51 prósent sé nóg Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segist ekkert geta fullyrt um hvort að Ísland fái undanþágur í mögulegum aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Ísland yrði stærsta fiskveiðiþjóð sambandsins og fara þurfi inn í viðræðurnar, sem eigi að kosta um tvo milljarða, með stolti. Segi 51 prósent kjósenda nei verði niðurstaðan virt. Innlent 6. ágúst 2026 10:02
Bein útsending: Kynna skýrslu um áhrif ESB á bændur Bændasamtök Íslands boða til blaðamannafundar þar sem kynnt verður skýrsla milliþinganefndar Bændasamtaka Íslands sem fjallar um áhrif mögulegrar aðildar Íslands að Evrópusambandinu á íslenskan landbúnað. Fundinn má sjá í beinni útsendingu á Vísi. Innlent 6. ágúst 2026 09:38
Hnífjafnt í nýrri könnun Ný könnun Gallup sem gerð er fyrir Áfram Ísland-hreyfinguna leiðir í ljós að kjósendur skiptast í tvær jafnar fylkingar þegar spurt er um afstöðu þeirra í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu. Átta prósent segjast óákveðin en 46 prósent eru síðan á sitt hvorri hliðinni, já og nei. Innlent 5. ágúst 2026 22:10
Kristrún sat fyrir svörum og ræddi við hlustendur Kristrún Frostadóttir var gestur Bítisins á Bylgjunni í morgun. Þar sat hún fyrir svörum um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu, stöðuna í efnahagsmálunum og margt fleira. Þá var opnað fyrir símann og hlustendur fengu tækifæri til að ræða við forsætisráðherra. Innlent 5. ágúst 2026 21:01
Ekki á dagskrá að opna bókhaldið Lítið sem ekkert eftirlit er með fjármögnun þeirra félagasamtaka sem heyja nú kosningabaráttu í kringum atkvæðagreiðslu 29. ágúst um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Þar sem þau eru ekki skilgreind stjórnmálasamtök er ekkert þak á fjárframlögum til samtakanna og ekki þarf að birta bókhald þeirra opinberlega. Innlent 5. ágúst 2026 20:31
„Sá spyr sem ekki veit“ „Ég er döpur yfir því hve hatrömm orðaskipti maður hefur séð og ómakleg. Það kemur mér rosalega á óvart hvað lýðræðinu er sýnd mikil lítilsvirðing. Við erum búin að berjast í hundrað ár fyrir fullveldinu okkar og síðan fáum við lýðveldið okkar 1944. Fyrst og síðast byggir það á svipuðu þegar við erum að kjósa okkur valdhafa, í þetta skipti erum við að gefa þjóðinni kost á að segja já eða nei við samningaviðræðum.“ Innlent 5. ágúst 2026 17:12
Sjá segir sænska krónu tengda evru, sem hún er ekki Í nýju myndskeiði á Instagram-síðu samtakanna Sjá, sem berjast fyrir því að þjóðin segi já við áframhaldandi aðildarviðræðum við Evrópusambandið í ágúst, segir Margrét Rós Sigurjónsdóttir að hún hafi greitt lægri vexti af húsnæðisláni í sænskum krónum, sem væri tengd evru. Sænsk króna er ekki tengd evru. Innlent 5. ágúst 2026 16:20
Segir enga tryggingu fyrir annarri þjóðaratkvæðagreiðslu Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, telur að já-niðurstaða í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst verði túlkuð erlendis sem endurnýjuð ósk Íslands um aðild að Evrópusambandinu. Innlent 5. ágúst 2026 11:32
Spurningin kom Guðlaugi Þór í opna skjöldu Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi ráðherra, segir það þvælukenningu að Ísland hefði komið betur út úr Icesave hefði Ísland verið þá hluti af Evrópusambandinu. Hann átti erfitt með svör þegar hann var spurður út í sína aðild að innleiðingu laga Evrópusambandsins. Innlent 5. ágúst 2026 10:38
Meirihluti telur vexti lækka en undanþágu í sjávarútvegi ólíklega Meirihluti þeirra sem tók afstöðu í nýrri Maskínukönnun telur að vextir á Íslandi myndu lækka ef landið gengi í Evrópusambandið. Svipað hlutfall telur hins vegar ólíklegt að Ísland fengi varanlegar undanþágur í sjávarútvegi. Innlent 4. ágúst 2026 18:31
