Frábær lokahringur hjá Birgi Leifi Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, lék lokahringinn á Opna austurríska mótinu í Vínarborg í dag á 67 höggum, eða 4 höggum undir pari. Hann er sem stendur í 18. sæti á samtals 8 höggum undir pari. Golf 10. júní 2007 16:47
Daly með áverka eftir konu sína Kylfingurinn skrautlegi John Daly spilaði annan hringinn á Memphis mótinu á PGA með skrámur í andliti eftir illdeilur við konu sína. Hann hringdi í lögreglu klukkan 6 að morgni að staðartíma og hélt því fram að konan hefði ráðist að sér með steikarhníf. Hann lét þessa uppákomu ekki á sig fá og hélt áfram að leika í mótinu eins og ekkert hefði í skorist. Þar er Ástralinn Adam Scott í forystu á sjö höggum undir pari. Golf 9. júní 2007 13:35
Besti hringurinn hjá Birgi til þessa Birgir Leifur Hafþórsson átti ljómandi góðan hring á Opna austurríska mótinu í Vínarborg í dag en hann hóf keppni í morgun og lék þriðja hringinn á 68 höggum. Birgir er því á fjórum höggum undir pari að loknum þremur keppnisdögum. Hann lék fyrsta hringinn í mótinu á einu höggi undir pari og annan hringinn fór hann á pari. Golf 9. júní 2007 13:29
Birgir Leifur komst áfram í Austurríki Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG lék annan hringinn á Opna austurríska mótinu í dag á 71 höggi, eða pari vallar. Hann er því samtals á 141 höggi, eða einu höggi undir pari eftir 36 holur. Hann er í 45.-59. sæti sem stendur og öruggur í gegnum niðurskurðinn. Íslenski kylfingurinn fékk 3 fugla á hringnum í dag, 12 pör og 3 skolla. Golf 8. júní 2007 17:20
Birgir Leifur í 44. sæti eftir fyrsta hring Atvinnukylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG lék fyrsta hringinn á Opna BA CA mótinu í Austurríki á 70 höggum eða einu höggi undir pari. Mótið er haldið í Vínarborg og er liður í Evrópumótaröðinni. Birgir er því í 44. sæti á mótinu en það er enski kylfingurinn Graeme Storm sem er í fyrsta sætinu eftir að hann lék fyrsta hringinn á 63 höggum eða 8 undir pari. Golf 7. júní 2007 18:43
16 kylfingar hafa farið holu í höggi í ár Þótt ekki sé langt liðið á golfvertíðina 2007 eru þegar komnar til skrifstofu GSÍ 16 tilkynningar um holu í höggi. Einhverjir fleiri en þeir sem eru á listanum hér fyrir neðan hafa náð draumahögginu í ár, en ekki tilkynnt það á réttu eyðublaði til GSÍ. Á meðan að svo er, þá er afrekið ekki viðurkennt af Einherjaklúbbnum. Golf 5. júní 2007 10:25
Sigurpáll og Nína sigruðu á Koprunni - þriðji hringurinn blásinn af Sigurpáll Geir Sveinsson og Nína Björk Geirsdóttir, bæði úr GKj, sigruðu á Kaupþingsmótinu á Korpunni í dag. Fyrirhugað var að leika þrjá hringi í mótinu, en vegna verðurs ákvað mótstjórn að blása þriðja hringinn af og því voru 36 holur látnar gilda. Golf 3. júní 2007 16:02
Alfreð, Ottó og Sigmundur deila efsta sæti Alfreð Brynjar Kristinsson úr GR og þeir Ottó Sigurðsson og Sigmundur Einar Másson úr GKG deila efsta sæti eftir fyrsta hring af þremur á 2. stigamótinu á Kaupþings mótaröðinni sem fram fer á Korpúlfsstaðavelli. Þeir léku allir á 74 höggum, eða 2 höggum yfir pari. Mjög hvasst var í dag og þá gekk á með skúrum fyrir hádegi. Golf 2. júní 2007 18:29
Birgir Leifur úr leik Birgir Leifur komst ekki í gegnum niðurskurðinn á Opna velska Meistaramótinu í dag. Hann náði sér ekki strik og endaði á átta höggum yfir pari. Hann lauk hringnum á 73 höggum. Golf 1. júní 2007 19:12
Birgir Leifur á einu höggi yfir pari Birgir Leifur hefur lokið 9 holum af 18 á öðrum keppnisdegi á Opna velska Meistaramótinu í dag. Hann fór þessar 9 holur á einu höggi yfir pari og því samtals á 5 höggum yfir pari. Golf 1. júní 2007 15:57
