Rangárþing eystra

Rangárþing eystra

Mannfjöldi: 2.073 (2025). Flatarmál: 1.832 ferkílómetrar. Stærstu byggðakjarnar: Hvolsvöllur, Landeyjar, Eyjafjallahreppur, Fljótshlíðarhreppur, Hvolhreppur.


Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

„Ætlum rétt að vona að þessi tímalína standist“

Framkvæmdastjóri Herjólfs segir ekki hafa áhyggjur af samgöngum fyrir Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum þó enn verði tafir á viðgerð Herjólfs. Þá gangi vel að koma fólki frá Eyjum eftir Orkumótið sem fram fór þar um helgina þrátt fyrir að fella hafi þurft niður ferðir með Baldri.

Innlent
Fréttamynd

Hefja borun rannsóknar­holu á Land­eyja­sandi í vikunni

Allur undirbúningur er nú á lokastigi og er allt klárt til að hefja fóðrun og kjarnaborun á rannsóknarholunni EG-02 á Landeyjasandi. Verkefnið er einn af lykilþáttunum í viðamiklum jarðfræðirannsóknum sem munu skera úr um fýsileika þess að gera jarðgöng á milli lands og Vestmannaeyja.

Innlent
Fréttamynd

Að­stoðuðu ferða­menn að Fjalla­baki

Björgunarsveitir á Suðurlandi voru í nótt boðaðar út til aðstoðar ferðalöngum sem treystu sér ekki til að halda för áfram. Björgunarsveitirnar Dagrenning á Hvolsvelli ásamt Stjörnunni í Skaftártungu og Kyndli á Kirkjubæjarklaustri voru boðaðar út og héldu inn á Fjallabak úr sitthvorri áttinni.

Innlent
Fréttamynd

Fengu ekki Baldur

Vegna veður- og ölduspár fyrir helgina vara forsvarsmenn Herjólfs við því að aðstæður geti verið erfiðar með tilliti til siglinga til Landeyjahafnar.

Innlent
Fréttamynd

Skóla­starf til fyrir­myndar

Málefni leik-, grunn- og framhaldsskóla eru okkur í D-lista og annarra lýðræðissinna í Rangárþingi eystra hugleikin. Með öflugu, framsæknu og faglegu starfi á öllum skólastigum leggjum við sterkan grunn að framtíð barnanna okkar. Þar er auðvitað lykilatriði að huga vel að starfsumhverfi kennarra og annarra starfsmanna til að auðvelda þeim að takast á við það verkefni að kenna og leiðbeina þeim sem erfa munu landið.

Skoðun
Fréttamynd

Sterkt sam­fé­lag byggir á fjöl­breyttu at­vinnu­lífi

Rekstur sveitarfélagsins Rangárþings eystra á síðasta kjörtímabili hefur gengið vel og er það eitt af okkar aðaláherslumálum á komandi kjörtímabili að halda því áfram. Ábyrgur rekstur á að skila sér til fólks og fyrirtækja. Skattfé íbúa skal nýta vel í þeirra þágu í formi góðrar þjónusta, hóflegra álaga og lækkun gjalda.

Skoðun
Fréttamynd

Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár

Stefnt er á að kjarnaborunum - í tengslum við jarðgangagerð til Vestmannaeyja - ljúki í lok árs. Framkvæmdastjóri Eyjaganga er ekki í vafa um að göngin séu arðbær og segir að ef allt gangi að óskum verði hægt að keyra á milli lands og eyja eftir tíu ár.

Innlent
Fréttamynd

Baldur til Eyja

Ferjan Baldur mun sigla til og frá Vestmannaeyjum tímabundið vegna slæms ástands í Landeyjahöfn. Á meðan falla ferðir Baldurs yfir Breiðafjörð niður. Gert er ráð fyrir fyrstu siglingunni til Eyja á föstudag en ferðaáætlun hefur ekki verið birt.

Innlent
Fréttamynd

„Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“

Innviðaráðherra segir að reynt hafi verið að fá belgískt fyrirtæki, sem tekur við dýpkun Landeyjahafnar frá og með haustinu, fyrr að verkinu. Hann segist þokkalega ánægður með þær aðgerðir sem ráðuneytið kynnti í gær til að bæta samgöngur til Vestmannaeyja.

Innlent
Fréttamynd

„Ég veit ekkert hve­nær þeir komast aftur heim“

Íbúi í Vestmannaeyjum sem hefur skrifað pistil daglega sautján daga í röð til að mótmæla ófremdarástandi í samgöngum við Eyjar segir Vegagerðina bregðast Eyjamönnum. Skipuleggjandi Puffin stingur upp á sjö tíma siglingu með Herjólfi fyrir ráðamenn til að þeir átti sig á stöðunni.

Innlent
Fréttamynd

„Botninum hefur verið náð“

Herjólfur var sex klukkutíma að sigla frá Þorlákshöfn til Vestmannaeyja í gær vegna ólgusjós og vélarbilana. Framkvæmdastjóri Herjólfs segir ófremdarástand ríkja í samgöngumálum í Eyjum. Botninum hafi einfaldlega verið náð. 

Innlent
Fréttamynd

Mótorinn í Herjólfi þarf til út­landa

Ljóst er að senda þarf mótorinn í Herjólfi utan til viðgerðar og verður skipið af þessum sökum ekki í áætlunarsiglingum milli lands og Eyja á mánudag og þriðjudag heldur mun Breiðafjarðarferjan Baldur leysa af.

Innlent
Fréttamynd

„Þetta er erfiður mánu­dagur“

Bilun kom upp í vélbúnaði farþegaferjunnar Herjólfs og siglir skipið nú á takmörkuðu afli. Siglingartími hefur lengst vegna þessa. Ferðir eru enn á áætlun þrátt fyrir bilunina og siglir Herjólfur til Þorlákshafnar í stað Landeyjarhafnar vegna aðstæðna í höfninni.

Innlent
Fréttamynd

Ár­nesingur og Rang­æingur grafa fyrir Hvammsvirkjun

Verksamningur um framhald framkvæmda við Hvammsvirkjun var undirritaður í dag milli Landsvirkjunar og tveggja sunnlenskra verktaka. Kærumál eru þó enn í gangi en Landsvirkjunarmenn vonast samt til að geta boðið út stærstu verkþættina í sumar.

Innlent
Fréttamynd

„Erum við ekki að fara að­eins fram úr okkur“

Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, segist skoða það þegar að því kemur hvort hún myndi ráða sig sem bæjarstjóra í Vestmannaeyjum eða annars staðar. Íris tilkynnti nýlega að hún ætli ekki aftur fram. Íris var til viðtals í Bítinu og ræddi þar einnig samgöngumál til Vestmannaeyja sem hún segir óboðleg á þessari stundu.

Innlent
Fréttamynd

Hrun­varnir við Holtsnúp verði til­búnar í ágúst

Vegagerðin hefur boðið út hrunvarnir meðfram þjóðvegi 1 við Holtsnúp við Steinafjall undir Eyjafjöllum. Staðurinn hefur verið til skoðunar um nokkurt skeið og lét Vegagerðin hanna fyrirhugað mannvirki í kjölfar banaslyss sem þar varð í mars 2025.

Innlent
Fréttamynd

„Við erum ekki að biðja um neitt meira en aðrir fá“

Bæjarstjóri Vestmannaeyja segir stöðuna varðandi dýpkun Landeyjahafnar líta betur út í dag en í gær þegar Vegagerðin tilkynnti um bilun í dýpkunarskipi. Eyjamenn biðji ekki um meira en aðrir og óboðlegt sé að viðbragð sé ekkert þegar staða sem þessi kemur upp.

Innlent