50 cent hótar að hætta að gefa út sólóplötur Rappgölturinn 50 cent hefur hótað því að binda enda á einleikaraferill sinn ef geislaskífa rapparans Kanye West selst betur en hans eigin, en báðar eru þær væntanlegar þann 11. september næstkomandi. 50 cent hyggst þó ekki láta af tónlistarstörfum ef svo illa fer, heldur einungis starfa með öðrum tónlistarmönnum. Tónlist 13. ágúst 2007 18:24
Metnaðarfullt sjálfstraust Vinasveitirnar Hjaltalín og Sprengjuhöllin vinna nú um stundir að frumburðum sínum. Steinþór Helgi Arnsteinsson kíkti í heimsókn til sveitanna þar sem upptökur voru í fullum gangi. Tónlist 10. ágúst 2007 06:30
Selt á Franz Miðasala á tónleika skosku hljómsveitarinnar Franz Ferdinand hinn 14. september nk. hefst í dag í verslunum Skífunnar, BT á landsbyggðinni og á vefsíðunni Midi.is. Tónleikarnir fara fram á Nasa og í tilkynningu segir að miðaframboð á tónleikana sé takmarkað. Tónlist 10. ágúst 2007 04:45
Revíusýning hjá Slátrinu Á laugardagskvöldið kl. 20 verður S.L.Á.T.U.R. með sýningu í aðalstöðvum sínum að Hverfisgötu 32 á revíunni ALLT GOTT. Þar með tekur þetta gamla form á sig nýtt sköpulag í faðmi raftónlistarmanna. Tónlist 10. ágúst 2007 02:45
Sumarkvöld í Hömrum Á sunnudagskvöld kl. 20 halda þær Herdís Anna Jónasdóttir sópran og Sigríður Ragnarsdóttir píanóleikari tónleika í Hömrum, og eru það sjöttu tónleikarnir í sumartónleikaröð Tónlistarfélags Ísafjarðar, Sumar í Hömrum. Tónlist 10. ágúst 2007 02:15
Semur í göngutúrum Hljómsveitin Vetiver heldur tónleika á Organ í kvöld. Andy Cabric, forsprakki sveitarinnar, er spenntur fyrir tónleikunum. Tónlist 10. ágúst 2007 01:00
Reykjavík! í 12 Tónum Hin kröftuga hljómsveit Reykjavík! leikur í 12 Tónum í dag ásamt áströlsku sveitinni Because of Ghosts. Sú síðarnefnda er allþekkt í heimalandinu og er komin hingað til að freista þess að kynnast lifnaðarháttum Íslendinga. Tónlist 10. ágúst 2007 00:15
Miðasala á Franz Ferdinand hefst á morgun Skoska gítarpoppsveitin Franz Ferdinand heldur tónleika á NASA föstudaginn 14. september og hefst miðasala á tónleikana á morgun, föstudag í verslunum Skífunnar, BT og á Midi.is. Tónlist 9. ágúst 2007 09:56
Astrópía - Tónlistin úr kvikmyndinni - þrjár stjörnur Það er sitt lítið af hverju á Astrópíu-kvikmyndaplötunni. Nokkur ný popplög tekin upp sérstaklega fyrir plötuna, ný og nýleg lög af útkomnum eða væntanlegum plötum og kvikmyndatónlistin sjálf sem Þorvaldur Bjarni samdi og sem hljóðrituð var af Sinfóníuhljómsveit Búlgaríu. Tónlist 9. ágúst 2007 07:45
Söngskólinn skorar á kóra Söngskólinn í Reykjavík og menningarnótt hyggjast efna til söngveislu á menningardaginn 18. ágúst, undir yfirskriftinni Syngjum saman við Söngskólann! Stefnt er að því að samfelld söngdagskrá verði í gangi við hús Söngskólans í Reykjavík, að Snorrabraut 54, frá 15 til 18. Tónlist 9. ágúst 2007 05:15
Levi"s leitar að íslenskri tónlist Fatafyrirtækið Levi"s og VICE Magazine/Records eru að leita að nýrri tónlistarstórstjörnu á Norðurlöndunum. Tónlist 9. ágúst 2007 04:15
Leaves á Organ Hljómsveitin Leaves spilar á nýja tónleikastaðnum Organ við Hafnarstræti í kvöld. Tónlist 9. ágúst 2007 00:30
Leaves spila á Organ Hljómsveitirnar Leaves og Shadow Parade blása til tónleika á Organ, nýjum tónleikastað í Hafnarstræti. Tónleikarnir fara fram annað kvöld og hefjast kl. 21. Tónlist 8. ágúst 2007 12:57
Söng fyrir uppáhaldsliðið sitt Óperusöngvarinn Garðar Thor Cortes hafði sérstaklega gaman af því að syngja fyrir vináttuleik Manchester United og Inter Milan á Old Trafford á dögunum vegna þess að hann hefur verið aðdáandi United síðan hann var lítill polli. Tónlist 4. ágúst 2007 05:00
Latir blaðamenn Jack White, annar helmingur rokkdúettsins The White Stripes, segir að blaðamenn séu latir og nenni ekki að hafa staðreyndirnar á hreinu áður en þeir taki við sig viðtöl. Tónlist 4. ágúst 2007 04:15
Wonder í tónleikaferð Goðsögnin Stevie Wonder er á leið í sína fyrstu tónleikaferð um Bandaríkin í rúman áratug. Wonder, sem er 57 ára, byrjar ferðalagið í San Diego 23. ágúst og lýkur því í Boston 20. september. Tónlist 4. ágúst 2007 02:45