Birgir Leifur ósáttur við fyrsta hringinn Birgir Leifur Hafþórsson var ekki sáttur við spilamennsku sína á fyrsta hringnum á opna velska mótinu í dag þar sem hann lauk leik á 73 höggum eða fjórum yfir pari. Í samtali við Kylfing.is sagði Birgir að hann hefði verið að missa of mörg stutt pútt og það hefði kostað sig dýrt. Golf 31. maí 2007 18:08
Birgir Leifur á fjórum höggum yfir pari Birgir Leifur lauk fyrsta degi sínum á opna welska meistaramótinu á fjórum höggum yfir pari en mótið fer fram á The Celtic Manor vellinum. Birgir Leifur fékk 5 skolla og einn fugl. Golf 31. maí 2007 15:33
Anders Hansen sigraði á BMW mótinu Englendingurinn Justin Rose og Daninn Anders Hansen urðu efstir og jafnir á BMW PGA meistaramótinu sem fram fór um helgina á Wentworth-vellinum í Surrey á Englandi. Þeir Rose og Hansen léku hringina fjóra á 8 höggum undir pari, einu höggi færra en Vijay Singh og Richard Sterne sem deildu 3.-4. sæti. Golf 27. maí 2007 18:49
Stefán Már og Sigmundur í hópi efstu manna í Austurríki Stefán Már Stefánsson, kylfingur úr GR, lék frábærlega á Opna austurríska áhugamannamótinu í golfi í dag en hann lék hringinn á 68 höggum, fjórum höggum undir pari. Eftir því sem fram kemur á vefnum kylfingur.is er Stefán á einu höggi undir pari líkt og Sigmundur Einar Másson úr GKG sem á titil að verja á mótinu. Golf 25. maí 2007 13:21
Sigurpáll lék vel í Lundi Sigurpáll Geir Sveinsson, kyflingur úr Kili, spilaði lokahringinn á Gambro-mótinu í Lundi í Svíþjóð á 67 höggum, eða þremur höggum undir pari. Lék hann hringina þrjá á 210 höggum eða pari og hafnaði í 12. sæti og fékk 73 þúsund krónur í verðlaunafé. Golf 18. maí 2007 15:40
Kaupþingsmótaröðin að hefjast Golfssamband Íslands hefur skrifað undir samning við Kaupþing banka vegna íslensku mótaraðarinnar í golfi og mun Íslandsmótið ganga undir nafninu, Kaupþingsmótaröðin. Fyrsta mót sumarsins fer fram á Garðavelli við Akranes og hefst á laugardaginn en 123 keppendur eru skráðir til leiks. Golf 16. maí 2007 19:13
Phil Mickelson sigraði á Players Phil Mickelson fór með sigur af hólmi á Players meistaramótinu. Eftir glæsilegan lokahring endaði hann á 11 undir pari. Hlaut hann að launum 103 milljónir íslenskra króna. Golf 14. maí 2007 14:20
Birgir Leifur 10 höggum á eftir efsta manni í Andalúcíu Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, lék þriðja hringinn á Opna Andalúsíumótinu í morgun á tveimur höggum undir pari. Hann er núna 10 höggum á eftir efsta manni, Englendingnum Lee Westwood. Golf 12. maí 2007 15:20
Birgir komst í gegnum niðurskurðinn Birgir Leifur Hafþórsson heldur áfram að gera það gott á Evrópumótaröðinni en í gær komst hann í gegnum niðurskurð á móti sem fram fer á Spáni. Birgir Leifur lék á fjórum höggum undir pari í gær og er samtals á þrem höggum undir pari. Það setur hann í 30. sæti mótsins ásamt nokkrum öðrum kylfingum. Golf 12. maí 2007 09:00
Tiger langt frá sínu besta á Players Besti kylfingur heims, Tiger Woods, var langt frá sínu besta á fyrsta hringnum á Players-meistaramótinu í golfi. Woods lék á 3 höggum yfir pari og er í 58.-74. sæti. Bein útsending verður á Sýn annað kvöld og á sunnudagskvöld. Golf 11. maí 2007 11:26
Birgir Leifur nokkuð öruggur áfram í Andalúsíu Birgir Leifur Hafþórsson er á þremur höggum undir pari eftir annan keppnisdag á Andalúsíumótinu í golfi á Spáni í dag. Hann er sem stendur í 22. sæti og er öruggur áfram í gegnum niðurskurðinn. Golf 11. maí 2007 11:14
