Gaman að sauma Falleg fataefni í ströngum kveikja ætíð blik í augum þeirra sem vanar eru að fást við vélsaum. Sem betur fer eru enn til verslanir sem sinna þörfum þeirra og bjóða upp á úrval efna í dýrindis flíkur, hvort sem um er að ræða samkvæmisklæðnað, sportfatnað, hvunndagsflíkur eða barnaföt. Tíska og hönnun 2. september 2004 00:01
Nánast ódrepandi jakki Ég á einn jakka sem er uppáhaldsflíkin mín. Þetta er Sherlock Holmes-jakki og frekar stuttur jakkafatajakki. Þetta er brúnleitur, köflóttur ullarjakki með ekta Sherlock Holmes-kraga og stórum brúnum tölum," segir Valur Freyr Einarsson, leikari. Tíska og hönnun 2. september 2004 00:01
Sérverslun með stíl Lakkrísbúðin á Laugavegi er skemmtileg sérverslun sem opnaði í vor. Lakkrísbúðin selur hátísku fatnað eftir erlenda unga framsækna hönnuði og byrjaði nýverið að bjóða einnig upp á íslenska hönnun. Það eru systkinin Þuríður Rún Sigurþórsdóttir og Þór Sigurþórsson ásamt Andreu Maack Pétursdóttur sem eiga og reka Lakkrísbúðina. Tíska og hönnun 25. ágúst 2004 00:01
Hið sérstaka í skápnum "Ég á buxur sem eru frekar sérstakar. Þær eru karrígular og eru í miklu uppáhaldi hjá mér," segir Brynja Valdís Gísladóttir, leikkona. Tíska og hönnun 25. ágúst 2004 00:01
Fashion Rocks Tónleikarnir Fashion Rocks munu marka upphafið að tískuvikunni í New York, sem hefst þann 8. september. Tónleikarnir verða sýndir í beinni á Fox-sjónvarpsstöðinni þann 26. ágúst Tíska og hönnun 18. ágúst 2004 00:01
Nælur eru ekki asnalegar lengur Nýjasta nýtt í tískuheiminum er nælur. Þó ótrúlegt megi virðast þá eru jafnt ungir sem aldnir að skreyta sig með nælum þótt áður fyrr hafi bara mömmur, ömmur og langömmur borið þær. Tíska og hönnun 18. ágúst 2004 00:01
Ert þú Eskimo módel? Tískuskrifstofan Eskimo Models býður nú upp á alvöru tískuljósmyndun. Hver sem er getur haft samband við Eskimo og fengið slíka ljósmyndun. Tíska og hönnun 18. ágúst 2004 00:01
Gleraugnasýning á Menningarnótt Gleraugnaframleiðandinn Booth & Bruce England hefur ekki starfað lengi en hefur þó slegið í gegn á alþjóðamarkaði. Booth & Bruce selur nú gleraugu um allan heim og er Yoko Ono einn af þekktustu viðskiptavinunum. Gleraugnaverslunin Sjáðu á Laugavegi er umboðsaðili fyrirtækisins á Íslandi. Tíska og hönnun 18. ágúst 2004 00:01
Lagerfeld hannar fyrir H&M Tískufatnaður á viðráðanlegu verði virðist vera að gera góða hluti í hinum stóra tískuheimi. Nú er ekki aðalmálið að eiga tíu þúsund króna nærbuxur eða hundrað þúsund króna bol heldur eru frægir hönnuðir farnir að fórna sér fyrir fjöldaframleiðsluverslani Tíska og hönnun 18. ágúst 2004 00:01
Spútnik opnar nýja búð Í bongóblíðunni fimmtudaginn 12. ágúst var verslunin Spútnik opnuð í nýju og víðu rými við Klapparstíginn. Hér bætist enn við þá skemmtilegu flóru af verslun og menningu sem hefur verið að myndast við þessa götu undanfarið ár. Tíska og hönnun 18. ágúst 2004 00:01
Charlize keppir við Nicole Hin yndisfríða suður-afríska leikkona Charlize Theron hefur skrifað undir samning hjá Christian Dior. Það þýðir að Theron er hið nýja andlit metsöluilmvatnsins þeirra Dior-manna, Jadore. Tíska og hönnun 18. ágúst 2004 00:01
Tagl og tíkó inni í hártískunni Stutt, sítt, bylgjur, slétt, ljóst, rautt, tagl, toppur, fléttur og tíkó, allt er þetta reglulega til skiptis inni og úti í hártískunni. Tíska og hönnun 18. ágúst 2004 00:01
Berlusconi flottur Þjóðarleiðtoginn Silvio Berlusconi er ekki bara heimsfrægur fyrir stjórnmálastílinn sinn heldur hefur hann nú getið sér gott orð í tískuheiminum Tíska og hönnun 18. ágúst 2004 00:01
Nauðsynlegar fyrir haustið Þeir sem lagt hafa leið sína í Gallerí Reykjavík í Iðu-húsinu við Lækjargötu hafa eflaust tekið eftir skærlitum töskum úr þæfðri ull sem eru þar til sýnis. Þessar töskur eru nýlega komnar í galleríið og er hönnuður þeirra myndlistarkonan Jóhanna Helga Þorkelsdóttir. Tíska og hönnun 12. ágúst 2004 00:01
