Óttast ný afbrigði í Norður-Kóreu Faraldur kórónuveirunnar á meðal óbólusetts fólks eins og nú geisar í Norður-Kóreu eykur hættuna á að ný afbrigði verði til, að mati Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO). Stjórnvöld í Norður-Kóreu viðurkenndu í fyrsta skipti að veiran hefði stungið sér niður í landinu á dögunum. Erlent 17. maí 2022 19:10
Sex sagðir hafa látist vegna Covid-19 í Norður-Kóreu Aðeins einum sólarhring eftir að kórónuveiran skaut fyrst upp kollinum í Norður-Kóreu, að sögn yfirvalda, hafa nú fyrstu dauðsföllin verið staðfest einnig. Erlent 13. maí 2022 07:15
Staðfesta fyrsta tilfelli Covid-19 í Norður-Kóreu Yfirvöld í Norður-Kóreu hafa lýst yfir neyðarástandi í landinu eftir að fyrsta tilfelli kórónuveirunnar var staðfest í morgun. Erlent 12. maí 2022 08:14
Norður-Kóreumenn skutu enn einni eldflauginni á loft Yfirvöld í Norður-Kóreu skutu á loft enn einni eldflauginni í nótt. Þetta fullyrða Suður-Kóreumenn og Japanir en flaugin mun hafa lent í sjónum austan við landið. Erlent 4. maí 2022 07:24
Norður-Kóreskir tölvuþrjótar beri ábyrgð á gríðarstórri árás á tölvuleik Bandarísk yfirvöld hafa tengt Norður-Kóreska tölvurþjóta við gríðarlega umfangsmikla tölvuárás. Tölvuþrjótarnir stálu ígildi áttatíu milljarðum íslenskra króna af tölvuleikjaspilurum leiksins Axie Infinity í mars. Leikjavísir 15. apríl 2022 13:54
Hótar að bregðast við minnstu árás með kjarnorkuvopnum Geri Suður-Kórea nokkurs konar árás á Norður-Kóreu, verður henni svarað með kjarnorkuvopnum. Þetta sagði Kim Yo Jong, systir einræðisherrans Kim Jong Un, samkvæmt ríkismiðli Norður-Kóreu. Erlent 4. apríl 2022 23:43
Segja skot stærstu eldflaugarinnar hafa verið sviðsett Her Suður-Kóreu segir að yfirvöld í Norður-Kóreu hafi sviðsett eldflaugaskot þann 24. mars. Einræðisstjórn Kim Jong Un hafi þóst skjóta Hwasong-17 eldflaug á loft, sem er sú stærsta sem Kóreumenn eiga, en þess í stað skotið smærri og eldri eldflaug af gerðinni Hwasong-15. Erlent 30. mars 2022 09:32
Einlæg og barnsleg gleði þegar einræðisherra skaut upp eldflaug Kim Jong-un einræðisherra Norður- Kóreu og meðreiðarsveinar hans ætluðu hreinlega að rifna úr stolti þegar risastórri eldflaug var skotið upp í landinu í gær. Önnur eins tær gleði er sjaldséð í heimi stjórnmálanna. Erlent 25. mars 2022 21:01
Stærstu eldflaug Norður-Kóreu skotið á loft Ríkisstjórn Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, skaut í morgun stærstu eldflaug sem verkfræðingar einræðisríkisins hafa hingað til framleitt á loft. Eldflaugin flaug í þúsunda kílómetra hæð og lenti í sjónum undan ströndum Japans, innan lögsögu ríkisins. Erlent 24. mars 2022 10:04
Ný eldflaug sögð hafa sprungið í loft upp yfir Norður-Kóreu Nýtt eldflaugaskot frá Norður-Kóreu virðist hafa misheppnast í morgun og er eldflaugin sögð hafa sprungið í loft upp. Talið er að um sé að ræða eldflaug sem geti borið kjarnorkuvopn en þetta er í tíunda sinn á þessu ári sem eldflaug er skotið á loft frá einræðisríkinu einangraða. Erlent 16. mars 2022 09:41
Sýndu tveggja tíma þátt um afrek Kims Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, og Ri Sol Ju, eiginkona hans, sóttu nýársfögnuð í Norður-Kóreu þar sem gestir fögnuðu honum og hrósuðu í hástert fyrir að koma á nýju skeiði afls í Norður-Kóreu. Það er samkvæmt ríkismiðlum einræðisríkisins en ríkisstjórn Kims hefur framkvæmt fjölmargar tilraunir með eldflaugum á undanförnum vikum. Erlent 2. febrúar 2022 09:28
Óttast nýjar tilraunir með langdrægar eldflaugar Yfirvöld í Kína staðfestu í morgun að meðaldrægri eldflaug, sem gæti verið skotið að Gvam, hafi verið skotið á loft um helgina. Þetta var stærsta og langdrægasta eldflaug sem Kóreumenn gera tilraunir með um árabil. Erlent 31. janúar 2022 09:29
Eldflaugaskot Norður-Kóreu það stærsta síðan 2017 Norður-Kóreumenn halda áfram eldflaugatilraunum og skutu í gær stærsta eldflaugaskoti sínu síðan 2017. Skotið er það sjöunda í þessum mánuði. Erlent 30. janúar 2022 16:11
Íhugar að hefja aftur tilraunir með langdrægar eldflaugar Ríkisstjórn Norður-Kóreu ætlar mögulega að hefja á nýjan leik tilraunir með langdrægar eldflaugar sem geta borið kjarnorkuvopn. Sú ákvörðun var tekin á ríkisráðsfundi í vikunni að Kim Jung-un, einræðisherra Norður-Kóreu, íhugaði að hefja tilraunirnar aftur vegna „óvinveittrar stefnu“ Bandaríkjanna í garð einræðisríkisins. Erlent 20. janúar 2022 11:05
Skutu eldflaugum í fjórða sinn á mánuði Tveimur eldflaugum var skotið á loft frá frá Norður-Kóreu í nótt. Eldflaugunum var skotið frá flugvellinum í Pyongyang, höfuðborg einræðisríkisins einangraða en þetta var í fjórða sinn á einungis mánuði sem sambærilegar tilraunir eru gerðar. Erlent 17. janúar 2022 09:35
Skutu enn einni eldflauginni á loft Eldflaug var skotið frá Norður-Kóreu í nótt og var það í fyrsta sinn í minnst tvo mánuði. Ekki liggur fyrir hvers konar eldflaug um er að ræða en henni var skotið frá sambærilegum stað og annarri eldflaug í fyrra sem ríkisstjórn einræðisríkisins sagði vera hljóðfráa eldflaug. Erlent 5. janúar 2022 08:24
Flúði aftur yfir víggirt landamæri til Norður-Kóreu Maður sem sást fara norður yfir landamæri Norður- og Suður-Kóreu um helgina hafði áður flúði úr norðri og til suðurs. Varnarmálaráðuneyti Suður-Kóreu segir manninn hafa flúið frá einræðisríkinu í norðri í fyrra um sömu leið um austurhluta landamæranna víggirtu. Erlent 3. janúar 2022 08:47
Suður-Kóreumaður hefur flúið norður yfir landamærin Suðurkóreskur ríkisborgari hefur flúið yfir landamærin til Norður-Kóreu. Þetta staðfestir suðurkóreski herinn en það er mjög sjaldséð að fólk flýi úr suðrinu og norður. Erlent 2. janúar 2022 08:26
Squid Game smyglari dæmdur til dauða Karlmaður, sem smyglaði afritum af vinsælu Netflix-þáttunum Squid Game til Norður-Kóreu, hefur verið dæmdur til dauða. Upp komst um manninn eftir að stjórnvöld gómuðu gagnfræðiskólanema við að horfa á þættina. Erlent 25. nóvember 2021 10:13
Skutu skotflaug á Japanshaf Norðurkóreumenn skutu skotflaug í sjóinn undan ströndum Japans í dag. Talið er að flaugin sem var notuð sé hönnuð til að vera skotið á loft frá kafbáti. Erlent 19. október 2021 08:23
Norður-Kórea: Squid Game endurspegli ógeðfellt samfélag Suður-Kóreu Þættirnir Squid Game frá Suður-Kóreu, sem hafa notið gífurlegra vinsælda á Netflix, eru allegóría fyrir ógeðfellt og stéttaskipt samfélag Suður-Kóreu. Það er samkvæmt vefsíðu frá Norður-Kóreu þar sem áróður ríkisstjórnar landsins er birtur. Erlent 12. október 2021 11:10
Vill leggja meiri áherslu á að bæta líf þegna sinna Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, kallaði eftir því í gær að embættismenn sínir legðu meiri áherslu á að bæta líf íbúa landsins. Það væri nauðsynlegt vegna verulega slæms ástands efnahags landsins. Erlent 11. október 2021 14:09
Kóreumenn hóta öryggisráðinu Ráðamenn í Norður-Kóreu hafa brugðist reiði við ályktunartillögu Frakka til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna og hótuðu ráðinu í dag fyrir að gagnrýna eldflaugavopnaáætlun ríkisins. Erlent 3. október 2021 20:00
Gerðu tilraun með nýja eldflaug Ráðamenn í Norður-Kóreu segjast hafa gert tilraun með nýja tegund eldflauga sem hafi verið þróaðar til að skjóta niður flugvélar og aðrar eldflaugar. Nýju eldflauginni var skotið á loft í gær og var það í fjórða sinn á nokkrum vikum sem Kóreumenn skjóta eldflaug á loft. Erlent 1. október 2021 09:46
Sakar Bandaríkin um leikaraskap en vill opna aftur á samskiptin við Suður-Kóreu Kim Jong-un, leiðtogi Norður-Kóreu, segir tilboð Bandaríkjamanna um viðræður og sættir leikrit en hann hafi fyrirskipað embættismönnum að opna aftur fyrir samskiptalínur við Suður-Kóreu til að „stuðla að friði“. Erlent 30. september 2021 07:35
Norður-Kórea skaut upp hljóðfrárri eldflaug Herinn í Norður-Kóreu tilkynnti fyrir stundu að hann hefði skotið á loft hljóðfrárri eldflaug sem gæti borið kjarnaodda. Erlent 28. september 2021 22:53
Norður-Kórea kynnti færanlegan lestarskotpall Spenna fer vaxandi á Kóreu-skaga eftir að bæði Suður- og Norður-Kórea hafa sýnt mátt sinn með því að skjóta eldflaugum á loft. Myndband sýnir að Norður-Kórea hefur nú þróað færanlegan eldflaugaskotpall. Elflaugunum er skotið af lestarvagni. Erlent 16. september 2021 23:30
Stigmagnandi spenna vegna eldflaugaæfinga á Kóreuskaga Eldflaugatilraunir stjórnvalda í Norður Kóreu hafa valdið vaxandi spennu í samskiptum Kóreuríkjanna. Kínverjar, Japanir og Bandaríkjamenn hafa einnig lýst áhyggjum af þróun mála. Erlent 15. september 2021 19:20
Norðurkóreumenn sagðir hafa gert tilraun með sprengjuflaug Norðurkóreumenn virðast enn og aftur hafa skotið flugskeytum í tilraunaskyni og nú virðist sem um sprengjuflaug hafi verið að ræða, að sögn yfirvalda í Suður-Kóreu. Undir þetta taka stjórnvöld í Japan. Erlent 15. september 2021 07:11
Gerðu tilraunir með nýja gerð langdrægrar stýriflaugar Stjórnvöld í Norður-Kóreu sögðust í morgun hafa prófað nýja gerð nokkuð landrægrar stýriflaugar sem ógnar stærstum hluta Japans. Erlent 13. september 2021 07:20