Stór göt í umræðunni um Ísland og ESB og hugsanlegar aðildarviðræður Af hverju er íslenskt samfélag í fremstu röð meðal ríkja heims - svo stöndugt sem raun ber vitni? Svarið felst þegar allt kemur til alls í auðlindum þjóðarinnar til lands og sjávar - og sérstakri og eftirsóttri náttúrufegurð þess. Vegna þessara grunnatriða er Ísland í lagi og Íslendingar ofan á í tilverunni og gott betur. Umræðan 4. ágúst 2026 13:38
Greinir á við kjósendur sína Jón Ferdínand Estherarson, formaður Sósíalistaflokks Íslands, segir stjórn flokksins taka því með miklu jafnaðargeði að ný skoðanakönnun Maskínu sýni að tæp 80 prósent stuðningsmanna Sósíalistaflokksins vilja halda áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Innlent 2. ágúst 2026 14:21
Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Meirihluti þeirra sem taka afstöðu til þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið ætlar að segja já í ágúst. Elsti aldurshópurinn er líklegastur til þess að greiða atkvæði með aðildarviðræðunum. Innlent 30. júlí 2026 13:52
Segist hafa skipt um skoðun varðandi aðildarviðræðurnar Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, segir það óviðunandi hlutskipti fyrir stolta og fullvalda þjóð að vera umsagnaraðili frekar en beinn þáttakandi í mótun regluverks sem EES-samstarfið grundvallast á. Að setjast við borðið sé til þess gert að styrkja fullveldið, ekki veikja það. Innlent 29. júlí 2026 12:20
„Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Þekkt er að, forðum daga, fékk Andrés nóg eftir þrjú tonn af sandi. Hæstvirtur forsætisráðherra er þó greinilega engin sandhrúga því nafnarnir Andrés og Andrés fá ekki nóg af Kristrúnu Frostadóttur eftir frammistöðu hennar í hlaðvarpsviðtali hjá The rest is politics. Hlaðvarpið er breskt og þykir eitt hið virtasta á sínu sviði. Innlent 29. júlí 2026 00:42
Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Doktor í stefnumótun og lektor við viðskipta- og hagfræðideild Háskólans í Reykjavík sem hefur rannsakað samkeppnishæfni stóru íslensku sjávarútvegsfyrirtækjanna telur margt benda til þess að fyrirtækin gætu unað sér vel innan Evrópusambandsins og jafnvel styrkt sig. Viðskipti innlent 28. júlí 2026 16:24
Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir segist standa við hvert orð sem hún sagði í hátíðarræðu sinni í Skálholti þar sem hún sagði Ísland ekki eiga að þykjast vera of fínt til að íhuga aðild að Evrópusambandinu. Það sé hins vegar allt önnur umræða hvort að aðild sé rétti valkosturinn á þessum tímapunkti. Innlent 28. júlí 2026 15:18
Meirihluti aðildarfyrirtækjanna andvígur Andstaða aðildarfyrirtækja Samtaka atvinnulífsins við aðild Íslands að Evrópusambandinu hefur aukist samkvæmt nýrri könnun Gallup meðal fyrirtækjanna. Fullveldið vegur hvað þyngst. Innlent 28. júlí 2026 12:39
Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Margfalt fleiri greiddu atkvæði á fyrsta degi utankjörfundaratkvæðagreiðslu vegna Evrópusambandsviðræðna en í síðustu sveitarstjórnarkosningum. Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu segir áhugann virðast mikinn. Innlent 28. júlí 2026 11:53
Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar um það hvort Ísland eigi að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið hófst í dag. Það sem af er degi hafa ríflega 250 manns greitt atkvæði hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu sem bendir til mikils áhuga þjóðarinnar á atkvæðagreiðslunni. Innlent 27. júlí 2026 16:42
Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi „Varanlegar undanþágur hafa verið hluti af ESB frá upphafi og það er ekkert í regluverki ESB eða neitt sem hefur breyst í stofnsáttmálum sem útilokar að hægt sé að ná varanlegum undanþágum eða ótímabundnum sérlausnum í aðildarsamningi.“ Innlent 27. júlí 2026 14:14
