Spila með Lúðrasveit verkalýðsins á afmæli sínu 200.000 naglbítar fagna tíu ára útgáfuafmæli sínu í haust. Áfanganum verður fagnað með eftirminnilegum hætti. Tónlist 27. febrúar 2008 06:00
Iceland Airwaves í Belgíu Fjöldi íslenskra listamanna koma fram á tveimur Iceland Airwaves tónleikum í Brussel í mánuðinum. Tónleikarnir eru hluti af lista- og menningarhátíðinni Iceland on The Edge, sem hefst þann 26. febrúar, og stendur fram í miðjan júní. Tónlist 14. febrúar 2008 10:02
Euro-nördar gráta Haffa Haff Eurovision-nördar hafa látið í ljós óánægju sína með að Haffi Haff komst ekki áfram um síðustu helgi. Tónlist 13. febrúar 2008 04:00
Haffi, Gröndal og jötnarnir Áfram heldur Eurovisionmaraþonið í Laugardagslögum Rúv. Í kvöld er komið að fjórða og síðasta undanúrslitakvöldið og að því yfirstöðnu verður loksins ljóst hvaða átta lög keppa til sigurs á stóra úrslitakvöldinu 23. febrúar. Tónlist 9. febrúar 2008 03:00
Skráning að hefjast á Músíktilraunir Undirbúningur fyrir Músíktilraunir 2008 er að hefjast. Keppnina þarf vart að kynna fyrir landsmönnum, en vandfundinn er sá íslenski tónlistamaður sem ekki hefur komið nálægt henni á einn eða annan hátt. Tónlist 6. febrúar 2008 12:12
Hlaðinn lofi fyrir Englabörn Endurútgefin plata Jóhanns Jóhannssonar, Englabörn, fær átta í einkunn af tíu mögulegum á bandarísku tónlistarsíðunni Pitchforkmedia.com. Tónlist 14. janúar 2008 05:00
Múm býður á tónleika Hljómsveitin Múm mun fagna heimkomu sinni og vel lukkaðri tónleikaferð á skemmtistaðnum Organ á miðvikudagskvöldið klukkan níu. Fram koma Múm, Mr. Silla & Mongoose og fleiri óvæntir gestir, og er frítt á tónleikana. Tónlist 18. desember 2007 13:46
Samstarf á netinu gerir útgáfuna mögulega Einstürzende Neubauten tók á tvö hundruð dögum upp nýja plötu í eigin hljóðveri. Útgáfan er fjármögnuð með sölu áskrifta að vefsvæði hljómsveitarinnar www.neubauten.org. Þar komast áskrifendur í margvíslegt efni og upptökur sem ekki fara í almenna dreifingu. Nýja platan, sem heitir Alles wieder offen, kom út rétt fyrir mánaðamótin síðustu. Tónlist 21. nóvember 2007 00:01
Þín eigin útvarpsstöð í vasanum Viðskiptavinir 3G þjónustu Símans geta nú hlustað á fleiri en 50 þúsund lög beint af tónlist.is á hraða og gæðum sem ekki hafa þekkst áður. Nú getur viðskiptavinurinn hlustað á lagalistana sína, netlistann eða nýjustu plöturnar hvar og hvenær sem er í símanum. Tónlist 16. nóvember 2007 16:09
Englabörn út í geiminn Tónlistarmaðurinn Jóhann Jóhannsson fær sjö af tíu mögulegum fyrir plötu sína Englabörn í breska tónlistartímaritinu NME. Platan, sem var samin fyrri samnefnt leikrit, var nýverið endurútgefin hjá breska útgáfufyrirtækinu 4AD en hún kom fyrst út árið 2002 á vegum Touch-útgáfunnar. Tónlist 14. nóvember 2007 06:00
Forhlustun á nýjustu plötu Páls Óskars ,,Allt fyrir Ástina", fyrsta dansplata Páls Óskars síðan árið 1999 kemur út miðvikudaginn 7. nóvember næstkomandi. Notendum tónlist.is gefst nú tækifæri til að hlusta á plötuna í heild sinni áður en hún kemur út. Tónlist 1. nóvember 2007 16:42
Söngur Geirs Haarde styrkir MS-samtökin Hin nýja plata South River Band, Allar stúlkurnar, er væntanleg til landsins í næstu viku og verður sett í sölu á netinu. 500 kr. af hverju seldu eintaki munu renna til styrktar MS-samtökunum. Sem kunnugt er af fréttum á Vísi mun Geir H. Haarde forsætisráðherra syngja lagið I Walk The Line eftir Johnny Cash á plötunni en lagið er í þýðingu Hjálmars Jónssonar dómkirkjuprests. Tónlist 18. október 2007 15:10
Britney: Stjörnuhrapið mikla Britney Spears er fædd í McComb í Mississippi í desember 1981 en var alin upp í Kentwood í Louisiana. Lífið 4. október 2007 13:36
Magic Numbers til Íslands Breska hljómsveitin The Magic Numbers er væntanleg til Íslands og heldur tónleika hér í næsta mánuði. Tónleikarnir verða í Fríkirkjunni sunnudagskvöldið 21. október. Samkvæmt heimasíðunni Gigwise.com eru tónleikarnir haldnir á vegum Coca Cola í Evrópu. Tónlist 28. september 2007 07:00
Go Go Smear The Poison Ivy - múm Múm fer á nýjar slóðir með nýrri mannaskipan á Go Go Smear The Poison Ivy. Margslungin og metnaðarfull plata með áhrifum víða að. Gagnrýni 26. september 2007 09:00
Sverrir vinnur með Grammy-verðlaunahafa Íslenski upptökustjórinn og Grammy-verðlaunahafinn Husky Höskulds hefur fallist á að hljóðblanda fyrstu sólóplötu Sverris Bergmann sem væntanleg er eftir áramót. Tónlistarmaðurinn er búinn að taka upp í Englandi og hyggst leggja lokahöndina á upptökurnar í hljóðveri Sigur Rósar á allra næstu dögum. Tónlist 24. september 2007 05:00
Kippi og töfratækin Raftónlistarmaðurinn Kippi Kaninus, öðru nafni Guðmundur Vignir Karlsson, á tvö uppáhaldsforrit þegar kemur að tónlistarsköpun. Vignir, eins og hann er oftast kallaður, hefur tekið þátt í ýmsum verkefnum tengdum tónlist og myndlist. Tónlist 17. september 2007 15:30
Færeyskir tónleikar í Norræna húsinu Í kvöld verða færeyskir tónleikar í Norræna húsinu þar sem Jensina Olsen, Budam og Jógvan Íslandsvinur Hansen munu stíga á stokk. Budam er einn af ástsælustu listamönnum Færeyja og hefur fengið firnagóða dóma hér. Tónlist 15. september 2007 14:00
Miðasala á Iceland Airwaves hefst á morgun Miðasala á hina árlegu tónlistarhátíð Iceland Airwaves hefst á morgun. Hátíðin fer fram í níunda sinn í miðborg Reykjavíkur dagana 17-21 október næstkomandi. Þegar hafa 160 hljómsveitir og flytjendur boðað komu sína á hátíðina en gert er ráð fyrir að þeir verði um 200. Tónlist 11. september 2007 14:39
Ekvilíbríum - Valgeir Sigurðsson Þessi fyrsta sólóplata upptökustjórans Valgeirs Sigurðssonar stendur undir þeim miklu væntingum sem gerðar eru til hennar. Róleg og seiðandi lög og frábær hljómur. Gagnrýni 7. september 2007 03:00
Mezzoforte til Köben Sigurður Kolbeinsson sem er í forsvari fyrir Hótelbókanir í Kaupmannahöfn mun standa fyrir tónleikum með hljómsveitinni Mezzoforte á skemmtistaðnum Vega í Kaupmannahöfn þann 25. apríl næstkomandi. Tónlist 4. september 2007 12:06
Ljótu Hálfvitarnir og Hvannadalsbræður á NASA Ljótu Hálfvitarnir og Hvannadalsbræður munu leiða saman hesta sína fimmtudaginn 6. september og halda tónleika á NASA. Báðar sveitirnar gáfu út plötur snemma í sumar undir merkjum Senu. Hvannadalsbræður gáfu út diskinn "Skást off" þar sem skástu lög af þremur diskum sveitarinnar var safnað saman. Ljótu hálfvitarnir gáfu út frumraun sína "Ljótir Hálfvitar." Tónlist 4. september 2007 11:25