Lokatónleikar "Tónaregns í Reykjavík" Í kvöld verða haldnir tónleikar í Dómkirkjunni til styrktar minningarsjóði um Susie Rut Einarsdóttur. Hafdís Vigfúsdóttir og Kristján Karl Bragason mynda dúóið Para-Dís og hafa í sumar unnið hjá Hinu húsinu í Reykjavík að verkefni sem þau nefna "Tónaregn í Reykjavík" og eru tónleikarnir í kvöld lokahluti verkefnisins. Tónlist 1. ágúst 2007 17:53
Innipúkar gleðjast Tónlistarhátíðin Innipúkinn fer fram í Reykjavík um helgina eins og undanfarin ár. Í þetta skiptið fer hátíðin fram á nýja tónleikastaðnum Organ í Hafnarstræti sem opnar þá með pompi og pragt. Tónlist 1. ágúst 2007 04:45
Nýtt lag frá Millunum Milljónamæringarnir hafa sent frá sér nýtt lag sem ber nafnið „Við elskum þig nú samt“. Lagið er eftir Karl Olgeirsson en textinn er eftir Stefán Hilmarsson. Tónlist 1. ágúst 2007 04:00
Rétti tíminn runninn upp Birgitta Haukdal ætlar að gefa út sína fyrstu sólóplötu fyrir næstu jól. Er hún nýbúin að undirrita útgáfusamning við Senu þess efnis. Tónlist 1. ágúst 2007 03:00
Ragga Gröndal snýr aftur Tónlistarkonan Ragnheiður Gröndal, sem er komin heim eftir söng- og píanónám í Bandaríkjunum, heldur tónleika á Domo í kvöld ásamt hljómsveitinni Black Coffee. Sveitina skipa gítarleikararnir Ásgeir Ásgeirsson og Eðvarð Lárusson, Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson kontrabassaleikari og trommarinn Erik Quick. Tónlist 1. ágúst 2007 02:30
Hita upp fyrir Eyjar Rokkstjörnurnar Magni Ásgeirsson og hinn ástralski Toby Rand halda tónleika á Gauki á Stöng í kvöld ásamt hljómsveitinni Á móti sól. Um er að ræða nokkurs konar upphitun fyrir þjóðhátíð í Eyjum, þar sem Á móti sól ætlar að spila um verslunarmannahelgina. Tónlist 1. ágúst 2007 02:00
Rignir niður plötum Tónlistarmaðurinn Rigning heldur útgáfutónleika á Barnum í kvöld í tilefni af útkomu sinnar fimmtu sólóplötu, Askja Pandóru. Aðeins nokkrir mánuðir eru liðnir síðan síðasta sólóplata kappans kom út, þannig að afköst hans eru í miklu hámarki um þessar mundir. Tónlist 1. ágúst 2007 01:30
Frágangur - Megas og Senuþjófarnir Frágangur er fyrsta plata Megasar með nýju efni síðan Far þinn veg kom út árið 2001 ef frá er talin Megasukk platan Hús datt sem kom út fyrir tveimur árum. Megas hefur verið áberandi í útgáfu síðustu ára aðallega vegna endurútgáfu á fyrstu 13 plötunum hans og útgáfu á áður óútkomnu tónleikaefni, en nú er sem sagt loksins komin alvöru ný Megasarplata. Tónlist 31. júlí 2007 08:00
Styrktartónleikar Para-Dís Lokatónleikar verkefnisins „Tónaregn í Reykjavík“ fara fram í Dómkirkjunni annað kvöld. Hafdís Vigfúsdóttir og Kristján Karl Bragason mynda saman dúóið Para-Dís, en þau hafa unnið að Tónaregni í Reykjavík á vegum Hins hússins í sumar. Tónlist 31. júlí 2007 06:45
Safnplata á leiðinni Hljómsveitin Sigur Rós gefur út safnplötuna Hvarf-Heim hinn 5. nóvember, sama dag og tónleikamynd sveitarinnar Heima kemur út. Plötunni verður skipt í tvo hluta. Tónlist 31. júlí 2007 05:45
Rottweiler ráðast á eftirlitsþjóðfélagið „Lagið snýst um þetta 1984-kjaftæði sem komið er upp í þessu þjóðfélagi, hvernig fylgst er með öllum eins og þeir séu glæpamenn,“ segir Erpur Þ. Eyvindarson, forsprakki rapphljómsveitarinnar XXX Rottweilerhunda. Erpur og félagar tóku um helgina upp myndband við fyrsta nýja lag sveitarinnar í nokkur ár. Tónlist 31. júlí 2007 04:45
Jan Mayen til Englands „Ég er helvíti glaður með þetta,“ segir Ágúst Bogason, gítarleikari rokkhljómsveitarinnar Jan Mayen. Önnur breiðskífa Jan Mayen er væntanleg í búðir eftir verslunarmannahelgi en þrjú ár eru síðan fyrsta plata þeirra kom út. Tónlist 27. júlí 2007 06:00
Vináttan sem sprakk Töluverð umræða hefur verið uppi um lagið „(Minnst tíu miljón) Flóabitanótt“ sem er að finna á nýjustu plötu Megasar, Frágangur. Hefur því verið haldið fram að í laginu sé Megas að skjóta föstum skotum að Bubba Morthens, sem Megas hefur reyndar sjálfur harðneitað í útvarpsviðtali. Tónlist 27. júlí 2007 04:30
Norrænt stúlknaband safnar fé fyrir bágstadda „Okkar draumsýn er að láta gott af okkur leiða. Það er náttúrlega draumur ef maður getur unnið við það að hjálpa öðrum,“ segir söngkonan Birgitta Haukdal, sem vinnur nú með samtökunum Navia í félagi við þrjá aðra Íslendinga. Tónlist 27. júlí 2007 03:30