„Fólk er ekki heimskt“ Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir nú góðan tíma fyrir inngöngu Íslands í Evrópusambandið en það njóti góðs af stöðu heimsmála. Hún segist hafa áhyggjur af gangi mála í Evrópu og að ásælni Bandaríkjaforseta í Grænland sé mikið áhyggjuefni. Markmiðið sé að fá já þann 29. ágúst en sjálf sé hún gagnrýnin á Evrópusambandið. Innlent 27. júlí 2026 12:44
Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Það sem ég er kannski að segja er þetta: Þeir sem eru þeirrar skoðunar að Ísland eigi ekki að ganga í Evrópusambandið, þeir segja auðvitað nei og ég er þeirrar skoðunar, en ég vil meina að já þýði já. Það liggur alveg fyrir hvað felst í aðild að Evrópusambandinu.“ Innlent 26. júlí 2026 16:00
Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Umferð netþjarka, eða svokallaðra „botta“, á samfélagsmiðlum hefur aukist verulega á síðustu árum. Netöryggismiðstöð Íslands brýnir fyrir fólki að vera á varðbergi í aðdraganda atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið, þar sem samfélagsmiðlareikningar sem gefa sig út fyrir að vera alvöru fólk gætu reynst bottar. Almenningur er hvattur til að tilkynna það þegar þau telja sig rekast á botta. Innlent 24. júlí 2026 19:24
„Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ Utanríkisráðherra segir að ef hún ætti að elta allt sem ranglega væri haft eftir henni gerði hún lítið annað. Þess vegna hafi misskilningur í tveggja vikna gamalli frétt um þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB ekki verið leiðréttur fyrr en í gær. Innlent 23. júlí 2026 19:09
„Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi utanríkisráðherra, kallar eftir skýrum svörum frá Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra varðandi samtöl hennar við Hollendinga um mögulega undanþágu frá sameiginlegri sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins. Innlent 23. júlí 2026 18:54
Hart tekist á um ESB Eins og lýðum má ljóst vera ganga Íslendingar að kjörborðinu þann 29. ágúst næstkomandi til að taka afstöðu til þess hvort stjórnvöld eigi að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Málið er afar umdeilt en menn virðast ekki einu sinni geta komið sér saman um það hvort um eiginlegar samningaviðræður sé að ræða. Innlent 23. júlí 2026 16:26
Pallborðið: Nei eða já? Íslendingar ganga að kjörborðinu þann 29. ágúst næstkomandi, til að taka afstöðu til þess hvort stjórnvöld eiga að halda áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Ljóst er að málið er afar umdeilt en menn virðast ekki einu sinni getað komið sér saman um það hvort um eiginlegar samningaviðræður er að ræða. Mál málanna verður krufið í beinni útsendingu í Pallborðinu á Vísi. Innlent 23. júlí 2026 10:55
Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ „Þjóðaratkvæðagreiðslan 29. ágúst snýst um eitt: Viljum við að Ísland setjist við samningaborðið og freisti þess að ná eins hagfelldum samningi og völ er á, með þessi markmið að leiðarljósi? Verði svarið já opnum við á tækifæri. Með því að segja nei lokum við þessum dyrum. Í báðum tilvikum er það þjóðin sjálf sem ræður. Það er kjarni málsins, og hann breytist ekki þótt reynt sé að flækja hann.“ Innlent 23. júlí 2026 06:32
Segir Dag plata með úreltri skýrslu Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, fer hörðum orðum um skrif Dags B. Eggertssonar, þingmanns Samfylkingarinnar, í pistli undir yfirskriftinni „Dagur, bannað að plata!“ Dagur fjallaði fyrr í dag um tólf ára gamla skýrslu þar sem segir að upptaka evru myndi fela í sér gríðarlegan velferðarábata fyrir Ísland. Ásdís bendir á að skýrslan hafi verið rituð í efnahagsumhverfi sem sé fyrir löngu liðið undir lok. Innlent 22. júlí 2026 17:00