilton stundar ekki sálfræðihernað Lewis Hamilton ökumaður Mercedes liðsins í Formúlu 1 neitar að hafa stundað sálfræðihernað gegn liðsfélögum sínum með ásettu ráði. Formúla 1 24. maí 2014 00:01
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti