Heitustu trendin árið 2025 Nú er splunkunýtt ár gengið í garð og nýju ári fylgja óumflýjanlega ný trend sem sækja þó mörg hver innblástur til fortíðar. Það er engum skylt að fylgja tískubylgjum og eflaust forðast einhverjir þær eins og heitan eldinn en þó getur verið skemmtilegt að vera með puttann á púlsinum á því sem slær í gegn. Lífið á Vísi ræddi við fjölbreyttan hóp sérfræðinga um heitustu trendin á margvíslegum sviðum. Lífið 10. janúar 2025 07:02
Tónlistarhátíðin Xjazz snýr aftur í Iðnó um helgina Tónlistarhátíðin XJAZZ Reykjavík fer fram um helgina,10. til 11. janúar, og er samstarfsverkefni XJAZZ Berlín og Extreme Chill hátíðarinnar. Pan Thorarensen skipuleggur hátíðina. Hann segir alla tónleika sitjandi og það verði kaffihúsa- og kósý stemning í Iðnó alla helgina. Lífið 9. janúar 2025 15:32
Nýársswing með handbremsu Stórsveit Reykjavíkur fagnaði nýju ári í Eldborg með dagskrá helgaðri gullöld sveiflunnar – dýrðardögum djassins á árunum 1930 til 1950. Öllu var tjaldað til; eggjandi blásarar og hraustleg rytmasveit komu áheyrendum nánast til að dansa. Að vísu ekki alltaf. Einsöngurinn var nefnilega það sem stóð upp úr – bæði á jákvæðan og neikvæðan hátt, eins undarlega og það kann að hljóma. Gagnrýni 8. janúar 2025 07:00
Peter úr Peter, Paul and Mary látinn Peter Yarrow, meðlimur bandaríska þjóðlagatríósins goðsagnakennda Peter, Paul and Mary, lést á heimili sínu í Manhattan í New York borg í gær, 86 ára að aldri. Banamein hans var blöðrukrabbamein, en hann hafði glímt við það í fjögur ár. Lífið 7. janúar 2025 23:29
Júlí og Ágúst keppa í Söngvakeppninni í febrúar Tónlistarmennirnir Júlí Heiðar Halldórsson og Ágúst Þór Brynjarsson eru meðal þeirra sem munu stíga á svið í Söngvakeppninni 2025. Þeir eru meðal tíu keppenda sem eygja von um að verða fulltrúar Íslands í Eurovision. Lífið 7. janúar 2025 15:59
Segir Gunna hafa verið skipstjórann í brúnni Björgvin Halldórsson segir að hæfileikar félaga hans Gunna Þórðarsonar hafi komið snemma í ljós. Gunni hafi verið skipstjórinn í brúnni í stúdíóinu og segist Björgvin hafa lært mikið af honum. Tónlist 6. janúar 2025 18:01
Stjörnufans á afmælistónleikum Gunnars Þórðarsonar Mikill stjörnufans var á 80 ára afmælistónleikum Gunnars Þórðarsonar, eins ástsælasta tónlistarmanns þjóðarinnar, sem fóru fram í gær við góðar undirtektir. Lífið 5. janúar 2025 15:56
Brenton Wood er látinn Sálarsöngvarinn Brenton Wood er látinn, 83 ára að aldri. Tónlistarmaðurinn, sem hét Alfred Jesse Smith, var þekktastur fyrir smellinn The Oogum Boogum Song sem kom út árið 1967. Lífið 5. janúar 2025 09:04
Fyrrverandi starfsmaður sakar Nicki Minaj um líkamsárás Maður að nafni Brandon Garrett hyggst höfða mál á hendur rapparanum og söngkonunni Nicki Minaj vegna meintrar líkamsárásar liðið vor. Lögmaður stórstjörnunnar segir ásakanirnar úr lausu lofti gripnar. Erlent 4. janúar 2025 19:22
Árni Grétar Futuregrapher látinn Árni Grétar Jóhannesson, einnig þekktur sem Futuregrapher, er látinn 41 árs að aldri eftir að bíll hans hafnaði í sjónum í Reykjavíkurhöfn á gamlársdag. Árni var raftónlistamaður og einn stofnenda plötufyrirtækisins Möller Records. Innlent 4. janúar 2025 10:50
Una Torfa og Jón Jónsson frumfluttu lag í beinni Una Torfa hélt tónleika í Bæjarbíó í Hafnarfirði ásamt hljómsveit sinni í kvöld. Fréttamaður Stöðvar 2 ræddi við Unu fyrir tónleikana og fékk að heyra frumflutning á nýju lagi með leynigesti tónleikanna, Jóni Jónssyni. Tónlist 3. janúar 2025 22:32
Ekkert einvígi í Söngvakeppninni 2025 Ekkert einvígi verður í Söngvakeppninni 2025 heldur mun stigahæsta lagið í úrslitum bera sigur úr býtum. Þetta er meðal þess sem fram kemur í tilkynningu frá Ríkisútvarpinu þar sem fram kemur að keppnin fari fram þrjár helgar í febrúar. Lífið 3. janúar 2025 15:01
Aron Kristinn og Lára eiga von á barni Tónlistarmaðurinn Aron Kristinn Jónasson og viðskiptafræðingurinn Lára Portal eiga von á sínu fyrsta barni. Frá þessu greinir Aron í færslu á Instagram. Lífið 3. janúar 2025 10:01
Frumsýning á Vísi: Hálka lífsins með Nýdönsk Ein ástsælasta hljómsveit landsins Nýdönsk hefur gefið frá sér nýtt lag sem ber heitið Hálka lífsins. Lagið var frumflutt á Bylgjunni í morgun og tónlistarmyndband við lagið nú frumsýnt á Vísi. Tónlist 2. janúar 2025 15:00
„Ég þekki mann sem að móðgast yfir dagskránni á RÚV“ Einar Lövdahl steig á stokk í Kryddsíld Stöðvar 2 þetta árið og flutti nýtt lag sitt Um mann sem móðgast. Árið var gjöfult hjá Einari sem gaf út Gegnumtrekk, fyrstu skáldsöguna sína, og svo lagið sem fékk áhorfendur Kryddsíldar til að brosa. Lífið 2. janúar 2025 11:31
Nýdönsk á toppnum 2024 Á hverju ári koma út nýir stórsmellir frá tónlistarfólki víða um heiminn. 2024 einkenndist af mikilli grósku í íslensku tónlistarlífi og endurspeglar árslisti Bylgjunnar það með sönnu. Hér má finna vinsælustu lög ársins hjá útvarpsstöðinni. Tónlist 1. janúar 2025 18:01
Dans Laufeyjar kominn í Fortnite Fortnite-spilurum gefst nú tækifæri til að kaupa dansspor Laufeyjar Línar og dansa eins og tónlistarkonan í tölvuleiknum. Lífið 1. janúar 2025 16:21
Herra Hnetusmjör með stærsta lag ársins Tónlistarárið 2024 var gjöfult og spennandi, sérstaklega hérlendis. Fjöldinn allur af ólíkum tónlistartegundum naut sín í úvarpi og víðar og íslenskt tónlistarfólk heldur áfram að fá gott pláss á útvarpsstöðinni FM957. Hér má finna stærstu lög ársins hjá stöðinni. Tónlist 31. desember 2024 07:00
Kórmenn fastir um allan fjörð og uppseldum tónleikum frestað Kuldakast sem nú gengur yfir landið mun að öllum líkindum vara langt inn í vikuna. Þrátt fyrir það verður víða hæglætisveður á gamlárskvöld, en aðra sögu var að segja í Skagafirði í gær þar sem fresta þurfti stórtónleikum vegna færðar. Kórmenn sátu fastir um allan fjörð og því reyna menn aftur í kvöld. Innlent 29. desember 2024 11:33
Íslandsvinurinn OG Maco látinn Bandaríski rapparinn OG Maco er látinn 32 ára að aldri. Hann hafði verið í dái á sjúkrahúsi frá 12. desember eftir að hafa veitt sjálfum sér skotáverka á höfði. Erlent 28. desember 2024 10:24
Inga tók jólalag á fyrsta fundi Fyrsti ríkisstjórnarfundur ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur var haldinn nú í morgun. Glatt var á hjalla og Inga Sæland, formaður Flokks fólksins og nýr félags- og húsnæðismálaráðherra, var kát og brast hún í söng. Innlent 23. desember 2024 11:12
Brostnar væntingar á Frostrósum Jólatónleikarnir Frostrósir nutu mikilla vinsælda á árum áður, en ég verð að viðurkenna að ég fór aldrei á meðan þeir voru árviss viðburður frá 2002 til 2013. Ekki heldur þegar hefðin var endurreist í fyrra. Ef marka má tónleikana á föstudagskvöldið í Eldborg í Hörpu, þá hefur maður ekki misst af miklu. Gagnrýni 23. desember 2024 07:00
Innlit á æfingu Jólagesta: „Allt þarf að taka endi“ Jólagestir Björgvins fara fram annað kvöld í Laugardalshöll í síðasta skipti. Hópurinn hittist á fyrstu æfingu í gær fyrir stóru stundina og Björgvin Halldórsson segir að það sé mikill hugur í honum en ljósmyndari Vísis myndaði hann á fyrstu æfingunni. Tónlist 20. desember 2024 16:00
Iceguys með opna búð og árita bókina Iceguys munu árita IceGuys bókina í Iceguys búðinni í Kringlunni á morgun milli klukkan 12 og 13. Búið er að opna búðina aftur en loka þurfti í tvo daga þegar allar hillur tæmdust. Jón Jónsson segir stemmninguna í kringum hljómsveitina ævintýralega. Lífið samstarf 20. desember 2024 13:29
Baldvin sagði upp 99 manns sem mættu ekki á morgunfund Baldvin Oddsson, framkvæmdastjóri bandaríska sprotafyrirtækisins The Musicians Club, sagði upp 99 starfsmönnum á einu bretti vegna þess að þeir mættu ekki á morgunfund. Þeir ellefu sem mættu á fundinn fengu að halda starfinu. Viðskipti innlent 20. desember 2024 12:21
Sænskur rappari skotinn til bana í bílastæðahúsi Karlmaður á þrítugsaldri var skotinn til bana í bílastæðahúsi í miðborg sænsku borgarinnar Norrköping í gærkvöldi. Sænskir fjölmiðlar segja að hinn látni sé rapparinn Gaboro sem hafi verið með tengsl við glæpagengi í landinu. Erlent 20. desember 2024 07:53
Ringo tróð upp á tónleikum Paul McCartney Trommarinn Ringo Starr birtist óvænt á sviði á tónleikum Paul McCartney í O2 Arena í Lundúnum í gærkvöldi. Lífið 20. desember 2024 07:18
Prinsinn kom á undan Kónginum Tónlistarmenn eru nú hver um annan þveran að senda frá sér textaverk. Hendingar úr söngtextum eru teknar, settar á pappír, rammað inn og selt. Þetta hefur á fáeinum árum orðið að stórútgerð. Lífið 19. desember 2024 13:50
Hátíðlegt en afslappað á tíu ára afmælinu Tíunda árið í röð slá Sigurður Guðmundsson og & Sigríður Thorlacius upp hátíðarveislu í Eldborgarsal Hörpu. Tónleikarnir eru fyrir löngu orðnir að ómissandi þætti margra í aðdraganda jólanna en þeir verða haldnir daginn fyrir Þorláksmessu. Lífið samstarf 19. desember 2024 12:48
Live in a fishbowl: Stórvinir X-ins í Brain Police rifu þakið af húsinu Sérlegir stórvinir X-ins 977, rokkararnir í Brain Police mæta og rífa þakið af húsinu í nýjasta og síðasta þættinum af Live in a fishbowl. Sveitin er nú á fullu við að vinna í nýrri plötu, sinni fyrstu frá því að hún gaf út Beyond The Wasteland árið 2006. Tónlist 19. desember 2024 10:32