Lumar á ýmsu í fataskápnum Ég luma nú á ýmsu í fataskápnum. Ég á hlébarðabuxur, sebrabuxur og latexbuxur, netaboli, Hawaiskyrtur og kúrekaskyrtur og fullt af jakkafötum svo eitthvað sé nefnt. Mér þykir mjög vænt um fötin mín," segir tónlistarmaðurinn Ceres4. "Mér er einstaklega annt um dýr í útrýmingarhættu og ég klæðist þessum fötum við sérstök tilefni," segir Ceres en hann verslar yfirleitt þessi "öðruvísi" föt erlendis Tíska og hönnun 11. ágúst 2004 00:01
Til styrktar góðu málefni Nýjasta æðið í Bandaríkjunum eru gul armbönd kennd við Lance Armstrong. Tíska og hönnun 4. ágúst 2004 00:01
Donatella í meðferð Fatahönnuðurinn Donatella Versace hefur verið lögð inn á meðferðarstofnun. Donatella hefur átt við alvarlegt fíkniefnavandamál að stríða og mun reyna að greiða úr kókaínfíkn sinni inn á stofnuninni. Tíska og hönnun 4. ágúst 2004 00:01
Inn og úr tísku Húðflúr fer reglulega inn og úr tísku þó að flúraður líkami sé vissulega einskonar lífstíll margra manna. Rokkarar og sjómenn hafa löngum verið þekktir fyrir að bera flúraðar myndir víðs vegar um líkamann en nú sjást allar stéttir þjóðfélagsins með húðflúr. Tíska og hönnun 4. ágúst 2004 00:01
Ný lína frá Victoria´s secret Nærfataframleiðandinn Victoria´s secret hefur nú hannað heila nærfatalínu sem höfðar til stúlkna á aldrinum 18-22 ára. Tíska og hönnun 4. ágúst 2004 00:01
Rosalega gott að reykja í þeim "Ég hef nú svo sem ekki keypt mér neitt nýlega en ég fékk rosa töff támjóa Rockabilly-skó í jólagjöf í fyrra frá kærustunni minni," segir Henrik Baldvin Björnsson, söngvari hljómsveitarinnar Singapore Sling. Tíska og hönnun 4. ágúst 2004 00:01
Áhrif frá Afríku Hausttískan í ár gætir mikilla áhrifa frá Afríku. Ástæða þess er vegna fjölmargra ungra hönnuða sem eru að stíga sín fyrstu skref. Tíska og hönnun 4. ágúst 2004 00:01
Kate Moss aftur Chanel-stelpa Ilmvatnsframleiðandinn Chanel hefur nú ráðið fyrirsætuna Kate Moss aftur til starfa. Tíska og hönnun 4. ágúst 2004 00:01
Töffari í fjöldaframleiddu Poppgoðið og kyntröllið Lenny Kravitz hefur nú skrifað undir samning við fataframleiðandann Gap. Tíska og hönnun 4. ágúst 2004 00:01
Rauðhært fólk í tísku Fyrirsætuskrifstofur á Bretlandseyjum leita nú í sífellu eftir rauðhærðum fyrirsætum af báðum kynum. Tíska og hönnun 4. ágúst 2004 00:01
Nýjasta nýtt í New York Nýjasta tískan í heimsborginni New York er að borga fyrir að versla. Nú getur fólk á öllum aldri, hvort sem það eru þreyttar húsmæður, áttavilltir karlmenn eða tískugúrúar, fengið leiðsögn um allar aðalverslanirnar í borginni. Tíska og hönnun 4. ágúst 2004 00:01
Ítalskt eðalskart Skóverslunin 38 þrep á Laugaveginum er þekkt fyrir fallega og vandaða ítalska skó en verslunin býður einnig uppá aukahluti eins og töskur og skart og fatnað eftir íslenska hönnuði. Tíska og hönnun 28. júlí 2004 00:01
Klæðalítil bikiní úr tísku Nú geta konur alls staðar fagnað því bikiní eru úti í sumar. Hönnuðir hafa loksins ákveðið að sýna gæsku sína með því að hafa tískusundföt í heilu lagi. Baráttan við aukakílóin er því ekki eins sýnileg og í pínulitlu bikiníi. Tíska og hönnun 28. júlí 2004 00:01
Nýjung hjá Monsoon Breska kvenfataverslunarkeðjan Monsoon mun kynna sína fyrstu karlfatalínu nú í haust. Þessi lína er liður í áætlun Monsoon um að færa út kvíarnar um allan heim. Tíska og hönnun 28. júlí 2004 00:01
Birkenstock ekki lummó Birkenstock sandalar eru sko aldeilis ekkert eins lummó og þeir voru hér áður fyrr. Þeir voru tákn fólksins sem var ekki í tísku en jafnframt þeirra sem voru umhverfisvænir og var annt um heilsuna. Tíska og hönnun 28. júlí 2004 00:01
Sumartískan 2005 Ítalir eru alltaf fremstir í heimi tískunnar. Sumarið er rétt hálfnað en um síðustu mánaðamót sýndu helstu tískumógúlar Mílanóborgar sumartískuna fyrir sumarið 2005. Tíska og hönnun 28. júlí 2004 00:01