Birgir Leifur á höggi yfir pari Birgir Leifur Hafþórsson lék fyrsta hringinn á Opna Andalúsíumótinu á Spáni í dag á 73 höggum, eða einu höggi yfir pari. Hann lék fyrri níu á 37 höggum og seinni níu á 36 höggum. Hann fékk 3 fugla á hringnum, 12 pör, 2 skolla og einn skramba, sem kom á 7. braut. Hann er sem stendur í 81. - 94. sæti, en margir keppendur eiga eftir að ljúka leik í dag. Golf 10. maí 2007 16:09
57. sigur Tiger Woods á PGA Það eru ekki mörg mót á PGA-mótaröðinni sem Tiger Woods hefur ekki unnið. Þeim fækkaði enn í kvöld þegar hann sigraði í fyrsta sinn á Wachovia Meistaramótinu í Norður-Karólínu. Þetta var jafnframt 57. sigur hans á PGA-mótaröðinni. Þetta var sjötta mótið sem hann tekur þátt í á þessu ári og hefur hann komist í gegnum niðurskurðinn í þeim öllum og sigrað í þremur. Golf 7. maí 2007 02:26
Birgir Leifur upp um 52 sæti á peningalistanum Spánverjinn Gonzalo Fernandez-Castano sigraði á Opna ítalska mótinu í dag eftir bráðabana við Markus Brier frá Austurríki. Þeir léku báðir þrjá hringi á 16 höggum undir pari. Þeir léku 18. brautina tvisvar og í síðara skiptið hafði Castano betur og fékk um 25 milljónir króna í verðlaunafé fyrir fyrsta sætið. Brier fór heim með 16 milljónir. Golf 7. maí 2007 01:15
Besti árangur Birgis Leifs á ferlinum Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, lék lokahringinn á Opna ítalska mótinu í Mílanó í dag á 69 höggum, eða 3 höggum undir pari. Hann lék hringina þrjá á samtals 13 höggum undir pari og er í 11. sæti og er ljóst að þetta er besti árangur hans á ferlinum og um leið besti árangur Íslendings á alþjóðlegu golfmóti. Hann fékk skolla á lokaholunni, sem kostaði hann nokkur þúsund evrur. Golf 6. maí 2007 16:17
Birgir Leifur í beinni á Sýn á morgun Sjónvarpsstöðin Sýn verður með beina útsendingu frá lokadegi opna ítalska mótsins í golfi upp úr klukkan 12 á morgun og þar gefst áhorfendum tækifæri til að fylgjast með Birgi Leifi Hafþórssyni keppa á Evrópumótaröðinni. Birgir Leifur hefur verið í miklu stuði á mótinu og er sem stendur í 7-12 sæti. Golf 5. maí 2007 20:21
Birgir Leifur: Spennustigið verður hátt Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, er í 7.-12. sæti fyrir lokahringinn á Opna ítalska mótinu sem fram fer á morgun. Hann verður væntanlega í þriðja síðasta holli og fer þá út um klukkan níu að íslenskum tíma. Hann lék á 67 höggum, eða 5 höggum undir pari, í dag eins og fyrsta hringinn á fimmtudag. Birgir er því samtals á 10 höggum undir pari og er aðeins fjórum höggum frá toppsætinu. Golf 5. maí 2007 16:49
Kláraði bara fimm holur Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur í GKG, náði bara að klára fimm holur á öðrum hring á opna Ítalíumótinu í golfi í Mílanó í gær. Golf 5. maí 2007 00:01
Frábær fyrsti hringur hjá Birgi Leifi Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG byrjar einstaklega vel opna Telecom mótinu í golfi sem fram fer á Ítalíu. Birgir lauk hringnum á 67 höggum í dag eða fimm höggum undir pari. Hann er í 14. sæti í mótinu en sænski kylfingurinn Joakim Backström er í efsta sæti mótsins á tíu höggum undir pari. Golf 3. maí 2007 19:05
Tiger og Michael Jordan saman í liði Tveir af frægustu íþróttamönnum sögunnar, körfuboltamaðurinn Michael Jordan og Tiger Woods, eru saman í liði í Pro/Am móti sem fram fer á Quail Hollow vellinum í Norður-Karólínu í dag. Golf 2. maí 2007 19:49
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti